Morgunblaðið - 18.02.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
23
Mynd þessi sýnir lík fjögurra drúsa í þorpinu Kfar Matta. Talið er að yfir 100 manns hafi verið myrtir í
september í fyrra.
Fjöldamorð í Líbanon
London, 17. febrúar AP.
HERMENN drúsa hafa fundið
Þyrluvæddir
bankaræningjar
sönnunargögn um fjöldamorð á
drúsum, sem áttu sér stað í Líban-
on fyrir fimm mánuðum, er ísra-
elsmenn kölluðu her sinn burt í
skyndi frá Chouf-fjöllum. Skýrði
Umfangsmiklar heræfingar fara
fram á vegum NATO í Norður-Atl-
antshafi og Norður Noregi daganna
28. febrúar til 22. mars næst-
komandi, eftir því sem norska her-
málaráðuneytið staðfesti í dag.
40.000 hermenn með 150 skipum og
300 flugvélum og þyrlum frá 9 lönd-
um taka þátt í æfingunum, sem eru
haldnar til að kanna samvinnumátt
blaðið Times í London frá þessu í
dag. Segir fréttamaður blaðsins í
Beirút, Robert Fisk, svo frá, að
fjöldamorð þessi hafi átt sér stað í
þorpinu Kfar Matta, um 25 km
suðaustur af Beirút.
Fisk heldur því fram, að her-
bandalagsins ef styðja þyrfti Norð-
menn ef Sovétríkin gera á þá árás.
Um 25.000 hinna 40.000 þátttak-
enda munu taka þátt í aðgerðum,
sem fram fara í Norður-Noregi,
eigi langt frá landamærum Nor-
egs og Sovétríkjanna. Geir Grung,
talsmaður norska utanríkisráðu-
neytisins sagði, að yfirvöldum
Sovétríkjanna, Tékkoslóvakíu og
menn drúsa „hafi fundið marga
tugi af líkum karla, kvenna og
barna og hafi flest þeirra verið
farin að rotna verulega.“ Telji
drúsar, að kristnir hægri menn
og líbanski stjórnarherinn beri
ábyrgðina á þessum morðum.
Ungverjalands hefði verið boðið
að senda tvo fulltrúa frá hverri
þjóð til að fylgjast með æfingun-
um. Æfingarnar hafa fengið nafn-
ið „Avalanch express/teamwork"
og löndin níu sem þátttaka eru
Bandaríkin, Kanada, Bretland,
Vestur-Þýskaland, Ítalía, Lux-
emborg, Holland, Danmörk og
Noregur.
Leesville, Loui.siana, 17. febrúar. AP.
BÍRÆFNIR bankaræningjar, fimm
talsins, komust undan eftir að hafa
stolið þyrlu og notað hana við flótt-
ann. Þeir lentu þyrlunni á þaki
Merchants’&Farmers’-bankanum í
Leesville, rændu hann og sluppu
með 163.000 dollara. Alríkislögregl-
an bandaríska, FBI, sagði að þetta
væri fyrsta bankaránið í Bandaríkj-
unum þar sem þyrla er notuð og er
óttast að slík rán færist í vöxt er sýnt
var hversu vel ránið heppnaðist.
Ræningjarnir voru sem fyrr
segir 5 talsins og vopnaðir
M-14-hríðskotarifflum og klæddir
Fá bíl
auk gull-
verðlauna
Osló, 16. febrúar. Frá frcttaritara Morg-
unblaðsirui, Jan Erik Lauré
NORSKU þátttakendurnir í
Ólympíuleikunum í Sarajevo
keppa ekki bara um gullverð-
laun, heldur fá þeir einnig bíl
að auki ef þeir ná að sigra í
sinni grein. Það er bílainnflytj-
andi einn sem fyrirfram hefur
lofað nýjum bfl handa öllum
sem vinna gullverðlaun.
Er norska kvennasveitin
vann fjórum sinnum fimm
km boðgöngu kvenna kom í
ljós, að loforð bílainnflytj-
andans nær aðeins til þeirra
sem vinna til gullverðlauna
sem einstaklingar en ekki í
sveitakeppni. Annar bílainn-
flytjandi, sem fannst þetta
óréttlátt, greip þá til sinna
ráða og sendi norsku gull-
stúlkunum eftirfarandi til-
kynningu í gærkvöldi: „Þið
fáið líka allar splunkunýjan
bíl.“
bláum samfestingum og vélsleða-
grímum. Þrír þeirra fóru inn í
bankann, en hinir héldu vörð fyrir
utan. Enginn slasaðist í ráninu og
talið er að ræningjarnir hafi flúið
til Texas og komist hjá því að til
þeirra sæist með því að fljúga neð-
an trjátoppa í gisnu skóglendi sem
er við landamerki Louisiana og
Texas á þessum slóðum.
Áfengið
finnst
en eitr-
ið ekki
Osló og Kaupmannahöfn, 17. febrúar.
Frá Jan Erik Lauré og Ib Björnbak.
EKKERT hefur fundist í leit
danskra og hollenskra aðila að 80
tunnum af eiturefnum sem brotsjór
mokaði af þilfari dansks flutn-
ingaskips í Norðursjó fyrir nokkrum
vikum. Hafa menn miklar áhyggjur
af tunnunum og Iftið er til sparað,
enda er lífríki á stórum svæðum í
hættu ef eitrið lekur úr tunnunum.
Auk eiturtunnanna sópuðust í
hafið tveir gámar, hvor með 18.000
flöskum af Whiskey. Einn gám-
anna hefur fundist, annað ekki. Þó
hafa Danir notað við leitina hið
fullkomna leitarskip, Gunnar
Seidenfaden. Skipið er svo full-
komið að búnaði að það kostar
Dani 150.000 krónur á dag að
halda því úti. Leitarskipinu til
trausts og halds eru tveir togarar
og auk þess leita Hollendingar
með þremur skipum.
Noregur:
Umfangsmiklar heræf-
ingar NATO framundan
Osló, 17. febrúar. AP.
sýning á Kjarvalsstöðum dagana 10. - 19. febrúar
•Ný íslensk skólahúsgögn - hönnuð með aukið heilbrigði
íslenskra barna að leiðarljósi.
•Ný skrifstofuhúsgögn - skrifstofustólar
tölvuborð
•Ný húsgögn úr beyki fyrir fundarsali og félagsheimili.
•Stacco-stóllinn í nýjum búningi.
Stjórnendur skóla og fyrirtækja og aðrir þeir sem láta sig varða
heilbrigði skólabarna og skrifstofufólks ættu ekki að láta þessa
sýningu fram hjá sér fara.
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF.
SKEIFUNNI 6.SÍMAR: 33590.35110. 39555