Morgunblaðið - 18.02.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
17
. M
Kveikjur
Myndlist
Valtýr Pétursson
Kveikjur er nafn á sýningu,
sem nú er nýlokið í ASÍ-safninu.
Þarna var á ferð ungur maður
með sína fyrstu sýningu, og heit-
ir sá Pétur Már Pétursson. Hann
kom mér sannarlega á óvart,
þessi ungi listamaður. Satt að
segja vissi ég ekkert um þessa
sýningu, fyrr en kunningi minn
einn fór að ámálga það við mig
að skoða hvað væri á seyði í
húsakynnum ASÍ. Heldur var ég
tregur til, en dreif mig samt, og
eftir því sé ég ekki.
Þarna var sem sagt mjög
óvenjuleg byrjendasýning á ferð
og megnið af því sem sýnt var í
þeim gæðaflokki, sem sjaldséður
er á fyrstu sýningu ungs lista-
manns. Þarna var á ferð sérlega
efnilegur ungur maður, sem þeg-
ar hefur unnið sér nokkurt nafn
með þessari einu sýningu. Hæfi-
leikar þessa pilts eru svo auð-
sjáanlegir, að það er blindur
maður sem ekki hrekkur við.
Þarna er spenna og litameðferð
sem sjaldan verður vart hjá svo
ungu fólki og nú ber við. Pétur
Már er fæddur 1955 og hefur
orðið að sjá fyrir sinni eigin
menntun, en aðeins verið nokkra
mánuði í myndlistarskóla. Hann
hefur þegar náð í beztu verk sín
svo áberandi árangri, að ég man
vart annað eins hjá svo kornung-
um manni. Það eru minni mynd-
ir Péturs Más, sem bera af á
þessari sýningu, og eru þær allar
gerðar með akryllitum á pappír.
Þegar hann aftur á móti málar
með sömu litum á léreft, nær
hann hvergi sama árangri. Ekk-
ert skal ég segja um ástæðu fyrir
þessu, en þetta er mjög augljóst
og blasir við. Það er sterk til-
finning fyrir lit og formi í þess-
um verkum og Pétur Már slær á
óvenjulega uppbyggingu í flest-
um myndum sínum. Manni verð-
ur á að jafna þessu við sumt hjá
COBRA-hópnum hér á árum og
stundum má láta sér detta í hug
Svavar okkar Guðnason. Ekkert
er eðlilegra en menn gangi á vit
fyrirrennara sinna og noti þá
sem kveikju að eigin verkum, en
þá verður líka að vinna á per-
sónulegan máta og það tekst
þessum unga listamanni. Það er
langt síðan mér hefur orðið eins
hlýtt til ungs málara og við að
skoða þessi verk Péturs Más.
Hann á vonandi eftir að fá tæki-
færi til að stunda list sína af
öllum þeim krafti sem maður
skynjar í þessum verkum.
Að lokum vil ég færa þessum
unga manni allar mínar beztu
óskir, og megi framtíðin bera
honum starfsþrek og starfsgleði.
Ef svo verður, þarf ekki að ör-
vænta. Þarna eru á ferð sjald-
gæfir hæfileikar, sem verða að
fá að þroskast.
Viðtalstími
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins verða til viðtals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12.
Er þar tekið við hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum
og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér viðtals-
tíma þessa.
Laugardaginn 18.
febrúar verða til við-
tals Ragnar Júlíus-
son og Anna K.
Jónsdóttir.
Metsölublad á hverjum degi!
Brenndu bobbingarnir:
Ekkert óeðlilegt
fundist á svæðinu
— segir Guðmundur Sigvaldason
„ÞAÐ MÁ segja, að það liggi fyrir
ákveðin niðurstaða þótt hún varði
ekki ummyndun bobbinganna á
vörpu skipsins. Svæðið hefur verið
kembt af varðskipinu Tý en þar hef-
ur ekkert óeðlilegt fundist," sagði
Guðmundur E. Sigvaldason, for-
stöðumaður Norrænu eldfjallastöðv-
arinnar. í samtali við blm. Morgun-
blaðsins um dularfullar hita-
skemmdir á bobbingum vörpu togar-
ans Vestmannaeyjar VE um 11 mílur
suður af Surtsey 30. janúar sl.
„Sýni hafa ekkert leitt í ljós
utan hvað að á bobbingunum
sjálfum voru smáskeldýr og berg-
agnir úr gömlu seti. Við því var að
búast,“ sagði Guðmundur. „Það er
því ekkert hægt að staðfesta um
jarðvirkni eða hverahita þarna á
sjávarbotninum.“
Hann sagði að allir jarðskj-
álfta- og hallamælar í Vest-
mannaeyjum hefðu verið á sínum
stað og starfað eðlilega en þar sem
staðurinn væri í 50 km. fjarlægð
frá Heimaey hefði ekkert óvenju-
legt komið fram á þeim.
SUMIR VERSLA DÝRT -
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
Nú er
svínakjöt á
Góðllverði...
Svínalæri 1 /íQ.OO
______AÐEINS IV/y Pr kg.
Svínabógur 1 ÁQ.00
AÐEINS X Prk8-
Svína
kótilettur
Kynnum í dag
Ekta Kínverskan
pottrétt
Á TILBOÐSVERÐI:
Franskmann i i.„ nn
kartöflusktfur
Fransmann Franskar kartöflur
80^55.0° 2kgl28 °°
Opið /ú ábáðum
til kl. stöðum
AUSTURSTRÆT117 STARMÝRI 2