Morgunblaðið - 18.02.1984, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
21
„Sogið í ykkur dellu á íslandi ... “
Nefiidi ísland
af hreinni rælni
Segir John Skow, bókagagnrýnandi við Time
„HLUSTIÐ á byggðaspekina í
l’ortúgal, drekkið í ykkur delluna á
íslandi. Komdu þér af stað, maður,
áður en tærnar á þér festa rætur og
þú verður, eins og aðrir, að borga
einhverjum fyrir að fara í léttari
ferðir.“
Þetta eru niðurlagsorð í bóka-
dómi eftir gagnrýnandann John
Skow í bandaríska fréttaritinu
Time, sem út kom 6. febrúar sl.
Þar fjallar Skow um bókina „Tra-
veling Light" eftir rithöfundinn
Bill Barich, sem vakið hefur at-
hygli fyrir fjörlegar og vel skrif-
aðar ferðabækur. Ekki er að öðru
leyti fjallað um ísland i bókinni,
sem gefin er út af Viking bókafor-
laginu í New York.
„Ég vona að þessi orð hafi engan
móðgað á ísiandi, það var alls ekki
ætlun mín,“ sagði John Skow er
blaðamaður Mbl. náði símasam-
bandi við hann í New York. „Þetta
var hugsað sem fyndni af minni
hálfu og ætlað að vera í takt við
bók Barichs. Það er vafalaust
hægt að finna visku og dellu í öll-
um löndum, ég nefndi Island og
Portúgal af rælni. Ég hef komið til
íslands og líkaði það vel.“
Skow sagði að til að átta sig á
því hvað hann hefði verið að fara
þyrftu menn e.t.v. að lesa ferða-
bókina, sem gagnrýnin fjallaði
um. „Bill Barich skrifar ekki al-
varlegar ferðabækur, hann ferðast
VIÐRÆÐUFUNDI fulltrúa fslands,
norska fyrirtækisins ELKEM og
fulltrúa Sumitomo í Tokyo lauk á
fimmtudagsmorgun að íslenskum
tíma án árangurs. Að sögn iðnaðar-
ráðherra halda fundir áfram eftir
helgi, þ.e.a.s. á sunnudagskvöld að
íslenskum tíma, en hann sagði við-
ræðurnar ganga stirðlega, enda um
þríhliða viðræður að ræða.
Sverrir sagði að lítið nýtt væri
að frétta, en fulltrúar Sumitomo
munu hafa farið fram á, að
Ölvaður ökumaður:
Stöðvaður við Kiða-
fell eftir eltingarleik
LÖGREGLAN stöðvaði ökumann,
sem grunaður var um ölvun við akst-
ur, við Kiðafell í Kjós á fimmtu-
dagskvöld, eftir nokkurn eltingar-
leik, samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. fékk hjá lögreglunni í Reykja-
vík.
Varð fyrst vart við ökumanninn
á Vesturlandsvegi. Lögreglan hóf
þá eftirför en hún var þá að svip-
ast um eftir bílnum, þar sem
ábending hafði áður borist um að
ökumaðurinn væri hugsanlega
ölvaður. Ökumaður varð fljótlega
var við lögregluna og herti þá
ferðina, en fjórir lögreglubílar
tóku þátt í eftirförinni.
Ökumaðurinn, sem er um tví-
tugt, ók á ofsahraða á köflum, en
við Kiðafell tókst einum lögreglu-
bílnum að komast í veg fyrir hann.
Gafst ökumaðurinn upp við svo
búið og sýndi ekki mótþróa við
handtöku.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar var ekki hægt að gera
tilraun til að stöðva bílinn fyrr,
vegna hættu af annarri umferð.
um heiminn og skrifar um það,
sem fyrir hann ber og á daga hans
drífur. En hann gerir það í léttum
dúr og mjög skemmtilega. Hann
var til dæmis í Énglandi og skrif-
aði heila bók um land og þjóð
byggða á samtölum sínum og
reynslu á þarlendum krám, viðtöl-
um við alkóhólistana og fastagest-
ina. Umsögn mín um bókina var
skrifuð í hans dúr. Ég er alls ekki
að gefa í skyn að það sé meiri della
á íslandi en annars staðar — og
enn síður var ég að sneiða að ís-
lendingum fyrir hundabannið í
Reykjavík, sem ég þekki ekki
nema af afspurn," sagði John
Skow.
Konudagur
er a morgun
úrval afskorinna blóma.
Önnumst allar
blómaskreytingar
Sjómenn á hafi úti: Þiö hringiö og viö
sendum konudagsblóm.
BREIÐHOLTSBLÓM
Arnarbakka 2 Sími 79060 Reykjavík
Viðræðurnar við Sumitomo ganga stirðlega:
Vilja aukið rekstrarfé frá
ELKEM og íslendingum
Norðmenn taka því fálega
úc-nudagtff
^9>feb*uar:
ELKEM og íslendingar legðu
einnig fram aukið fjármagn til að
treysta rekstrarstöðu félagsins, en
Norðmenn taka því fálega.
Viðræður þessar varðandi Járn-
blendiverksmiðjuna á Grundar-
tanga eru vegna hugsanlegra
kaupa japanska fyrirtækisins
Sumitomo í hluta af eignarhluta
norska fyrirtækisins ELKEM, en
með tilkomu Sumitomo binda
menn vonir við að nýtt fjármagn
fáist til rekstrarins, einnig að
sölumarkaður verði tryggari.
Útsalan heldur áfram
____þessa helgi.
Gróöu
rhúsinu
Istaöou'T': . etat.d.
V\ðsV.vp^a túVtpa^303
sk°r'ðr?e\rkoma.
þegar Pe"
aÆBfil
36770
“86340
Vörumarkaðurinnht.
sci.w
Vörumarkaðurinn ht.
Eiðistorgi 11