Morgunblaðið - 18.02.1984, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
mmim
MmyymímfnnaiiniHii -----------------------------LLL
Jy Ar- jí> - ó - K&' ‘ , Ég-hef-þafr-gott -hvesn'tý
he-fcjr-píi —pah f *
ást er.
C&>
... að synyja fyrir
hana eflirlœtissönyinn
hennar.
TM Reo U.S. Pat Off.—all rigfits reserved
c1984 Los Angeles Times Syndicate
Hann hefur sUekkað svona á
síðustu mánuðunum.
Með
morgunkaffinu
HÖGNI HREKKVlSI
Vímuefni — áfengismál:
Það kemur fátt af sjálfu sér
Heill og sæll, Velvakandi.
Góðar konur hafa skrifað í
dagblöðin undanfarið um ráð
gegn vímuefnaneyslu. Kolbrún
heitir ein og birtist í Dagblaðinu
6. febrúar. Nokkrum dögum áður
var sú sem Inga nefndist í dálk-
um Velvakanda.
Báðir þessir höfundar halda
því fram að ráðið sé að gera
menn jákvæða í hugsun og hátt-
um. Ég held að Inga nefni Sam-
hygð í því sambandi.
Þetta er nú gott og blessað.
Eitt af því sem stuðlar að vímu-
efnaneyslu er tómleiki og leið-
indi og ráðið gegn því óláni er
áhugi og ábyrgðartilfinning.
Seint verður of mikið gert úr
þeirri hættu sem leiðindum og
kæruleysi fylgir eða þeim lífs-
þrótti sem áhuginn vekur. En við
skulum ekki einfalda þetta fyrir
okkur um of.
Inga segist reykja sígarettur í
nokkuð stórum stíl. Þá dugar
ekki hin jákvæða samhygð til að
uppræta hjá henni þá tilfinn-
ingu að hún þurfi að reykja. Sú
staðreynd er verð umhugsunar.
Nú er af mörgu að taka. Ég
hef vitað stjórnmálaskörunga,
skáld og hugsjónamenn af ýmsu
tagi sem ofdrykkjan lamaði.
Þeim dugði ekki að eiga fjölþætt
áhugamál til að verjast drykkju-
hneigðinni. Þess eru mörg dæmi
að menn hafi byrjað neyslu
vanabindandi efna fyrir félags-
skap og orðið háðir þeim. Þess
vegna er það fullsannað með
fjölda dæma að menn geta orðið
ofurseldir vímuefnum þrátt fyrir
jákvæð viðhorf, samhygð og
áhugamál.
Það brá mörgum í brún þegar
í ljós kom að athuguðu máli í
Noregi að áfengisneysla var
meiri meðal þeirra unglinga sem
tóku mikinn þátt í félagslífi en
hinna. Þarna var um að ræða fé-
lög sem lögðu stund á íþróttir og
ýmislegt sport. Menn héldu að
þar væri þó að finna það lífsins
krydd sem eyddi tómleikanum.
En þess ber að gæta að í þessum
félagsskap var venja að hafa
áfengi um hönd við allan mann-
fagnað. Og því fór sem fór.
Það kemur fátt af sjálfu sér.
Enginn þarf að halda að það eitt
að vera jákvæður geri menn
ónæma fyrir vímuefnum. Og ef
sá jákvæði félagsskapur . sem
þeir tilheyra notar áfengi eða
önnur vímuefni við svo til öll
hugsanleg tækifæri þá fer illa.
Um það eru mörg dæmi. Þau eru
svo mörg að af þeim mætti
draga rökréttar ályktanir.
H.Kr.
Um sjónvarpsdagskrána og hundahald:
Get ekki þagað lengur
Velvakandi góður!
Nú get ég ekki þagað lengur.
Nokkrir strákar skrifa í Velvak-
anda hinn 3. febrúar sl. og kvarta
yfir breyttum tíma á þáttunum
með Tomma og Jenna. Ég er þeim
innilega sammála. Á mínu heimili
missa flestir af þeim, því þetta er
sá tími þegar maður er að borða
og sumir ókomnir heim. Ef þetta
hentar svona vel fyrir litlu börnin,
því er þá ekki hægt að endursýna
þáttinn eftir fréttir og veður-
fregnir?
