Morgunblaðið - 19.02.1984, Page 22

Morgunblaðið - 19.02.1984, Page 22
70 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 sinn koma þeim boðum áleiðis að hún færi fram á lögskilnað í stað skilnaðar að borði og sæng. Aga Khan var syni sínum afar reiður og kenndi honum um hvernig komið væri. Aly prins fór þá fram á það við Ritu að hún frestaði skilnaðarbeiðni um sex mánuði, hann mun hafa óttast að faðir hans myndi svipta hann líf- eyrinum og samþykkti Rita það, hafði þar hagsmuni dóttur þeirra efst í huga. Leikkonan hélt nú til Hollywood og hugðist hefja kvikmyndaleik að nýju. Columbia-kvikmyndafélagið hafði ekkert á móti því að notfæra sér auglýsinguna, sem leikkonan hafði fengið í öllum fréttaflutn- ingi af einkalífinu. Snemma árs 1952 varð Aga Khan fyrir hjartaáfalli og sonur- inn Aly þurfti að taka að sér ýms- ar þær opinberu skyldur, sem áður hvíldu á föðurnum, og honum fannst nú mikilvægara en áður að sættast við konu sína. Hún tók á móti honum í Hollywood og sam- þykkti að koma til Evrópu, þegar hún hefði lokið leiknum í mynd- inni Salome. Hún taldi að hugur fylgdi máli hjá prinsinum og enn væri ekki útilokað, að þau gætu eignast eðli- legt fjölskyldulíf. Þegar hún kom með skipinu til Le Havre í Frakklandi var hann þar ekki til að taka á móti henni. Hann var heldur ekki í húsinu þeirra þegar hún kom þangað og lét ekki sjá sig fyrr en næsta dag. Ritu var nú nóg boðið, hún flutti út og sá nú að ástæðan fyrir beiðninni um frestun á skilnað- armáli þeirra var eingöngu af fjöl- skyldu- og fjárhagsástæðum Khan-ættarinnar. Skilnaðurinn gekk í gegn árið 1953, en 1955 var gengið frá öllu, er viðkom forsjá og erfðarétti Yasmin dóttur þeirra, hún var viðurkennd einn af fimm erfingjum Aga Khan, svo hún mun ekki þurfa að óttast fjár- skort það sem eftir er æfinnar. Dick Haymes söngvari Við komum til Hollywood á nýj- an leik sást Rita í fylgd ýmissa herra á skemmtistöðum, má þar nefna Kirk Douglas, Victor Mat- ure og Dick Haymes. Söngvarinn var álitinn keppinautur Frank Sinatra um vinsældir á 5. ára- tugnum, hann var 35 ára þegar hér er komið sögu og allt á niður- leið hjá honum, starfið í molum og þrjú misheppnuð hjónabönd að baki. Vinnuveitendur Ritu og vinir hennar voru lítt hrifnir af félags- skap þeirra tveggja og glöddust þegar hún var send til Hawaii til kvikmyndatöku. En þangað elti söngvarinn hana og þótti hafa miður æskileg áhrif á meðan á myndatöku stóð, hún mætti ekki á réttum tíma og tók að neyta áfengis í of miklum mæli. Söngvarinn átti í útistöðum á ýmsum vígstöðvum, skattalögregl- an var á eftir honum vegna van- talinna tekna, lögmenn vegna van- goldinna barnsmeðlaga og auk fjárhagserfiðleika kom í ljós að hann hafði ekki tiiskilin skilrlki til dvalar í Bandaríkjunum, en hann var argentínskur þegn. Við tilraunir vina til að fá leik- konuna til að slíta sambandi við hann virtist hún verða ákveðnari að hjálpa honum og þau gengu í hjónaband í september árið 1953. En hamingjan entist