Morgunblaðið - 18.02.1984, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
31
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JOHN AUSLAND
Treholt-njósnamálið —
Viðbrögð og afleiðingar
EFTIR MARGRA VIKNA eftirvæntingu hefur mál Arne Treholts
færzt lítið eitt út úr sviAsljósinu. Bergmál þess á hins vegar eftir
aA óma langt inn í framtíAina.
Arne Treholt var sem sendistarfsmaAur mjög virkur í stjórn-
málabaráttunni. Hann var handtekinn 20. janúar á flugvellinum
í Osló, er hann var aA fara til Vínarborgar til enn eins fundar viA
yfirmann sinn í KGB, leyniþjónustu Sovétríkjanna. Nú virAist
þaA vera Ijóst, aö slíkir fundir hafi átti sér staA í nær 15 ár.
Norskir fjölmiðlar hafa lýst
handtöku Treholts sem
„mest spennandi njósnamáli í
sögu Noregs". Þetta segir tals-
vert, því að nær 30 Norðmenn
hafa verið dæmdir fyrir njósnir í
þágu Sovétmanna eftir heims-
styrjöldina síðari.
Þar sem Osló er fremur lítil
borg og Treholt lét mikið að sér
kveða, þá var hann mjög vel
kunnur á meðal stjórnmála-
manna og fréttamanna. Eftir að
hafa náð sér aftur eftir fyrsta
áfallið við handtöku Treholts
hafa vinir hans og kunningjar
tekið til við að rannsaka per-
sónuleika hans og finna skýr-
ingu á hinni óeðlilegu hegðun
hans. Að baki liggur hins vegar
mikil reiði í hans garð fyrir að
hafa svikið þá.
Þeir af vinum hans, sem at-
hygiin hefur aðallega beinzt að,
eru Jens Evensen, fyrrverandi
hafréttarráðherra, og Einar
Förde, varaformaður Verka-
mannaflokksins. Evensen, sem
sagt hefur, að hann hafi litið á
Treholt sem son sinn, hefur neit-
að að ræða við fréttamenn um
málið. Förde, sem þarf að verja
stöðu sína á stjórnmálasviðinu,
hefur verið opinskárri. Hann
hefur þó gætt þess í fréttaviðtöl-
um að snúa ekki með berum orð-
um baki við Treholt sem vini sín-
um, enda þótt hann segist harma
njósnir hans. í viðtali við blaðið
The New York Times, kom þó
meiri gagnrýni fram i orðum
Förde, en þar hafði blaðið eftir
honum: „Ég get í allri einlægni
sagt, að hann var maður, sem lét
ekki siðgæðisreglur ráða miklu
um gerðir sínar.“
Þjálfaður hjá KGB
Einn hliðarþáttur Treholt-
málsins var, að gagnnjósnaþjón-
ustan, sem til þess var hvött af
ríkisstjórninni, hagnýtti sér til
fulls athygli fjölmiðla til þess að
skýra fólki frá starfsemi KGB í
Noregi. Margir Norðmenn voru
felmtri slegnir, er þeir fengu að
vita, að í Noregi eru starfandi
75—100 starfsmenn KGB, ann-
aðhvort sem starfsmenn sovézka
sendiráðsins eða annarra stofn-
ana. Sú spurning hlaut óhjá-
kvæmilega að vakna, hvernig
þetta hafði getað gerzt, en þess-
ari viðkvæmu spurningu er enn
að mestu ósvarað.
Stjórn Willochs beið með að-
gerðir í 10 daga en vísaði síðan
fimm sovézkum sendistarfs-
mönnum og viðskiptafulltrúum
úr landi. Hinn 10. febrúar til-
kynnti dómsmálaráöuneytið, að
enn einn starfsmaður KGB hefði
verið beðinn um að hafa sig á
brott. Sá maður var starfandi
við Konela, sem er fyrirtæki, er
flytur inn farartæki frá Sovét-
ríkjunum.
Það verður ekki auðvelt fyrir
sovézka sendiráðið — að
minnsta kosti um sinn — að fá
Norðmenn til þess að þiggja
heimboð til Sovétríkjanna.
Þannig hefur nefnd þingmanna
tilkynnt, að hún hafi hætt við
fyrirhugaða heimsókn þangað.
Klaufaleg viðbrögð
Sovétmanna
Frá byrjun brugðust Sovét-
menn við handtöku Treholts af
þeim klaufaskap, sem einkenn-
andi er fyrir þá. í fréttatilkynn-
ingum sovézka sendiráðsins var
málinu vísað á bug sem móðgun.