Nú er farið að gagnrýna þætti
Dave Allens og þeir sem það gera
kalla sig kristna og skrifa sem
umboðsmenn kristinna manna. Ég
er kristin og hef þó mikla ánægju
af þessum þáttum. Þeir sem ekki
þola að hlusta á þennan húmorista
ættu bara að slökkva á tækjum
sínum í staðinn fyrir að sitja und-
ir þessum bröndurum og ergja
fyrst sjálfa sig og síðan alþjóð
með sínum leiðinlegu skrifum.
í Velvakanda annan febrúar
skrifar dönsk kona frá Danmörku
um hundahald. Þegar hún hefur
lýst óþrifunum eftir hundana, seg-
ir hún að ef eigendur hunda yrðu
látnir greiða háan hundaskatt,
færi ástin á hundinum að dvína.
vera skilyrði fyrir veittum leyfum
til hundahalds. Það er reynsla
okkar. Fyrir rúmu ári var ég í
Ilanmörku, bæði í Kaupmanna-
höfn og víðar, og fannst mér
hundahald þar til fyrirmyndar,
ekki sá ég lausa hunda þar þennan
tíma, og óþrifin varð ég ekki vör
við — gekk ég þó víða.
Hundarnir virtust flestir vel
siðaðir og hlýðnir. Ef banna á
hunda, því þá ekki að banna líka
hesta — stærri eru óþrifin frá
þeim. Og í framhaldi af því mætti
banna fólk sem hendir rusli út um
allt og brýtur flöskur á gangstétt-
um. Og því ekki að banna bíla sem
menga andrúmsloftið, — svona
mætti lengi telja. Bðnn bæta ekki,
reyna þarf að finna skynsamlega
lausn mála, svo sem flestir geti
orðið ánægðir. Kona í Garðabæ
Popphljómsveit
á Listahátíð:
Duran
Duran
— en ekki Dire Straits
Til Velvakanda!
Við erum sammála þeim
mörgu sem skrifað hafa og
beðið um Duran Duran á
Listahátíð. Um daginn var
grein í Járnsíðunni um þær
hljómsveitir sem kæmu
sterklega til greina á Lista-
hátíð. Onnur þeirra var Dur-
an Duran en hin var Dire
Straits. Við urðum alveg orð-
lausar þegar við sáum að
Dire Straits kæmi til greina
— það hefur ekkert verið
beðið um þá í blöðunum og
þeir hafa heldur ekkert verið
á vinsældalistum í lengri
tíma.
Ef forráðamenn Listahá-
tíðar vilja fá hljómsveit sem
hefur örugga aðsókn, þá
mælum við með Duran Dur-
an, og hvetjum forráðamenn
Listahátíðar til að gera upp
hug sinn, því það er ekki auð-
velt að fá svona hljómsveitir
hingað. Og að lokum viljum
við senda öllum Duran Dur-
an-aðdáendum bestu kveðjur
með von um að draumurinn
rætist.
7 stelpur
Hver var Helgi
Guðmundsson?
Þannig er það kannski í Dan-
mörku, og þó. Við eigum hund og
borgum af honum skatt og ekki
hefur ástin á honum dvínað. Hann
veitir okkur ánægju og við honum.
Hundur sem alinn er upp í bæ eða
borg og á þar sína fjölskyldu, sem
hugsar vel um hann, er ánægður.
Hunda á ekki að banna, heldur á
að setja reglur og eftirlit sem
greitt væri með hundaskattinum.
Hlýðninámskeið fyrir hundaeig-
endur og hundana þeirra ætti að
Játvarður Jökull Júlíusson
Miðjanesi A-Barðastrandarsýslu
óskaði eftir að koma þessari
fyrirspurn á framfæri vegna
bókar sem hann hefur í smíðum:
Hver var Helgi Guðmundsson,
búfræðingur 1898?
Hér með er leitað upplýsinga
um búfræðing sem útskrifaðist
vorið 1898 frá skólanum í Ólafs-
dal, Helga Guðmundsson að
nafni.
Hann lauk námi eftir 1 árs
(vetrar?) veru í skólanum, með
aðaleinkunn 5,41.
Hvaðan var Helgi? Hverra
manna? Hvenær fæddur? Hver
varð ævi hans?
Viti einhverjir skil á Helga
Guðmundssyni búfræðingi, niðj-
ar hans, aðrir ættingjar, sýsl-
ungar eða fræðimenn, eru þeir
beðnir umfram allt að láta mig
vita.