Morgunblaðið - 19.02.1984, Page 21

Morgunblaðið - 19.02.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 69 ekki koma til greina í hlutverkið og skömmu síðar, þegar henni var tilkynnt að hún þyrfti ekki að koma framar til vinnu, fannst henni heimur sinn hrynja saman. Hún var þá aðeins 17 ára gömul. Umboðsmaður kemur til sögunnar Edward Judson hét maður, sem fékkst við allt mögulegt viðvíkj- andi kvikmyndum, þar á meðal að finna leikurum hlutverk. Lítið var vitað um fortíð þessa manns en hann virtist vera einn af þessum ríku glaumgosum. Hann bauð nú foreldrum Ritu að gerast umboðsmaður hennar og eitt fyrsta verk hans varð að breyta eftirnafni hennar í Hay- worth, notaði þar nafn móðurinn- ar að viðbættu y. Leikkonan Rita Hayworth var komin fram á sjón- arsviðið. En það breyttist fleira en láöur,.*.. uðurinn taldi tír-.r „„ska útlitsins liðinn, ..tu fékk aftur eigin lit. Hon- um tókst að koma stúlkunni að í nokkrum kvikmyndum árið 1936. Fljótlega var samband um- boðsmannsins og ungu stúlkunnar orðið náið, foreldrunum var það mikið á móti skapi og töldu að hinn fullorðni maður hefði not- fært sér æsku og reynsluleysi dóttur þeirra. Þau fengu þó ekkert að gert og Ed Judson og Rita Hay- worth gengu í hjónaband árið 1937, hún var þá á nítjánda ári en hann fertugur. Ed Judson lagði sig fram við að koma hinni ungu konu á framfæri, hann fór með hana á þekkta skemmtistaði þar sem vænta mátti að tekið væri eft- ir þeim, svo þeirra væri getið í slúðurdálkum blaðanna og birtar af þeim myndir. Eiginmaðurinn „•.jornaði nú alveg lífi Ritu, tók þar við hlutverki föður hennar, hún lét sér það vel líka, að láta segja sér fyrir um hvaða fatnaði hún ætti að klæðast auk heldur annars. Leikkonan treysti eigin- manni sínum í hvívetna þar til hún komst að því, að hún var þriðja eiginkona hans, honum hafði láðst að geta um fyrri hjóna- bönd. Ed Judson réði blaða- fulltrúa til að koma Ritu á fram- færi við virt tímarit, til að höfð væru við hana viðtöl. Það var ekki síst eftir að viðtal og myndir birt- ust í hinu þekkta tímariti Look að farið var að taka eftir henni. Hún komst að við Columbia-kvik- myndafélagið árið 1938 og fyrsta Rita Hayworth með Ed Judson, fyrsta eiginmanninum. mikilsverða myndin var: The Strawberry Blonde, en í þeirri mynd kom hún fram ljóshærð. En stóra stundin kom þegar hún var ráðin til að leika í myndinni Blood and Sand, sem Twentieth Century Fox félagið lét gera með Darryl Zanuck í fyrirsvari, en það var einmitt hann sem hafnaði henni i Ramona forðum daga. Næsta mynd var You’ll Never Get Rich, þar sem hún dansaði á móti Fred Astaire, sem þá (og lengi síð- ar) þótti fremstur dansara í kvikmyndum. Fred Astaire lýsti því síðar yfir að enginn af mót- dönsurum sínum hefði verið Ritu Hayworth fremri, ekki einu sinni Ginger Rogers. Það var birt grein um Ritu Hay- worth í Life-tímaritinu árið 1941 og myndin af henni, sem skrýddi forsíðuna, fór víða. Á myndinni var hún klædd flegnum hvítum satin-náttkjól með svartri blúndu og varð myndin að veggspjaldi í bröggum hermanna á stríðsárun- um. Árið 1941 lék Rita Hayworth í músíkmyndinni My Gal Sal á móti Victor Mature. Leikkonan hafði, er hér er kom- ið sögu, sagt skilið við fyrsta mann sinn og sást í fylgd ýmissa þekktra leikara svo sem Errol Flynn, David Niven og einnig