Morgunblaðið - 18.02.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
15
unnar, málgagns sovéska hersins,
um skýrsluna margræddu. Þar
sagði meðal annars:
„Þjóðviljinn, málgagn Alþýðu-
bandalagsins á Islandi, birti þann
20. desember sl. frétt, sem vakti
mikla athygli. Það kom í ljós að
þrátt fyrir yfirlýsingar Geirs
Hallgrímssonar og M. Brement er
verið að ræða áðurnefnda skýrslu
opinberlega í varnarmálaráðu-
neyti Bandaríkjanna. Og Þjóð-
viljinn sagði í hæðni: „Áætlanir,
sem væru til opinberrar meðferð-
ar í bandaríska varnarmálaráðu-
neytinu, eru væntanlega ekki
marklausar."
íslenska blaðið segir frá áköf-
um viðbrögðum danskra blaða við
áætlunum Pentagon. H. Engels,
varnarmálaráðherra Danmerkur,
lýsti yfir eins og Geir Hallgríms-
son gerði eiginlega, að enginn af
bandarísku bandamönnunum
hafi borið undir hann, hvorki
opinberlega né óformlega, áætl-
anir um uppsetningu eldflauga á
dönsku landsvæði. Þá vaknar sú
spurning: Hver er ástæðan fyrir
slíkri stefnu í hegðun Bandaríkj-
anna við bandamenn sína í
NATO? Það mætti ætla, að í
bandarísku höfuðborginni
„gleymi" menn stundum að
kynna sér álit bandamanna
sinna, ef það getur komið sér illa
fyrir framkvæmd hernaðarað-
gerða innan þeirrar hernaðar-
stefnu, sem núverandi ríkisstjórn
Bandaríkjanna rekur."
Þessi klausa er úr „fréttabréfi"
sem Novosti sendi til íslenskra
fjölmiðla 30. desember 1983, þýð-
ingin er gerð af starfsmönnum
sovéska sendiráðsins í Reykjavík.
Hinn 3. febrúar 1984 hefur
þetta mál tekið á sig þessa mynd
í Rauðu stjörnunni í grein eftir J.
Geizerov, sem áróðursdeild sov-
éska sendiráðsins dreifði á ís-
lensku, þar segir: „Áætlanir um
uppsetningu handarískra stýri-
flauga í löndunum í Norður-
Evrópu hafa enn einu sinni
sannfært, svo að ekki verður um
villst, hvert er hið sanna andlit
núverandi Bandaríkjastjórnar.
Hún er reiðubúin að fórna banda-
mönnum sínum til þess að fram-
kvæma valdaóskir bandarískrar
heimsvaldastefnu."
Niðurstaða Politiken
Kveikjan að því að Morgun-
blaðið tók saman þetta efni er
grein í danska blaðinu Politiken,
sem leggur sig fram um að vera
ekki talið hallt undir Bandaríkin
fremur en norska Dagbladet, og
hafa bæði blöðin til að mynda
verið gagnrýnin á stefnu Atl-
antshafsbandalagsins í Evrópu-
eldflaugamálinu.
í grein í Politiken fimmtudag-
inn 26. janúar 1984, sem rituð er
af Jan Stage og Peter Hertz, er
sagt frá Nikolai P. Gribin, ráðu-
naut við sovéska sendiráðið í
Kaupmannahöfn, undir fyrir-
sögninni: „KGB-chefen í Dan-
mark er en lille grá mand.“ Þar
kemur meðal annars fram að
Gribin og menn hans hafi nýlega
tekið til við að stunda falsanir og
miðlun lygafrétta. Haustið 1983
hafi verið dreift bréfi, sem átti að
vera undirritað af danska yfir-
hershöfðingjanum, þar sem hann
hvatti einkum gamalt fólk að yf-
irgefa hús sín og heimili á meðan
árlegar heræfingar færu fram.
Þótti þetta illa falsað bréf og var
rakið til Gribins í sovéska sendi-
ráðinu. Síðan segir í grein Poltik-
en:
„Skömmu fyrir þingkosning-
arnar sem fram fóru 10. janúar
1984 bárust lausafregnir um það
að koma ætti fyrir stýriflaugum
þó án kjarnaodda innan danskra
landamæra.
í ljós kom að þessi hugarburð-
ar („fantasifulde tanke") átti
upptök sín í Reykjavík og síðan
var honum dreift til Danmerkur
til að lífga upp á umræðurnar um
eldflaugamálið. Einnig í þessu
tilviki sást skuggi Gribins."
Helga Guðrún Johnson skrifar frá Chicago:
Kuldi,
kraftaverk,
tónleikar
Janúarmánuður í gömlu
glæpaborginni Chicago, var ekki
með öllu tíðindalaus, þrátt fyrir
mikinn kulda og ótíð. Meðal
stóratburða bar björgun fjög-
urra ára drengs úr ísköldu Mich-
igan-vatninu.
