Morgunblaðið - 18.02.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
7
Psoriasis og
exemsjúklingar
Ákveöiö er að stofna til 2ja hópferöa fyrir psori-
asis- og exemsjúklinga til eyjarinnar Lanzarote
23. apríl og 16. ágúst.
Ágústferöin verður svo aftur auglýst síðar. Dvalið
verður á heilsustööinni Panorama. Fyrirkomulag
verður með svipuðum hætti og í fyrri ferðum.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þesum ferð-
um, vinsamlega fáið vottorö hjá húösjúkdóma-
lækni um þörf á slíkri ferð og sendið það merktu
nafni, heimilisfangi, nafnnúmeri og síma til
T ryggingayf irlæknis,
Tryggingastofnun ríkisins,
Laugavegi 114, 3. hæö.
Umsóknir veröa aö berast fyrir 15.
mars.
Tryggingastofnun ríkisins.
Litli liósálfurinn
hefur sannað ágæti sitt á íslandl.
Lltll ijósálfurlnn gefur þér góða birtu við bóklestur án
þess að trufla aðra, frábær í öll ferðalög og sumarbústað-
inn. Kjörin gjöf.
Lltll Ijósálfurlnn er léttur og handhægur, getur jafnt
notað rafhlöður og 220 volta rafstraum. Honum fvlgir
aukapera, hylki fyrir rafhlöður og straumbreytir. Einnig
fást geymslutöskur.
Litli IJósálfurlnn fæst í næstu bóka- og gjafavöruverslun
og í Borgartúni 22.
HILDA
Vsíhmadjuhiiinn
0cT.S}-
^■tettisýötu 12-18
Peugeot 504 1980
Grænsans., eklnn 73 þús. km. Útvarp. seg-
ulband. Verð 230 þús. Ath. sklptl.
Mazda 929 station 1980
Brúnsans.. eklnn 48 þús. Útvarp og segul-
band, snjú- og sumardekk. Nýendurryóvar-
inn. Verö 230 þús. km. Ath. skipti.
Fiat Argenta 1982
Blár, ekinn 27 þús. km. 5 gíra, 2000 vél.
aflstýri. Útvarp, segulband Snjo- og sumar-
dekk. Verð 320 þús.
BMW 316 1982
Beinsklptur, eklnn 30 þús. km. Útvarp, seg-
ulband, snjó- og sumardekk. Upphækkaöur,
grjótgrind Verö 340 þús. Ath. skiptl.
Voivo 245 station 1981
Gullsans.. eklnn 35 þús. km. Aflstýri, snjó-
og sumardekk. Verö 390 þús. Skiptl.
Voivo 245 station 1981
Gullsans.. eklnn 35 þús. km. Aflstýri, snjó-
og sumardekk. Verö 390 þús. Skiptl.
WV Golf CL 1982
Blár. ekinn 27 þús. km. Verö 260 þús. Ath.
skipti.
M. Benz 307 1978
Gulur, ekinn 126 þús. km. Aflstýrl, utvMP
Úrvals bfll. Verö 350 þús. Sklpti.
Scout Traveller 1976
Rauöur og hvítur, eklnn 72 þús. km. Meö 8
cyl 304 vél. sjáltsk . aflstýri, útvarp. Verö
250 þús. Ath. skipti.
Range Rover 1973
Gulbrúnn. Upptekln vél og kassi, aflstýri,
útvarp. Verö 250 þús.
Framsókn og utanríkisráðuneytið
Myndin hér að ofan sýnir fyrirsögn á frásögn Tímans af
umræðum um Treholt:skýrsluna á alþingi sl. þriðjudag. En
hún vísar til orða sem Ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður fram-
sóknar, lét falla í umræðunum. í forystugrein Tímans í gær
gengur Þórarinn Þórarinsson lengra á þessari braut en svo
virðist sem framsóknarmenn vilji korna því orði á að kannski
leynist treholtar í utanríkisráðuneyti íslands. Óskammfeilnari
árásir á embættismenn eða aöra er ekki unnt að gera nú um
stundir. En Geir Hallgrímsson, utanríkisráöherra, hefur sagt
að skýrslan hafi farið í margra hendur, enda fjölrituð.
Þórarinn og
Treholt-
skýrslan
Kftir myndun vin-stri
stjórnarinnar 1971 sem
ætlaði sér að reka herinn á
brott í áfonjfum varð Þór-
arinn l*órarinsson formað-
ur þingflokks framsóknar
og jafnframt formaður
utanríkismálanefndar al-
þingis. Hann er því sá sem
situr uppi með hvað mesta
vitneskju stjórnmála-
manna og blaðamanna um
það sem gerðist á þessum
afdrifaríku árum sem
stjórnin sat eða til 1974 og
honum ætti að vera manna
Ijósast hve mikla áherslu
þingmenn stjórnarflokk-
anna lögðu á það að „emb-
ættismannavaldið" væri
brotið á bak aftur við mót-
un utanríkisstefnunnar. Til
marks um þá baráttu
stuðningsmanna ríkis-
stjórnarinnar er skýrslan
fræga frá því í desember
1971 sem Morgunblaðið
birti úr eftir að upplýst var
um njósnir Arne Treholts í
þágu KGB.
