Morgunblaðið - 19.02.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.02.1984, Blaðsíða 14
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 A íslandi hefur það lengst af verið trú manna að draugar og aftur- göngur birtist helst í myrkri skammdegis- ins, þegar umhverfið skapar hið ákjósan- legasta athafnasvið fyrir slíkar forynjur og setur mönnunum stefnumörk, sem liggja víðsfjarri venjulegum raunveru- leika. Til eru þó frásagnir af draugum sem brugðið hafa á leik á öðrum árstímum enda viðurkennd sannindi, að í gamla daga hafi fólkið í landinu ekki lifað nema að hálfu leyti í hinum mennska hvers- dagsheimi, hvort heldur var vetur, sumar, vor eða haust. í strjálbýlinu og fásinninu var ekki alltaf hægt um vik að greina á milli hvort atburðir eða voðaverk voru unnin af mönnum eða draugum, eins og fram kemur í frásögn þeirri sem hér fer á eftir. Hver skrattinn fór heim túnið? Frá dularfullu andláti séra Þórðar á Grenjaðarstað Seinni hluta sumars, árið 1741, bárust þau tíðindi norðan frá Grenjaðarstað, að sðknarprestur- inn þar, séra Þórður Guðmunds- son, hafi fundist limlestur undir rúmi sínu í svefnhúsi á prestssetr- inu. Lausafregnir hermdu einnig að vera ein, afskræmilega búin, hafi komið að Grenjaðarstað, er fólk var ekki annað heima á staðn- um en prestshjónin og unglings- piltur. Hafi þessi óboðni gestur fundið prest við bæjardyr, elt hann í svefnhúsið undir baðstof- unni og rekið hurðina í lás á eftir sér. Er hann var á brottu hafi prestur fundist dauður með þeim hætti er áður er lýst. Nokkru eftir jarðarför séra Þórðar berast enn váleg tíðindi frá Grenjaðarstað, er ráðsmaður prests finnst látinn í rúmi sínu, og mun lát hans hafa borið að með dularfullum hætti. Oft hefur orðið vart aðsóknar af minna tilefni í myrkfælnu fásinni íslenskra sveita og brátt kvisaðist út sá orðrómur, að draugur hefði valdið dauða prests og ráðsmanns hans, og hefðu óvildarmenn séra Þórðar sent hann. En hverfum um stund aftur í tímann og kynnumst nánar sögusviðinu og þeim er helst koma við sögu þessa. Lærður klerkur Heimilisfólkið að Grenjaðarstað hefur lokið kvöldverði og húsbónd- inn gengur til svefnstofu sinnar, sem liggur inn af göngunum, und- ir baðstofunni. Við gluggann er óheflað borð og þar sest klerkur við skriftir. Hann er maður smár vexti, en af fasi hans leynir sér ekki, að þar fer skapbráður maður enda stendur sóknarbörnum hans nokkur ógn af honum. En séra Þórður Guðmundsson hefur um annað að hugsa þessa stundina en deilur og illindi við sveitunga sína. Biskupsembættið á Hólum hefur losnað við lát Steins biskups Jónssonar og hverjum ætti svo sem að standa það embætti nær en honum, Grenjaðarstaðarprest- inum, sem var lærðastur allra preláta er til greina komu og auk þess á besta aldri, aðeins 37 ára gamall. Séra Þórður hefur því ákveðið að leita hófanna um að sér verði veitt embættið og skrifar bréf til helstu embættismanna landsins um meðmæli sér til handa. Við þessa iðju situr klerkur fram á nótt og er hann tekur á sig náðir er allt heimilisfólk í fasta- svefni. Því verður ekki mótmælt, að séra Þórður var einn lærðasti maður sinnar samtíðar og svo töm var honum latnesk tunga að hann mælti á hana eins og móðurmál sitt. Séra Þórður var kominn af þekktri gáfumannaætt í marga ættliði, sonur séra Guðmundar Vernharðssonar í Selárdal og konu hans Margrétar Arngríms- dóttur Jónssonar á ökrum og Sæl- ingsdalstungu, Arngrímssonar Vídalín, hins lærða, á Melstað. Bróðir séra Þórðar var séra Þor- lákur í Selárdal, faðir þjóðskálds- ins, séra Jóns á Bægisá. Séra Þórður var fæddur á Suð- ureyri við Tálknafjörð árið 1703. Hann stundaði nám í Skálholts- skóla og útskrifaðist þaðan 1724. Tveim árum síðar sigldi hann til Kaupmannahafnar og tók þar embættispróf í guðfræði árið 1728, um leið og Finnur biskup Jónsson, og fengu báðir „laudabilis", eða fyrstu einkunn. Margir norskir og danskir piltar gengu þá einnig undir próf í þetta skipti, en enginn fékk svo háa einkunn, nema þeir landar Þórður og Finnur. Einn lærðasti og mest metni kennari við Hafnarháskóla á þeim tíma, prófessor Steenbuch, er sagður hafa mælt til þeirra félaga á latn- esku að prófi loknu: „Alltaf eru þið íslendingarir hlutskarpari en vor- ir landar.