Morgunblaðið - 18.02.1984, Síða 48
HLEKKUR í HEIMSKEÐJU
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Skaut tveimur skotum úr haglabyssu að mönnum og bifreið:
Vopnaður maður rændi
1840 þúsundum írá ÁTVR
Stal leigubifreið og ógnaði bílstjóranum með byssunni
í GÆKKVÖLDI var framiA vopnad rán við næturhólf Austurhæjarútibús Landshanka íslands við Laugaveg 77.
Ræninginn hafði á brott með sér um 1.840 þúsund krónur — söluinnkomu dagsins í Áfengis- og tóbaksverzlun
ríkisins við Lindargötu. Kæninginn skaut tveimur skotum úr haglabyssu þegar hann neyddi starfsmann
áfengisverzlunarinnar til þess að láta féð af hendi. Áður hafði ræninginn hótað leigubílstjóra með haglabyss-
unni, látið hann aka sér út í Nauthólsvík. I'ar rak ræninginn bflstjórann úr bifreiðinni og ók á brott. Skömmu
síðar átti ránið sér stað fyrir utan útibú Landsbankans.
Beindi byssunni að
hnakka bflstjórans
Á áttunda tímanum í gærkvöldi
tók Örn Reynis Pétursson, leigubíl-
stjóri á Hreyfli á bifreiðinni Y-320,
farþega upp í bifreið sína við Hótel
Sögu. Farþeginn bað hann að aka
sem leið lá að Hótel Loftleiðum, en
skammt þar frá tók maðurinn
haglabyssu, sem sagað hafði verið
framan af og hann hafði falið á
sér, og beindi að hnakka bílstjór-
ans. Hann skipaði honum að aka
áfram út í Nauthólsvík. Þar skip-
aði ræninginn bílstjóranum að
fara úr bifreiðinni og ók svo á
brott. Bílstjórinn hljóp að Hótel
Loftleiðum og tilkynnti lögregl-
unni ránið.
„Ég vil fá pokann,
sem þú ert með“
Það var síðan upp úr klukkan
19.30 að ránið var framið fyrir ut-
an útibú Landsbankans við Lauga-
veg 77. Samkvæmt lýsingu Ginars
Ólafssonar, útsölustjóra Áfengis-
og tókbaksverzlunar ríkisins við
Lindargötu, voru tveir starfsmenn
hans, þeir Pálmi Einarsson og
Konráð Konráðsson, á leið með af-
rakstur sölu dagsins, um það bil
1.840 þúsund krónur, í næturhólf
bankans. Hann lýsti atburðarás-
inni svo: „Piltarnir óku upp að úti-
búinu og lögðu bílnum við gang-
stéttina eins og venjulega. Konráð
fór með féð í þar til gerðum poka
að hólfinu með lykla að því i hönd-
unum. Kom þá maður vopnaður
haglabyssu, málaður í andliti, og
skaut á bifreiðina. Konráð sagði þá
við manninn: „Hvað, ertu brjálað-
ur?“ Ræninginn svaraði: „Ég vil fá
pokann, sem þú ert með!“ Konráð
sneri sér þá undan og ætlaði að
forða sér, en ræninginn mundaði
þá byssuna og sló til hans. Konráð
setti hendina fyrir sig sér til varn-
ar, en þá hljóp af annað skot. Að
sjálfsögðu lét Konráð peningapok-
ann af hendi." Einar tók fram í
lokin, að lýsingu þessa hefði hann
frá öðrum aðila. Þá bað Einar um
að fram kæmi að forstjóri ÁTVR
hefði fyrir mörgum árum fyrir-
skipað að tveir menn færu ætíð
saman með innlegg í banka í ör-
yggisskyni.
Ræninginn hvarf síðan á brott í
leigubifreiðinni, sem hann hafði
rænt. Bifreiðin, sem er af Peug-
eot-gerð, fannst um klukkan hálf-
tiu í gærkvöldi í porti við Braut-
arholt 2. Hún var yfirgefin og
haglabyssan fannst hvergi. Víðtæk
leit fór fram að ræningjanum, en
hann var ófundinn þegar Mbl. fór í
prentun í nótt.