Knginn hefur brugðist
verr við birtingu úr skýrsl-
unni en Þórarinn Þórar-
insson. Hann reyndi 1
fyrstu atrennu að afflytja
efni hennar og gaf þar með
. til kynna í leiðara Tímans
að fleiri skýrslur um sv ipað
efni hefðu borist frá New
York þegar stjórnarsinn-
arnir börðust við „embætt-
ismannavaldið". Úr hófí
keyrir hjá Þórarni Þórar-
inssyni í forystugrein Tím-
ans í gær. Hann segir að
það sé með „dularfyllri at-
burðum, sem hér hafa
gerst í seinni tíð“ að Morg-
unblaðið skuli hafa komist
yfir umrædda skýrslu og
birt úr henni og þá segir:
„Hver sem rétta skýr-
ingin kann að vera á þessu,
er það augljóst, að innan
eða utan |utanríkis)ráðu-
neytisins er einhver Tre-
holt, sem vinnur fyrir Mbl.
af svipaðri dyggð og Tre-
holt hinn norski fyrir
Kússa." Hvað felst í þess-
um orðum Þórarins Þórar-
inssonar? I stuttu máli það,
að aðgangur Morgunblað-
sins að skýrslu þremenn-
inganna og birting úr
henni jafngildi landráðum.
Hve langt getur jafnvel
l*órarinn l*órarinsson
gengið í ásökunum í reiði
sinni yfír því að birt var úr
skýrslunni eða afsökunum
fyrir ódæðisverk Arne Tre-
holts?
Arás á
embættismenn
Forystugrein Þóraríns
l*órarinssonar um Treholt-
skýrsluna í gær er raunar
framhald á þeim árásum
sem vinstrisinnar halda
jafnan uppi á embættis-
menn þegar þeir leita að
blóraböggli vegna eigin
vankunnáttu og mLstaka. í
Tímanum i gær er fyrrver-
andi formaður utanríkis-
málanefndar alþingis að
reyna að leiða að því líkur
að embættismenn utanrík-
Lsráðuneytisins séu í ein-
hvers konar bralli með
Morgunblaðinu út af Tre-
holt-skýrslu þremenn-
inganna, Stefáns Jónsson-
ar, Hannesar Pálssonar og
Braga Jósepssonar. Lcið-
ara l*órarins lýkur á þess-
um orðum: „Vonandi verð-
ur það líka einsdæmi, að
trúnaðarskýrslur týnist í
utanrikLsráðuneytinu og
fínnist fyrst eftir að birst
hafa kafíar úr þeim í MbL“
Sú spurning vaknar
hvort starfsmenn utanrík-
isráðuneytisins ætli að sitja
þegjandi undir þcssum að-
dróttunum í málgagni
Framsóknarflokksins. Og
hvernig væri að Þórarinn
Þórarinsson skýrði frá því
sem gerðist eftir að þre-
menningarnir sendu Kinari
Ágústssyni skýrslu sína i
desember 1971? Hvað varð
um skýrsluna? Var henni
dreift af formanni utanrík-
ismálanefndar alþingis í
þingflokki framsóknar þar
sem sami maður var einnig
formaður? Var ekki hald-
inn fundur fíjótlega á árínu
1972 þar sem frammá-
menn í stjómarfíokkunum
og fulltrúar þeirra á alLs-
herjarþingi Sameinuðu
þjóðanna, skýrsluhöfund-
arnir, komu saman til að
ræða það hvernig unnt
værí að koma hinni
„sjálfstæðu utanríkis-
stefnu" í framkvæmd þrátt
fyrír embættismennina ■
utanríkisráðuneytinu?
Voru einhverjir treholtar á
þeim fundi úr því að Þórar-
inn Þórarínsson slær því
fostu að einhver treholt
hafí fengið skýrsluna í
hendur og komið henni til
Morgunblaðsins?
Arás l*órarins l*órarins-
sonar á embættismenn
utanríkisráðuneytisins i
leiðara Tímans í gær er
einsdæmi. Tilgangur rit-
stjóra málgagns Fram-
sóknarflokksins er að
koma þeirrí hugmynd á
framfæri að treholtar séu
starfandi í utanríkisráðu-
neyti íslands og þeir séu
jafnvel verrí en hinn norski
útsendari KGB — enda
starfí þeir á vegum Morg-
unblaðsins!
*
Afram
um söguna
íslandssagan var helsta
umræðuefnið á alþingi á
fimmtudag og fer vel á því
að þingmenn ræði hana og
kennslu i grunnskóhinum
ítarlegar. l*egar sama mál
var á dagskrá á þriðjudag
lauk Guðrún Agnarsdóttir,
þingmaður Kvennalistans,
ræðu sinni á uppörvandi
hátt með þessum orðum:
„Konur vilja að mennsk-
an og hin mjúku gildi kom-
ist að til að móta söguna og
skrifa hana. Þess vegna er
Kvennalistinn til og þess
vegna stend ég hér.“