“ Náin og kær vinátta var alla tíð milli séra Þórðar og dr. Finns biskups, sem þá var enn prestur í Reykholti, frá því að þeir höfðu verið félagar á Hafnarárunum og tekið prófið saman. Þegar dr. Finnur skrifaði síðar hina miklu kirkjusögu sína sendi hann séra Þórði fyrsta handritið til yfir- lestrar og bað hann að segja sér hvernig honum litist á það og sýn- ir þetta hversu mikið traust dr. Finnur bar til þessa vinar síns. Þegar séra Þórður endursendi dr. Finni handritið, skrifaði hann um- sögn sína með verkinu með einni setningu: „Það er ekki von á því betra af þér“, og var þetta auðvit- að hið mesta hól sem séra Þórður gat borið á vin sinn. Séra Þórður kom út frá Kaup- mannahöfn vorið 1730, en vígðist ekki fyrr en tveimur árum síðar kapelán til séra Hjalta prófasts Þorsteinssonar í Vatnsfirði, og kvæntist þá Halldóru dóttur hans. Séra Þórður var tvö ár kapelán tengdaföður síns, en þá losnaði Grenjaðarstaðarsókn við lát séra Magnúsar Markússonar. Grenjað- arstaður var keppikefli allra guð- fræðinga og presta fyrr á öldum, og eitt af þeim sex brauðum hér á landi, sem hans hátign Danakon- ungur veitti sjálfur, og aldrei var veitt nema lærðustu mönnum og hefðar prelátum. Auk séra Þórðar sóttu 10 eða 11 aðrir um staðinn, en konungur lét séra Þórð, hinn gáfaða og lærða kapelán í Vatns- firði, ganga fyrir öllum og veitti honum brauðið. Það var í desem- ber 1734 og flutti séra Þórður ásamt konu sinni Halldóru þangað austur vorið eftir. Deilur og illindi Nú skyldi maður ætla, að slíkum lærdóms- og gáfumanni sem séra Þórði Guðmundssyni væri í lófa lagið að verða sér úti um skapleg meðmæli frá embættismönnum, en sú varð ekki raunin. Meðmælin fékk hann ýmist engin eða ill. Ævisögur íslenskra presta frá fyrri öldum geyma þess mörg dæmi að þeim hefur veist erfitt að halda kjóli og kalli. Oftast varð það „fleinninn í holdinu", sem Páll postuli kallaði svo: hórdómur og hjúskaparbrot. Hitt var miklu fágætara, að klerkar væru dregnir úr hempunni fyrir óeirðar sakir, sveitarkrits eða óvinsælda við sóknarbörnin. Séra Þórður Guð- mundsson á Grenjaðarstað týndi að vísu aldrei hempu sinni fyrir þessar sakir, en á meðan hann var lífs og raunar einnig að honum látnum vorú bornar á hann ákær- ur af ýmsu tagi. Séra Þórður mun ekki hafa þótt friðsamur maður í sóknum sínum og átti hann í ill- indum og útistöðum við fjölmarga sveitunga sína. Þá má einnig ráða af frásögnum, að hold séra Þórðar hafi ekki með öllu verið laust við fleininn. Eitt sinn var séra Þórður stadd- ur í samkvæmi og bar þá svo til, að einn kunningi hans bað mann að kveikja fyrir sig í tóbakspípu. Þegar hann hafði gert það og rétti manninum pípuna aftur, sagði séra Þórður við þann sem við tók: „Það er mikið að þú skulir geta tekið við pípunni fram úr þjófn- um.“ — En þá svaraði sá, sem í pípunni kveikti: „Ekki er betra að taka við henni fram úr hórkarlin- um.