Morgunblaðið - 19.02.1984, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.02.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 61 Lentu í rafmagns- byl Osló, 16. febrúar. AP. Frá frétUritara Morgunblaósins, Jan Erik Lauré. UNDARLEGT atvik henti fyrir skömmu fjóra menn, sem höfðu verið að fiska í gegnum ís við Norður-Noreg. I>eir lentu í hagl- éli, sem aðeins stóð stutta stund, en uppgötvuðu síðan, að líkami þeirra var orðin rafmagnaður frá toppi til táar. Kinn mannanna sagði, að það hefði í raun og veru tekið að neista ofan á höfði sér. Er hann tók af sér húfuna, stóð hárið lóðrétt upp i loftið. Það er álit veðurfræðinga, að mennirnir hafi lent á spennu- svæði, sem hafi verið nógu rafmagnað til þess, að það yrði þar útleiðsla og eldingar. Þeg- ar stór haglkorn falla niður með miklum hraða, hefur hreyfingin sömu áhrif og raf- magnshreyfill. Vísnakvöld á Hótel Borg Á AÐALFUNDI Vísnavina þann 9. febrúar sl. kom fram að 1700 manns sóttu vísnakvöld félagsins á liðnu ári í Þjóðleikhúskjallaranum. Var ákveðið að gera þá Ása í Bæ og Ás- geir Ingvarsson að heiðursfélögum Vísnavina. Ennfremur var ákveðið að lækka félagsgjöld, með tilliti til lækkandi verðbólgu, en félagsmenn fá afslátt á vísnakvöldin. Starfsemi Vísnavina hefur nú verið flutt úr Þjóðleikhúskjallar- anum að Hótel Borg og verður næsta vísnakvöld haldið þar þann 20. febrúar. Þá koma fram m.a. þeir Sverrir Stormsker, Kristinn Guðmundsson og atriði úr söng- leiknum Rocky Horror verða flutt. Úr fréttatilkynningu. Hið íslenska sjóréttarfélag: Fræðslu- fundur HIÐ ÍSLENSKA Sjóréttarfélag heldur fræðslufund nk. miðvikudag kl. 17.00 í stofu 103 í Lögbergi. Framsögumaður verður Hjálmar R. Bárðarson og flytur hann erindi sem nefnist „Alþjóðasiglingarmálastofn- unin, IMO“. Að loknu framsöguerindi verða almennar umræður. Fundurinn er opinn félagsmönnum, sem og öðr- um áhugamönnum um sjórétt og siglingarmálefni. (íl, frétUCilkynninpi.) Teppi Gæði í hverjum þræði. Komið og skoðið hin vinsælu BMK ullarteppi. Afgreiðslutími: 2—3 vikur. \ THE HEART I \ OFAGOOD / \ CARPET / Teppaverzlun Friðrik Bertelsen h.f., Síöumúla 23, R. Sími: 86266. í tilefni konudagsins bjóðum við upp á nýjan, stórkostlegan sérréttamatseðil Forréttir Andapaté meö portvínssósu Skötuselur og rækjur i Vermouth-hlaupi meö kryddjurtasósu. Aöalrettir Smokkfiskur í japanskri saké-sósu Hreindýrasteik með týtuberjasósu Eftirréttir Vanilluterta meö valhnetukjörnum eða Rúsinuis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.