Morgunblaðið - 18.02.1984, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
Heimsókn í
gistihúsið
Bláa lónið
í Svartsengi
Á leið úr lóninu eftir malarstíg í gegnum hraunið.
1
lónið fyrir
tilviljun
— fímm dögum síðar byrjaði ég
að byggja þar, segir Þórður Stefánsson,
hótelstjóri nýjasta hótels á íslandi
„ÉG VAR lengi búinn að ala með
mér draum um að byggja mótei í
nágrenni Reykjavíkur og hafði
leitað hófanna í Hafnarfirði,
Mosfellssveit og víðar. Svo fór ég
einu sinni hérna í lónið fyrir til-
viljun — og fimm dögum síðar var
ég búinn að fá byggingarleyfi.
Fimm mánuðum eftir það var
gistihúsið komið upp og opnað
formlega 11. nóvember í haust,“
sagði Þórður Stefánsson, hótel-
stjóri í Bláa lóninu í Svartsengi,
þegar Morgunblaðsmenn áttu leið
þar um á dögunum.
Þar hefur risið vistlegt gistihús,
byggt og hannað af Húsasmiðj-
unni, steinsnar frá „bláa lóninu“
svokallaða við orkuveituna. Út í
það rennur afgangsvatn virkjun-
arinnar, svo kísilríkt, að á það
slær bláum lit. Vatnið er þægilega
heitt til baða — passlegt þrjú
hundruð daga á ári, sagði Þórður
— og þykir hafa þá náttúru, að
exemsjúklingar (psoriasis) fái í
því bót meina sinna á tiltölulega
skömmum tíma. Þeir maka á sig
leirnum, sem er í þykku lagi á
botni lónsins. Ekkert mælir gegn
því að allir aðrir svamli í lóninu,
vatnið er sífellt tært og hreint og í
því enginn óþverri.
Við lónið er baðhús með tveimur
sturtuklefum, annar ætlaður kon-
um, hinn körlum. í það geta allir
sótt endurgjaldslaust og þegar
tímar líða hefur hótelstjórinn
áhuga á að koma upp kaffiaðstöðu
í einu horni hússins, svo hægt sé
að hressa sig að loknum heilsu-
böðum.
Tignarleg fegurð Svartsengis
naut sín vel í sólskininu þegar
Morgunblaðsmenn busluðu í lón-
inu. „Þetta er fínt,“ sagði Þórður,
„en það er fleira matur en feitt ket
— það má til dæmis vera á skíðum
í brekkum Svartsengisfjalls eða á
gönguskíðum hér um nágrennið.
Svo er hægt að fara á vélsleða eft-
ir rennisléttum veginum meðfram
pípunum inn í Sandgerði eða
Keflavík. Hér er ýmislegt við að
vera.“
Þórður hefur fengist við veit-
ingamennsku og framreiðslustörf
í hartnær aldarfjórðung, byrjaði
15 ára gamall á Hótel Borg 1960.
Hann hefur verið þjónn á ýmsum
veitingahúsum Reykjavíkur og
lærði á sínum tíma hótelrekstur í
Þýskalandi. Hótelið hefur hann
byggt að mestu fyrir „eigið fé og
bankanna en Framkvæmdastofn-
un aðstoðaði mig einnig lítillega.
Mér hefur hins vegar ekki enn tek-
ist að fá framlag frá Ferðamála-
ráði, sem yfirleitt fjármagnar
framkvæmdir af þessu tagi 80%.
Ég lagði í þetta íbúð, sem ég átti
inní Reykjavík — svo að nú bý ég
hér og kann því mjög vel. En ég
get þó komist í húsaskjól í höfuð-
borginni ef allt fyllist hér.“
— Hvaða fólk gistir svo Bláa
lónið?
„Allskonar fólk — að vísu hafa
psoriasis-sjúklingarnir verið mjög
sjaldséðir. Þetta er opið almenn-
ingi allan sólarhringinn, hvort
heldur fólk vill koma hér í miðri
viku, um helgar eða í sunnudags-
kaffið. Ég hef verið með fjöl-
skyldufólk og einstaklinga, hér
Þórður Stefánsson hótelstjóri: lónið
opið ollum og í því er passlegt hita-
stig 300 daga á ári.
MorgunblaóiA/KrUitján Örn Klíasson.
hafa verið haldin stórafmæli og
fjölskylduveislur."
Þegar tækifæri gefst er hug-
mynd Þórðar að byggja glerhús
með gróðri og nuddpottum framan
við hótelbygginguna og þá ættu
gestir ekki einu sinni að þurfa að
ganga þá ca. 200 metra, sem eru
frá húsinu að lóninu. Starfsmenn í
vetur eru þrír en þeim fjölgar
væntanlega eitthvað þegar vorar
enda eru þegar farnar að berast
pantanir fyrir sumarið frá útlönd-
um. „Það þarf ekki marga
starfsmenn," sagði hann. „í hverju
herbergi er ísskápur með gos-
drykkjum, hvert herbergi er með
sjónvarpi — sem hægt er að sjá í
kvikmyndir af myndbandakerfi
hússins eða Reykjavíkursjónvarp-
ið — og sturta er sömuleiðis í
hverju herbergi."
— Og kostnaðurinn?
„Sólarhringurinn kostar 1000
krónur og þá er matur innifalinn.
Maturinn sér kostar 600 krónur á
sólarhring og þá er ég að tala um
morgunverð, hádegisverð, síðdeg-
iskaffi, kvöldverð og kvöldkaffi.
Ég held að þetta sé alveg sæmi-
lega sloppið miðað við að ríkis-
reiknaður kostnaður á t.d. með-
ferðarstofnunum SÁÁ og Vífils-
stöðum er um sex þúsund krónur á
sólarhring. Ef fólk dvelur eitthvað
lengur en nótt eða helgi, þá er
venjan að veita afslátt," sagði
Þórður Stefánsson. „Það er
kannski rétt að taka fram, að hér
er enginn matseðill, frekar en á
öðrum heimilum, eins og við vilj-
um gjarnan að þetta sé. Það þýðir
auðvitað, að það er eins gott fyrir
okkur að vera með góðan mat —
og hingað til hefur ekki verið
kvartað."
Herbergi í Bláa lóninu eru óvenju glæsileg, öll með baði og nuddsturtu,
sjónvarpi og ísskáp.
Matsalurinn er í miðju húsinu. Hér sér út úr eystri ganginum meðfram
afgreiðsluborði og inn í matsalinn.
||| | ~ timrnmt ,
I ■
Svamlað í bláa lóninu — leirnum makað á búkinn sem endurnærist.
í vistlegum matsal, þar sem enginn matseðill er — enda eins gott að
maturinn sé góður, segir hótelstjórinn.