Ræninginn talinn
35—40 ára gamall
Samkvæmt heimildum Mbl. er
talið að ræninginn sé 35—40 ára
gamall. Hann er dökkhærður með
meðalsítt hár, og yfirskegg, senni-
lega falskt. Þá var maðurinn með
hökutopp en talið að hann hafi
málað hann á sig. Hann var í
drapplitaðri blússu, í dökkum bux-
um og með dökka húfu á höfði.
Talið er að maðurinn sé nokkuð
hávaxinn, 180—185 sentimetrar á
hæð.
Vopnaðir lögreglumenn vík-
ingasveitanna kallaðir út
í fyrrinótt var framið innbrot í
verzlunina Vesturröst og hagla-
byssu stolið þaðan. Líklegt mun
talið, að sami maður hafi verið að
verki og rændi fé áfengisverzlun-
arinnar. Allt tiltækt lögreglulið
var kallað út í gærkvöldi. Vík-
ingasveit lögreglunnar var kölluð
út, svo og sporhundur Hjálpar-
sveitar skáta í Hafnarfirði. Hann
var látinn þefa hugsanlega slóð
ræningjans og fylgdu vopnaðir lög-
reglumenn víkingasveitarinnar í
kjölfarið.
Volkswagenbifreið starfsmanna ÁTVR við Lindargötu, sem ræninginn skaut á, og sprengdi
hjólharða. Kins og sjá má á myndinni eru skotgöt á bretti bifreiðarinnar eftir höglin.
Stolna leigubifreiðin, sem ræninginn notaði á flóttanum, fannst yfirgefln í porti í Brautar-
holti seint í gærkvöldi. Morgunbia«i«/Júiíus.
Bókaforlög
hóta stöðvun
viðskipta við
bókaverzlanir
FJÖGIIR bókaforlög, sem standa
að bókaklúbbnum Veröld, hafa
ákveðið að stöðva öll viðskipti við
þær bókaverzlanir, sem endur-
senda tuttugu bækur forlaganna,
en þær voru boðnar á sérstökum
afsláttarkjörum hjá Veröld í
janúar sl.
Eins og fram hefur komið í
Mbl., ákvað Félag bóksala að
endursenda umræddar bækur á
þeim forsendum að þær væru
boðnar á of lágu verði miðað
við samkomulag, sem aðilar
höfðu gert. Bókaútgáfurnar
fjórar eru Iðunn, Vaka, Fjölvi
og Setberg.
Sjá nánar á bls. 27.
Samkomulagsdrög rædd
á formannaráðstefnu ASÍ
ASÍ og VSÍ sátu á samningafundum í gær og boðað hefur
verið til nýs fundar í dag eftir hádegið. Erfitt var að fá fregnir
af fundinum, en samningaviðræöur eru í fullum gangi. For-
mannaráðstefna ASÍ verður á sunnudag og búist er við að
samninganefnd ASÍ muni leggja fyrir ráðstefnuna þau sam-
komulagsdrög, sem þá kunna að liggja fyrir og hugur þeirra
kannaður til þeirra.
Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar, sagði það
sína skoðun að semja bæri til
stutts tíma, ástandið í þjóðmál-
um væri það óljóst að allar for-
sendur samninga gætu verið
breyttar innan skamms. Eins og
kunnugt er hafa verið uppi
raddir um það að Dagsbrún
dragi sig út úr samfloti með
ASÍ, en þeir telja sig hafa dreg-
ist aftur úr í kjörum miðað við
sambærilega hópa. Þröstur
sagði ekkert ákveðið með það, en
þeir héldu þeim möguleika
opnum.
Þá var einnig fundur með
BSRB og ríkisvaldinu í gær þar
sem rædd voru ýmis atriði í nú-
verandi kjarasamningi önnur en
beinar launahækkanir. Næsti
fundur verður á mánudag.
Tveggja tíma fundur var í ÍS-
AL-deilunni og var næsti fundur
einnig boðaður á mánudag. Beð-
ið er eftir úrslitum úr samn-
ingaviðræðum ASf og VSÍ og
formannafundi ASÍ á sunnudag
Á sunnudagsmorguninn fyrir
formannafundinn verður einnig
fundur í Verkamannasamband-
inu og miðstjórn ASf.
Þá var einnig fundur í launa-
málaráði BHM í gærkveidi, þar
sem tilboð ríkisins var rætt.
Ekki var hægt að fá fregnir af
fundinum áður en Morgunblaðið
fór í prentun.