Victor Mature, sem var kvæntur maður. Skilnaður Ritu og Ed Judson gekk í gegn árið 1942 og seinni hluta þess árs og byrjun þess næsta ferðaðist leikkonan um og skemmti víða á spítölum her- manna og einnig við útvarpsstöðv- ar þeirra. En blöðin í Bandaríkj- unum héldu áfram að birta mynd- ir af Ritu og segja frá henni, kona Victor Mature hafði farið fram á skilnað frá manni sínum og menn gerðu því skóna að þau Rita myndu ganga í hjónaband þegar allt væri komið í kring. Orson Welles En Victor Mature eignaðist keppinaut um ástir hinnar fögru leikkonu, mörgum fannst Orson Welles ólíklegur til þeirrar keppni. Hann sló í gegn sem leik- ari og leikstjóri í kvikmyndinni Citizen Kane árið 1941. Kornung- ur maður, þá 23 ára, vakti hann athygli fyrir útvarpsdagskrána War of the Worlds, sem kom öllu á annan endann í Bandaríkjunum eins og kunnugt er. En þau löðuðust hvort að öðru, Rita Hayworth og Orson Welles, mörgum til undrunar, það var tal- að um þau sem fulltrúa fegurðar og gáfna, þ.e. „Beauty and the Brain", og menn furðuðu sig á að þau skyldu eiga eitthvað sameig- inlegt. Þau voru gefin saman í hjóna- band hjá dómara í Kaliforníu í septembermánuði árið 1943 og eignuðust dótturina Rebeccu árið 1944. Fyrsta mikilvæga myndin, sem Rita Hayworth lék í var „Only Angels Have Wings“ með Gary Grant árið 1939. Árið 1943 gengu þau f hjónaband Rita Hayworth og Orson Welles. Leikkonan með dstur sínar ungar; Yasmin Khan til vinstri og Rebecca Welles til hægri. Hjónabandið færði leikkonunni ekki það heimilislíf, sem hún hafði vonast eftir, Orson Welles var mikið í burtu, blandaði sér t.d. i stjórnmál fyrir Roosevelt forseta. Honufti gekk heldur ekki vel að fylgja eftir sigrinum með Citizen Kane. Það fóru að koma þver- brestir í hjónabandið og entist að- eins í tvö ár alls. Kvikmyndin Gilda Eftir skilnaðinn fór Rita Hay- worth að vinna aftur og fyrsta myndin sem hún lék í var Gilda, mótleikari var Glenn Ford. Mynd- in var frumsýnd árið 1946 og er skemmst frá því að segja, að myndin og leikkonan fengu svo lofsverða dóma að fór langt fram úr djörfustu vonum framleiðenda. Leikkonan þótti svo glæsileg í hlutverkinu að lengi fannst mönnum Rita og Gilda ein og sama persónan. Rita Hayworth stóð nú á hátindi ferils síns og stofnaði eigið kvikmyndafyrir- tæki, Beckworth Corporation, og fyrsta myndin sem tekin var til framleiðslu var The Loves of Carmen, þar sem Rita lék og dans- aði aðalhlutverkið. Eftir að töku þeirrar myndar lauk sigldi hún, ásamt vinkonu sinni, til Evrópu sér til hvíldar. Aly Khan Á frönsku Rívíerunni kynntist Rita mörgu fólki, sem var á fullri ferð í samkvæmislífinu, einn í Myndin af leikkonunni sem var i forsíðu Life árið 1941. Myndin var notuð sem veggspjald meðal hermanna á stríðsárunum. í myndinni Gilda, irið 1946, sló Rita Rita og Aly Khan prins gengu í Hayworth í gegn. Mótleikari var hjónaband árið 1949. Glenn Ford. Rita og fjórði eiginmaðurinn Dick Haymes söngvari. Rita giftist kvikmyndaframleiöand- anum James Hill árið 1958, hjóna- bandið entist til ársins 1961. þeim hópi var Aly Khan prins, 37 ára, sonur Aga Khan sem var vell- auðugur leiðtogi milljóna músl- íma, múhameðstrúarmanna, sem bjuggu víðsvegar um heim. Aly Khan var að nafninu til kvæntur breskri konu af auðugum ættum, Joan Guinness að nafni, og áttu þau saman