ekki, eigin- manninum gekk illa að fá vinnu og hún sjálf var svo andlega þreytt, að hún treysti sér ekki til að leika í kvikmynd og þar kom að kvik- myndafyrirtæki hennar, Beck- worth, var selt fyrir 750 þús. doll- ara til að geta borgað skuldir, verðið sem fékkst var ekki talið ná raunvirði. I maímánuði árið 1955 flutti Rita út af heimili þeirra í Kaliforníu með dætur sínar og fór til Evrópu, samtímis hóf hún skilnaðarmál, hjónabandi þeirra var lokið. Samningurinn við Coiumbia rennur út Við komuna til Bandaríkjanna aftur lék Rita í myndinní Pal Joey á móti Frank Sinatra og Kim Nov- ak. Eftir það var hinn 20 ára gamli samningur við Columbia loks útrunninn. Hún kynntist leikstjóranum James Hill, fertugum manni, sem aldrei hafði kvænst og átti hlut í Hecht-Hill-Lancaster-kvikmynda- félaginu. Hann fékk Ritu til að leika í myndinni Separate Tables, og fékk hún mjög góða dóma fyrir leik sinn, hún lýsti því yfir að héð- an í frá ætlaði hún að velja sér sín eigin hlutverk. En sambandið við leikstjórann varð meira en vináttan ein,' bau gengu í hjónaband í febrúar aj-ið 1958 og voru báðar dætur hennar viðstaddar athöfnina sem var hin hátíðlegasta. Hjónin virtust lifa' kyrrlátu lífi og umgengust aðeins þröngan vinahóp og bárust Iítt á. Næstu tvær myndirnar sern Rita lék í, voru misheppnaðar og svo var einnig um hjónaband hennar og Hill leikstjóra, hún fór fram á skilnað árið 1961. Eftir þetta skipbrot tók hún upp samband við leikarann Gary Merrill, sem var nýskilinn við leikkonuna Bette Davis. Þau ferð- uðust til Evrópu saman og vöktu þar athygli vegna drykkju, rifrild- is og hávaða. Það sama var upp á teningnum hjá þeim þegar þau komu til Bandaríkjanna, þau voru jafnvel beðin um að yfirgefa matstaði. Það bar oft á því, eftir slíkar uppákomur, að leikkonan mundi ekki nokkurn skapaðan hlut af því sem gerðist og var það skrifað á reikning áfengisdrykkj- unnar. Það var nú svo komið að hlut- verk i kvikmyndum biðu ekki leng- ur eftir henni, en þó lék hún í nokkrum minniháttar myndum á sjöunda áratugnum. Hún varð fimmtug í október 1968 og um- gekkst ekki marga, dæturnar báð- ar í námi í háskólum og móðirin ákaflega hreykin af þeim. Faðir Ritu, Eduardo Cansino, lést árið 1968 og varð henni mikill harmdauði. Bræður hennar létust með mánaðar millibili í byrjun árs 1974. Missir ástvinanna varð henni mikið áfall. Árið 1976 var Ritu boðið til London þar sem taka átti við hana sjónvarpsviðtal. Flugferðin varð henni mikil þolraun, hún þjáðist mjög af flughræðslu. Hún hafði fengið sér áfengi áður en hún hélt af stað og bætti við það magn á leiðinni yfir Atlantshafið. Við komuna til Heathrow-flug- vallar var hún illa til reika, ætlaði að neita að fara frá borði og fréttaljósmýndarar, sem alltaf höfðu verið á eftir henni, smelltu ákaft af. Myndirnar sem birtust í fréttablöðum um allan heim næsta dag sýndu konu sem virtist ofurölvi og skelfingin uppmáluð. Myndirnar bárust meira að segja alla leið hingað til fslands. En