Morgunblaðið - 19.02.1984, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984
75
Nú var ðllu lokið; áhorfendurnir höfðu ekk-
ert annað að gera en að blða eftir þvl að
eldurinn slokknaöi og leita slðan að minja-
gripum. Ættingjar látnu búskaranna biðu til
þess að fá sviöin llkin afhent og grafa þau.
Ned Kelly var færður til Melbourne og þar
gréru fljótt þrjátlu sár, sem hann haföi fengið.
Hann var leiddur fyrir rétt og dómarinn var sá
sami og hafði dæmt móður hans tveimur
árum áður.
Engum kom á óvart að Ned Kelly var
fundinn sekur og dæmdur til dauða. Hörð
barátta fyrir þvl aö fá dóminn mildaöan fór út
um þúfur og kl. 10 að morgni fimmtudagsins
11. nóvember 1880 var Ned Kelly hengdur.
Goðsögnin um Ned Kelly varð til.
Eftir dauða Neds varð til urmull af sögum
og sönglögum um Kelly og félaga hans.
Samkvæmt einni sögunni fórust Dan Kelly og
Steve Hart ekki I eldslogunum I Glenrowan,
heldur komust þeir undan til Suður-Afrlku
þar sem þeir böröust I Búastrlðinu — með
Búum.
Jafnvel fimmtlu árum eftir atburðinn var
ekki óalgengt að heyra um menn, sem héldu
þvl fram að þeir væru Dan Kelly eða þekktu
einhvern sem væri hann. Sönglög um búsk-
arana voru samin og sungin og þar var þeim
lýst sem hetjum og vinum fátækra.
Þjóðhetja
Bækur, leikrit, sönglðg og jafnvel fyrsta
ástralska kvikmyndin i fullri lengd fjölluðu um
sögu Kelly á ýmsan máta, en venjulega
þannig að hrært var saman staöreyndum,
uppspuna og þjóðsögum. Enn þann dag I
dag eru sagðar sögur af Ned Kelly og segja
má að hann hafi oröið uppspretta blómlegs
fjölmiðlaiðnaðar.
Jafnvel fyrir eldsvoðann I Glenrowan
reyndu fjölmiölar að græða á Kelly-genginu.
Dagblað I Mansfield gaf út bækling, sem hét
„Kelly-gengið, eða útlagarnir I Wombat-
hæðunum“. Hann kom út 1879 og hafði að
geyma frásögn um afrek búskaranna og
nokkur sönglög I sama dúr. Sum þeirra eru
sungin enn þann dag I dag.
Um svipað leyti var flutt leikrit, sem var
kallað „Gammar Wombat-hæða“, fyrir fullu
húsi kvöld eftir kvöld i Melbourne. Þótt yfir-
völd bönnuðu sýningu þess (aðallega vegna
þess að búskararnir léku venjulega á lögregl-
una) var varla búið að hengja Ned Kelly þeg-
Jól í Áatralíu: laatln atödvuð tll að komaat
í veizlu, 1886. Á veggnum er apjald með
leiðbeiningum um hvernig atöðva eigi
leatina.
ar annað leikrit um búskarana var frumsýnt
að kvöldi 11. nóvember.
Ekkert er vitað um þetta leiklistarframlag
annað en þá furðulegu staöreynd að ein af
systrum Neds, Kate, fór með eitt hlutverkið I
leiknum þegar hann var frumsýndur. Engum
kom á óvart aö fjölskylda hennar afneitaði
henni. Seinna giftist hún og fluttist til Nýju
Suður-Wales, þar sem hún fyrirfór sér aö lok-
um.
A árunum milli 1880 og aldamótanna slð-
ustu sýndu rithðfundar og lagasmiðir heima-
sveit Kelly-bræöra stöðugan áhuga og 1906
kölluðu höfundar fyrstu áströlsku kvikmynd-
arinnar I fullri lengd framleiöslu slna einfald-
lega „Söguna um Kelly-gengið". Hún náði
geysimiklum vinsældum hvarvetna I Astrallu
og tryggöi Ned Kelly sennilega þann sess
sem hann hlaut að lokum I vitund almenn-
ings.