Þá ásakaði sendiráðið norsku
gagnnjósnalögregluna um að
hafa boðið sovézkum sendi-
starfsmanni í Vínarborg hálfa
milijón dollara, ef hann vildi
flýja til Vesturlanda.
Enda þótt uppnámið á meðal
almennings út af Treholt hafi
verið slíkt, að það krefðist
harkalegra viðbragða af halfu
stjórnar Willochs, þá hafði hún
engan áhuga á þvi að fara út i
neina baráttu við Sovétríkin.
Þar naut hún víðtæks stuðnings
af hálfu stjórnmálaaflanna i
landinu. I fyrsta lagi bera flestir
Norðmenn mikla virðingu fyrir
mætti Sovétríkjanna, enda þótt
þeir geri sér grein fyrir þeirri
ógnun, sem þeim stafar af þvi. I
öðru lagi hafa samskipti land-
anna á sviði menningarmála og
viðskipta farið mjög vinsamlega
fram. Enda þótt verzlun milli
landanna sé tiltölulega lítil, þá
skiptir hún máli fyrir þau
byggðarlög, sem hún snertir
beint. Þar að auki gerir norskur
iðnaður sér vonir um verulegar
vörupantanir í tengslum við
hagnýtingu Sovétmanna á olíu-
og gaslindum þeirra í Barents-
hafi.
Knut Frydenlund, sem var
utanríkisráðherra í stjórn
Verkamannaflokksins, lét í ljós
aðrar skoðanir og sömuleiðis
Carl I. Hagen, leiðtogi Fram-
faraflokksins.
í blaðaviðtali gaf Frydenlund
það til kynna með hægð, að hefði
stjórn Verkamannaflokksins
verið við völd, þá hefði hún orðið
að grípa til afdrifaríkari ráða en
stjórn Willochs gerði. Gaf hann í
skyn, að ríkisstjórn Verka-
mannaflokksins hefði ekki látið
sér nægja að reka fáeina KGB-
njósnara úr landi og síðan haldið
áfram „venjulegum samskipt-
um“.
Hagen hvassyrtur
Carl I. Hagen var hvassyrtari.
Hann hélt því fram, að stjórn
Willochs hefði átt að bregðast
mun harðar við og átt að reka
eins og 15 KGB-menn burt. Á
þingi spurði hann og nokkrir
stuðningsmenn hans stjórnina,
hvað hún hygðist gera til þess að
hindra starfsemi KGB í Noregi.
Hagen notaði einnig tækifærið
til þess að hefja herferð gegn
þeim, sem hann kallaði „vinstri
sinna“ í sjónvarpi og hljóðvarpi.
Þetta bréf vakti þann ótta á
meðal sumra Norðmanna, að
McCarthyismi væri að koma upp
aftur í Noregi.
Norski Verkamannaflokkur-
inn hefur sætt sig við það að
þurfa um langa framtíð að burð-
ast með Treholt-málið. það verð-
ur enn þungbærara vegna þess,
að það verða líklega ekki bara
ein heldur tvenn réttarhöld í
málinu. Þeir flokksmenn, sam
gagnrýna NATO, eiga sennilega
eftir að láta aðeins minna á sér
bera, að minnsta kosti þangað til
Ronald Reagan gerir eitthvað
næst, sem kann að valda deilum.
Treholt-málið mun hins vegar
aö öllum líkindum hafa varanleg
áhrif á afstöðu Norðmanna til
Sovétríkjanna.
(John C. Ausland hefur sltrifaA fyrir Morg
unblaAM frá Osló um nokkurra ára skeid.
Ilann er fyrrverandi starf.smaóur handarísku
uUnríkLsþjónuNtunnar.)
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Mánudaginn 13. febrúar lauk
barómeter félagsins. Fyrir síð-
asta kvöldið höfðu Árni Þor-
valdsson og Sævar Magnússon
náð rúmlega 100 stiga forustu,
og aðeins átti eftir að spila 5 um-
ferðir. Töldu menn víst að sigur-
inn félli þeim í skaut, en það átti
þó ekki eftir að verða. Björn
Eysteinsson og Kristófer Magn-
ússon gengu berserksgang, og
höfðu áður en yfir lauk unnið
upp forskotið og gott betur. Þeir
félagar urðu þannig sigurvegar-
ar en Árni og Sævar máttu láta
sér nægja annað sætið. Efstu
sætin á mótinu skipuðu annars
eftirtalin pör:
Björn Eysteinsson —
Kristófer Magnússon 326
Árni Þorvaldsson —
Sævar Magnússon 314
Bjarnar Ingimarsson —
Þórarinn Sófusson 184
Georg Sverrisson —
Kristján Blöndal 172
Ólafur Valgeirsson —
Ragna Ólafsdóttir 170
Ásgeir Ásbjörnsson —
Guðbrandur Sigurbergsson 154
Næsta keppni er board a
match-keppni þ.e, sveitakeppni
með tvímenningsfyrirkomulagi.