Drengurinn, Jimmy Tontlew-
icz, féll út í nær gaddfreðið vatn-
ið er hann var við leik á strönd-
inni. Féll hann undir ís og tókst
ekki að ná honum upp fyrr en
eftir tæpan hálftíma. Var
Jimmy þá látinn, en björgun-
armenn fluttu hann þó beint á
barnaspítala, þar sem hann var
lífgaður við. Ótrúlegt sem það
virðist, þá tókst læknum að
koma hjartanu af stað á ný,
þrátt fyrir svo langa dvöl í vatn-
inu. Við endurlífgunina notuðust
læknarnir við lyf sem hægja á
allri líkamsstarfsemi og héldu
svo líkama barnsins köldum, því
hætta var á að heilinn þendist út
og skemmdist ef líkaminn væri
hitaður of snögglega. Öll Chic-
agoborg stóð á öndinni í heila
viku meðan læknarnir drógu úr
•yfjaitjöfum til að koma Jimmy
úr dái. Eftir sex daga opnaði svo
Jimmy augun við veröldinni á ný
og hóf að hreyfa sig. Að vísu er
talið að hann þurfi að læra öll
grundvallaratriði eðlilegs mann-
lífs á ný, s.s. að ganga, borða og
tala o.s.frv. En Jimmy er ungur
að árum og verður því ekki langt
að baki jafnöldrum sínum.
Af tslendingum héðan er það
að frétta að þeim er öllum búið
að vera kalt í þessum frosthörk-
um sem gengið hafa yfir Norður-
ríkin allt frá því í desember. Þó
birti örlítið yfir er flautuleikar-
inn Björn Davíð Kristjánsson
hélt einkatónleika í boði Chic-
ago-háskóla um miðjan mánuð-
inn. Björn hefur verið viðloðandi
tónlistardeild skólans frá því í
haust og m.a. leikið með tveimur
viðurkenndum hljómsveitum hér
í borg, annars vegar New Music
Ensemble og hins vegar Civic
Orchestra of Chicago, sem er
eins konar undirbúningshljóm-
sveit fyrir Chicago sinfóníuna.
Þykir nokkur heiður að fá að
halda tónleika í háskólanum, en
á sínum tónleikum, flutti Björn
verk eftir ýmis tónskáld — þæði
einleik og einnig við undirleik
Edith Anner, píanókennara við
skólann. Björn heldur heim á
leið innan nokkurra vikna, en
hann ætlar að ljúka burtfarar-
prófi frá Tónlistarskóla Reykja-
víkur á næsta ári.
Utan heimsókna tveggja for-
setaframbjóðenda, þeirra Jessie
Jackson og Ronald Reagan, til
borgarinnar, hefur líf gengið
sinn vanagang þrátt fyrir tafir
og önnur óþægindi vegna kuld-
ans. Við íslendingarnir höfum
þó nokkuð fram yfir infædda um
þessar mundir og það eru gömlu,
góðu lopapeysurnar að heiman.
Björn Davíð Kristjánsson
Athugasemd
vegna fréttar
um aðsókn að
Kvikmynda-
hátíð
í FRÉTT í Morgunblaöinu í
dag er haft eftir Guðbrandi
Gíslasyni framkvæmdastjóra
ListahátíÖar að um sextán
þúsund manns hafi sótt
Kvikmyndahátíð og sé hún
því önnur best sótta kvik-
myndahátíðin frá upphafi.
Ef hér er rétt eftir haft, þá fer
Guðbrandur Gíslason með al-
rangt mál. Samkvæmt upplýsing-
um frá Endurskoðun hf., Suður-
landsbraut 18, sem farið hefur
með bókhald Listahátíðar, þá eru
aðsóknartölur fyrri kvikmynda-
hátíða sem hér segir:
1978 20.479
1980 22.500
1981 20.147
1982 19.707
Ég hef ekki með höndum tölur
um aðsókn að hátíðinni 1983, sem
Guðbrandur telur best sóttu há-
tíðina, en hann segir þá aðsókn
vera um 18.000. Ef það er rétt,
sést greinilega að meðaltalsað-
sókn fyrri kvikmyndahátíðanna 5
er um 20.000 gestir. Af því leiðir
að aðsókn að nýafstaðinni kvik-
myndahátíð er sú langlakasta frá
upphafi.
Með þökk fyrir birtinguna.
Seltjarnarnesi, 17. febrúar,
Njörður P. Njarðvík,
fyrrv. formaður framkvæmda-
stjórnar Listahátíðar.
Wterkur og
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Lækkun á
Kynntu þér Honda áöur en þú velur þér bíl.
Vandvirkni og nákvæmni eru einkunnarorö þeirra sem framleiöa
Honda-bíla og tryggir eigendum mest fyrir peningana.
Civic 3ja d. beinsk.
Civic 3ja d. sjálfsk.
Civic 4ra d. beinsk.
Var
274.400, -
310.400, -
330.000.-
Nú
251.000.-
288.000,-
303.000,-
Lækkun
23.400.-
22.600.-
27.000,-
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 1—5.
HONDA Á ÍSLANDI — VATNAGÖRÐUM 24 — SÍMAR 38772 — 39460.