Og rétt eins og til að koma I veg fyrir að
almenningur gleymdi Ned Kelly minntu bóka-
útgefendur á hann með stöðugu flóði bóka
og greina um hann og félaga hans á fyrstu
tveimur áratugum þessarar aldar. Frétta-
menn feröuöust til Kelly-sveitarinnar til að
taka viðtöl við „þá sem voru þar“.
Áatralakir liatamenn hafa löngum gart aér mat úr ævintýrum Kellya. Þaaaa mynd gerði
J. Naah akömmu eftir dauða hana og kallaði hana „Kelly í úlfakreppu“.
Gamall þorpari, Jack Bradshaw að nafni,
sem kallaði sig „slðasta búskarann", samdi
bækur, þar sem hann hélt þvl fram aö hann
hefði verið góðkunningi Kelly og félaga hans
— og allra annarra frægra búskara frá þvl
um 1860! Þetta eru aðeins nokkur dæmi um
ýmis viöbrögð fjölmiðla við Kelly-goðsögninni
á þessum tima.
Með tilkomu útvarps og innflutningi „dreif-
býlistónlistar" frá Norður-Ameriku til Astrallu
um og eftir 1930 varð Ned Kelly fljótlega
„fastur liður" I hinum nýju fjölmiðlum, útvarpi
og á hljómplötum. Ótal lofsöngvar um Ned
og afrek hans voru gefnir út á hljómplötum
um þetta leyti og nokkrir þeirra, eins og „The
Ned Kelly Song“ og „Poor Ned Kelly (Aum-
ingja Ned Kelly), hafa náð hylli almennings
og lifa enn góðu llfi.
Hauskúpunni stolið_____________________
Slðan 1940 hafa fleiri leikrit, skáldsögur,
kvæði, kvikmyndir og jafnvel söngleikur um
Ned Kelly séð dagsins Ijós. Nú slðast hefur
sjónvarpsfyrirtæki gert framhaldsmyndaþátt
um búskarana fyrir stórfé og hann hefur verið
sýndur um gervalla Ástrallu. Og eins og til að
sanna að Ned sé fræg persóna stal einhver
hauskúpu hans fyrir nokkrum árum úr gröf
hans I gamla fangelsinu I Melbourne, sem nú
er lögreglusafn.
En þótt hauskúpa Neds sé týnd og tröllum
gefin lifir hetjuímynd hans, bæði I fjölmiðlum
og munnmælasögum. Það er aðallega vegna
vfxláhrifa umfjöllunarinnar I fjölmiðlum og
þjóðsagnanna að Ned Kelly hefur orðið eina
raunverulega þjóðhetja Astrallu. Sú Imynd,
sem varðveitist vegna þessara vlxláhrifa,
spannar yfir mótsagnir og áhyggjur hinnar
áströlsku þjóðarskapgerðar.
Já, Ned Kelly var morðingi, en hann skaut
aðeins lögreglumenn og þeir hafa hvort sem
er aldrei verið mjög vinsælir I Astrallu. Hann
rændi frá rfkum, kannski ekki til að hjálpa
fátækum, en að minnsta kosti til aö sýna að
hinir auðugu og voldugu gátu ekki alltaf
fengið vilja sínum framgengt.
Loks var Ned Kelly áræöinn, þrautseigur
og góður félagi („game“ eins og Astrallu-
menn kalla það) og það skiptir ef til vill mestu
máli. Hann barðist fyrir þvl sem hann trúði á
og lét llfið I sölurnar. Eitt mesta hrós sem
Astrallumenn geta veitt er aö segja að ein-
hver sé óstöðvandi eins og Ned Kelly.
Látið blómin tala á konudaginn