Er áætlað að hún verði þrjú
kvöld.
Spilað er í íþróttahúsinu við
Strandgötu, og hefst spila-
mennskan kl. 19.30, mánudaginn
20. febrúar.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Nú er aðeins eftir að spila eina
umferð í sveitakeppni og er röð
efstu sveita þessi:
Sveit:
Magnúsar Torfasonar 112
Guðmundar Theódórssonar 107
Sigmars Jónssonar 102
Björns Hermannssonar 96
Guðrúnar Hinriksdóttur 96
Síðasta umferð verður spiluð
þriðjudaginn 21. febrúar kl.
19.30 í Drangey, Síðumúla 35.
Bridgefélag
Kópavogs
Sjöunda og áttunda umferð
aðalsveitakeppni BK var spiluð
fimmtudaginn 16. feb. Þegar
einni umferð er ólokið er staðan
þessi:
Sveit stig
Sigurðar Vilhjálmssonar 151
Gríms Thorarensen 118
Hauks Hannessonar 109
Guðrúnar Hinriksdóttur 105
Sveit Sigurðar hefur afger-
andi forystu og hefur þegar sigr-
að i mótinu.
Að lokinni aðalsveitakeppn-
inni hefst barometer-tvímenn-
ingur 1. mars. Vandað verður til
keppninnar að venju og verða
glæsileg verðlaun veitt fyrir
efsta sætið í keppninni sem óli
Andreasson hefur gefið. Skrán-
ing þátttakenda hefst fimmtu-
daginn 23. feb. en einnig má til-
kynna þátttöku í síma 45003
(Þórir) eða í síma 29994 (Sigurð-
ur).
Bridgedeild
Rangæingafélagsins
Eftir 6 umferðir í sveita-
keppninni er staða efstu sveita
þessi:
Hjartar Elíassonar 94
Sigurleifs Guðjónssonar 78
Lilju Halldórsdóttur 71
Síðasta umferðin verður spil-
uð á miðvikudaginn kemur í
Domus Medica kl. 19.30.
Hreyfill — BSR —
Bæjarleiðir
Tíu umferðum af 13 er lokið í
sveitakeppninni og er staða efstu
sveita þessi:
Anton Guðjónsson 177
Þórður Elíasson 156
Cyrus Hjartarson 153
Guðmundur Magnússon 152
Flosi Ólafsson 132
Michael Gabríelsson 120
Þórir Guðmundsson 115
Ellefta umferðin verður spiluð
á mánudaginn kemur í Hreyf-
ilshúsinu kl. 20.
Skipting sveita á milli svæða í undanúrslitum
íslandsmóts í sveitakeppni 1984
Svæfti Úrslit 1983 Kvótaskipting Samtals
Kcykjavík 6 sveitir 5 sveitir 11 sveitir
Reykjanes 2 sveitir 2 sveitir
Suðurland 3 sveitir 3 sveitir
Austurland 1 sveit 1 sveit
Norðurland eystra 1 sveit 1 sveit
Norðurland vestra 1 sveit 1 sveit
Vestfirðir 1 sveit 1 sveit
Vesturland 1 sveit 2 sveitir 3 sveitir
íslandsmeistarar 1983 1 sveit 1 sveit
Sveitir samtals 8 sveitir 16 sveitir 24 sveitir
m/Assn.
Skiptinemar til
Bandaríkjanna
ASSE ISLAND gefur íslenskum unglingum
kost á því aö fara sem skiptinemar til ársdval-
ar í Bandaríkjunum. Dvalartími er frá 15. ág-
úst 1984 til 1. ágúst 1985.
Drengir og stúlkur fædd á tímabilinu 1. ágúst
1966 til 1. ágúst 1968 geta sótt um.
ASSE ISLAND eru nýstofnuö samtök og
starfa í tengslum viö samsvarndi samtök á
hinum Noröurlöndunum og ASSE internation-
al í Bandaríkjunum.
Skrifiö eöa hringiö eftir umsóknareyöublöö-
um og öörum nánari upplýsingum.
Umsóknir þurfa aö berast ekki síöar en 1.
marS ASSE ISLAND,
American Scandinavian Student
Exchange.
Pósthólf 10104, 130 Reykjavik.
Sími 91-19385 eftir kl. 14.