“ Prestur þykktist við og skildu þeir i styttingi. Mikill þústur var milli þeirra klerka, séra Þorleifs Skaftasonar í Múla og séra Þórðar, en séra Þor- leifur fór hraklegum orðum um séra Þórð sem biskupsefni og Grenjaðarstaðarklerkurinn svar- aði með því að flimta miður góð- gjarnlega um barneign Jórunnar, prestsdóttur í Múla. Þá var uppi kvittur um, að séra Þórður færi illa með konu sína og m.a. gekk sá orðrómur um sveitina, að hann hafi eitt sinn verið farinn að draga saman eldivið í köst og hót- að að brenna þar konu sína á báli. Sakaður var hann og um að hneigjast til Kalvínstrúar og þótti það síst vera biskupsefninu til framdráttar. Til er lýsing á séra Þórði, svohljóðandi: „Hann var lít- ill vexti, vel gáfaður og vel lærður, — harðsinna, fálátur og óþýður oftast, — gjörðist stórbrotinn og drykkjugjarn á seinni árum og var lítt vinsæll af sóknarfólki sínu, — þótti og stundum óþarflega fram- hleypinn." Það fær þvf ekki dulist, að í lunderni séra Þórðar Guðmunds- sonar hefur gætt nokkurs geðofsa og óeirðar í sálinni og er það ef- laust geðbrestum hans að kenna, harðsinni hans og erfiðu lundar- fari, og ef til vill einnig vegna drykkjuskapar, að honum var ekki veitt biskupsembættið á Hólum árið 1740. Grái drjólinn kemur í heimsókn Dökk óveðursskýin hrönnuðust upp yfir Grenjaðarstað óg var þess nú skammt að bíða að til tíð- inda drægi, enda hafði séra Þórð- ur safnað glóðum elds að höfði sér með illindum sínum og þjösnaskap við aðra menn. Sama haustið og séra Þórður sótti um biskupstign- ina á Hólum reið hann í Græna- vatnssauðarétt og komst þar í ill- deilu við bónda einn harðan og óvæginn, og skildu þeir með illind- um og höfðu í hótunum hvor við annan. Um svipað leyti lenti klerkur einnig í deilum og þrasi við einn nágranna sinn, en séra Þórður hafði þann mann grunað- an um það „ódæði“, að hafa getið barn með systur hans, sem var á vist með honum á Grenjaðarstað. Þessir tveir menn þóttust því eiga harma að hefna á presti og voru óspart nefndir í sambandi við hinn glæpsamlega verknað, er séra Þórður var myrtur sumarið eftir og nú skal vikið að. Það var dag einn á engjaslætti sumarið 1741, að hjú séra Þórðar voru að venju við heyskap á engj- um, en prestur, kona hans og börn voru heima og auk þeirra stálpað- ur léttadrengur. Þegar leið á dag- inn fór drengurinn að berja fisk fram á steini, í dimmu skoti í bæj- argöngunum. Skömmu síðar gekk prestur fram hjá honum til dyra, en áður en hann komst alla leið út, kom hann aftur hlaupandi inn göngin, sneri að svefnhýsi sínu og hvarf þar inn. Á eftir honum hljóp „dólgur nokkur digur, grár og loð- inn sem sauðargæra", en um leið og hann skaust fram hjá drengn- um, fann hann af honum „illan þef“, eins og drengurinn bar við siðar, en ekki kvaðst hann hafa séð sköpulag á honum svo lýst yrði, enda varð piltur allhræddur við sjón þessa. Þessi „dólgur", sem svo var ka.ll- aður í samtíma frásögnum, komst að svefnherbergisdyrunum áður en presti tækist að loka á eftir sér, ruddist inn á eftir presti og læsti á eftir sér. Svefnhýsi prests var undir baðstofuloftinu, en madama Halldóra sat uppi á loftinu og var að sauma. Hún heyrði nú ógurleg hljóð og vein til prestsins niðri í herberginu og spratt á fætur, hljóp í ofboði ofan og að svefn- HÁR- VER sf. Hárgreiðslu- stofan. Barónsstíg 18B. Símí 20066. Hestamannafélagið Gustur: Fræðslu- fundur Hestamannafélagið Gustur heldur fræðslufund í Félagsheimili Kópa- vogs nk. mánudag kl. 20.30. A fundinum ræðir Páll Agnar Pálsson, yfirdýralæknir, um krankleika í hrossum í tengslum við fóðurgjöf og aðra vetrarmeð- ferð. Jón Sigurðsson, hrossabóndi í Skollagróf, flytur síðan erindi sitt sem hann nefnir „Spáð í von- ina“. Að því loknu verða fyrir- spurnir og umræður. Málverkauppboð veröur aö Hótel Sögu mánudaginn 5. mars nk. kl. 20.30. Myndirnar veröa til sýnis sunnudag 4. mars í Breiðfirðingabúð v. Skólavöröu- stíg 6, frá kl. 14—18 og aö Hótel Sögu mánudaginn 5. mars frá kl. 13—18. V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.