leikkonan náði sér fljótt og viðtal- ið gat farið fram á réttum tíma. Veturinn 1977 lenti Rita á spít- ala í Los Angeles og læknirinn, sem annaðist hana, gaf út þá yfir- lýsingu að hún væri það illa á sig komin af áfengisneyslu að hún virtist hafa misst alla stjórn á sjálfri sér. Minnstu munaði að hún yrði gerð að skjólstæðingi hins opinbera og svift sjálfræði. Dóttir hennar, Yasmin, hafði þá snör handtök, fékk móður sína flutta á sjúkrahús í Connecticut þar sem hún fékk hina bestu um- önnun. Fullvíst þykir að hún hafi ekki neytt áfengis eftir það. Af sjúkrahúsinu fór hún aftur til Kaliforníu, þar sem hún kom vinum og fyrrum samstarfsfólki á óvart með minnisleysi, hún mundi alls ekkert eftir þessu fólki. Vin- unum fannst hún líta vel út en fannst sem eitthvað væri að. Við nánari rannsókn kom í ljós, að leikkonan er haldin Alzheim- er-sjúkdómi, sem í upphafi kemur meðal annars fram í minnisleysi og endar með því að gera fólk ör- vasa og ósjálfbjarga langt um ald- ur fram. Yasmin dóttir hennar fór fram á það við dómstolana að hún yrði skipuð fjárhaldsmaður móður sinnar, og 63 ára að aldri var Rita Hayworth svipt sjálfræði vegna þess að hún var ekki fær um að sjá um sig sjálf lengur. Hún var flutt frá Kaliforníu og býr í íbúð á Manhattan í New York, nálægt heimili Yasmin, þar fær hún þá bestu umönnun, sem völ er á og hjá henni býr kona sem hugsar alveg um hana. Fyrir nokkrum árum var Rita spurð hvers hún óskaði sér helst i framtíðinni og hún svaraði um hæl að hún óskaði sér hamingju og góðrar heilsu, „Be happy, have Health“ voru orð hennar. En það rætast ekki allar mannanna óskir og leikkonan og fegurðardísin Rita Hayworth er all fjarri þeirri framtíðarsýn, sem hún batt vonir við. Samantrkt: Bcrgljót Ingólfsdóttir. Ileimild: Rita. The Life of Rita Hay- worth. Höf. Josep Morella og Edward Z. Epstein. Úíg. Delacorte Press. Rita og Yasmin. Þær mæðgur þykja mjög líkar. Það nýjasta frá Háskólabíói Kynnist ævintýrum Garps (He-man), Tílu og Vopna. Fæst hjá öllum betri myndbandaleigum. BíSJI -í? HJALPARKOKKURINN KENWOOD CHEF „CHEF-inn“ er allt annað og miklu meira en venjuleg hrærivél. Kynnið ykkur kosti hennar og notkunarmöguleika. UMBOÐSMENN: REYKJAVÍK JL-húsið, Hringbraut 121 Rafha hf., Austurveri AKRANES Rafþjónusta Sigurd. Skaga- braut 6. BORGARNES Húsprýði STYKKISHÓLMGR Húsið BÚÐARDALGR Verslun Einars Stefánssonar DALASÝSLA Kaupfélag Saurbæinga, Skriðulandi ÍSAFJÖRÐGR Póllinn hf. BOLGNGARVÍK Verslun Einars Guðfinnssonar HVAMMSTANGl Verslun Sigurðar Pálmasonar BLÖNDGÓS Kaupfélag Húnvetninga SAGÐÁRKRÓKGR Kaupfélag Skagfirðinga Radío- og sjónvarpsþjónustan AKGREYRI Kaupfélag Eyfirðinga HÚSAVÍK Grímur og Árni EGILSSTAÐIR Verslun Sveins Guðmundssonar HELLA Mosfell SELFOSS Kaupfélag Árnesinga Radío- og sjónvarpsþjpnustan VESTMANNAEYJAR Kjarni ÞORLÁKSHÖFN Rafvörur GRINDAVÍK Verslunin Bára KEFLAVÍK Stapafell hf. Eldhússtörfin verða leikur einn með KENWOOD CHEF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.