tvo syni, Karim og Amyn. Aga Khan hélt vel utan um auð sinn og skammtaði glaumgosan- um syni sínum fé til eyðslu, talið var að honum litist ekki alls kost- ar á að gera hann að eftirmanni sínum, skilja söfnuðinn eftir í hans umsjá. Rita og Aly prins hrifust hvort af öðru og fréttamenn fylgdust með af áhuga, þau voru hvorugt löglega skilin við maka sína þegar þau fóru saman í ferðalag. Þegar Rita hélt aftur til Hollywood elti prinsinn hana, hvert fótmál þeirra var vaktað og gefin um það skýrsla í blöðunum. Það var því fylgst með því þegar Rita tók sér far með „lúxus“- skipinu Britannica, ásamt dóttur sinni, og ekki eyðilagði það fyrir að Aly prins sást einnig fara um borð. Þau ferðuðust til írlands, London, París og Sviss, þar sem þau heimsóttu syni prinsins í heimavistarskólann. Pressan fylgdist vel með hvar sem þau komu. Aga Khan skipaði syni sín- um að koma með Ritu á sinn fund, og er skemmst frá því að segja, að gamli maðurinn varð mjög hrifinn af leikkonunni og fannst hún all frábrugðin þeirri mynd, sem dreg- in hafði verið upp af henni í frétt- um. Eftir að hann hafði sannfærst um að þau væru ástfangin hvort af öðru hvatti hann þau til að ganga í hjónaband. Aly Khan hóf þá strax að leita lögskilnaðar frá konu sinni. Skilnaður Ritu og Orson Welles varð löglegur í des- ember 1948. Rita og Aly prins voru gefin saman í hjónaband í maí-mánuði 1949 í litlu frönsku þorpi. Tilefnið varð meira en til stóð, ljósmynd- arar, fréttamenn og forvitinn al- menningur þyrptust að til að sjá brúðhjónin, fegurðardísina og prinsinn, svo að löggæslumenn áttu fullt í fangi með að halda uppi lögum og reglu. Mánuði eftir brúðkaupið kom opinber yfirlýsing frá prinsinum þess efnis, að þau hjón ættu von á barni. Aly Khan gat þó ekki alveg sagt skilið við hið ljúfa líf þó hann væri nýgenginn í hjðnaband og ætti barn í vændum. Dóttir þeirra Yasmin fæddist í desember 1949, sjö mánuðum eftir brúðkaupið. Fæðing telpunnar kom föðurnum ekki heldur til að meta kyrrlátt fjölskyldulíf, eins og sagt var að Rita Hayworth þráði, og þegar þau héldu upp á eins árs brúð- kaupsafmæli sitt í London var þegar uppi orðrómur um, að hjónabandið væri ekki upp á það allra besta. Leikkonan tók nú að huga að kvikmyndaleik eftir tveggja ára hlé, en í þess stað lét hún undan þrábeiðni eiginmanns síns og fór með honum í opinbera heimsókn til Afríku. Ferðin varð henni hin mesta þolraun, á daginn sinnti prinsinn opinberum skyldum og á kvöldin spilaði hann bridge við vini sína. Stundum hvarf hann jafnvel svo dögum skipti. Rita varð eftir í Kaíró og þegar prins- inn flaug þangað sagði hún honum að hún væri á förum, ætlaði að segja skilið við hann. Hún fór ein til Frakklands til að sækja telpurnar og þaðan beint til Bandaríkjanna. Við komuna þang- að biðu blaðamenn eins og hræ- gammar, þeir vildu fá að vita hvort þau hjón væru skilin að skiptum, hún kvað nei við því. Telpurnar voru nú 1 V4 og 6 ára gamlat- og talið er að leikkonan hafi í lengstu lög vonað að allt lagaðist á milli þeirra hjóna og þau gætu átt saman gott heimili. En eftir bréf, sem hún fékk frá prinsinum, fannst henni eins og hann hefði meiri áhyggjur af yfir- vofandi hneyksli vegna skilnaðar en því að bjarga hjónabandi þeirra. Hún lét því lögfræðing SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.