Morgunblaðið - 19.02.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984
83
Umsjón
Sigurður
Sverrisson
Kukl á sviði í Hamrahlíðinni. Frá vinstri: Guðlaugur Óttarsson, Einar
Örn (sá í sjónvarpinu) og Björk Guömundsdóttir.
Kukl fær góða dóma í enska poppritinu Sounds:
„Allt varö svo yndis-
lega móðursýkiskennt“
Hljómsveitin Kukl lék fyrir
nokkrum vikum á tónleikum
meö bresku sveitunum Flux
Of Pink Indians og Flowers In
The Dustbin. Tónleikarnir
fóru fram í Sjúkrabílastöðinni
(The Ambulance Station) og
þóttu heppnast vel, utan hvað
eldsvoðí virtist um tíma ætla
að gera tónleikahaldið að
engu. Til allrar hamingju
tókst þó aö ráöa niðurlögum
eldsins, án þess verulegur
skaöi hlytist af.
Litlar fregnir hafa fariö af þess-
ari uppákomu Kuklara, sem voru
þarna í öllu sínu veldi með Einar
Örn innanborös og hvaöeina. Ein-
ar stundar nú nám í fjölmiðlun viö
skóla í London.
Útbreiddasta popprit Breta,
Sounds, birti fyrir skömmu umfjöll-
un um þessa tónleika og verður aö
segjast eins og er, aö Kukl fékk
langsamlega hagstæðustu um-
mælin. Þó er Flux Of Pink Indians
mjög þekkt sveit innan raða fram-
sækinna rokkunnenda.
Hér aö neöan getur aö líta þýö-
ingu á ummælum Sounds um
Kukl:
„íslensk sveit, hvers nafn enginn
veit, en þó vitum viö þaö, aö heiti
hennar verður aö hrópa, stormaöi
á sviöiö og framleiddi líkast til
skemmtilegasta hávaöa kvöldsins.
Aö því er virtist tjaldaöi flokkurinn
tveimur söngvurum (Björk Guð-
mundsdóttur og Einari Erni Bene-
diktssyni, innsk. -SSv.), en nær
ógjörningur var aö sjá nokkuö fyrir
iöandi manngrúanum, sem hreyföi
sig eftir hljómfallinu eins og í
leiöslu. (Um 600 manns munu hafa
veriö á tónleikunum, insk. -SSv.)
Þessi framandi hópur náöi upp
stemmningu, sem minnti á köflum
svolítiö á Fall. Allt varö einhvern
veginn svo yndislega móöursýk-
iskennt. Engu aö síöur voru með-
limir sveitarinnar meö sitt á hreinu
og útkoman varö tónlist, sem mjög
auövelt var aö njóta. Eitthvað ann-
aö en þaö, sem á eftir fylgdi.“
INDIAN RESERVATIONS
FLUXOF PINK
INDIANS/?!/-
FLOWERSIN THE
DUSTBIN
The Ambulance
Station
ITWAStobeanightofshocks.
Flowers In TheDustbin,
receiving nastily large
less) become extremely
boring. A dash more
selectivity, plus improvements
in pacing, would work
wonders.
Shock! An lcelandic band.
whpse na me nobodv knows,,
except it has to be shouted^
storme(j into life andmadg--
perhaps the nicest noise ofJhe
whofe evening. Appárently
withtwolead vocalists,
*'•*' *o see over the
above, Colin yelling
passionately into the
microphone below— but
unplugged, Colin's words
shrivelled to hideously
distorted, unintelligable
shrieks of God knows what.
So, how does the Flux
attitude — already responsible
for changing more people's
lives than a thousand less^
2.d°nt Peao
Umsögnin í Sounds.
Hljómsveitin Singultus hvílir sig á handriðinu fyrir framan Morgunblaðshúsið.
Hiýtt á upptökur 5 laga Singultus:
Tónlistin breytt, en
sveitin á réttri leið
Hljómsveitin Singultus úr
Garðabænum hélt fyrir
skemmstu í hljóðver og tók
upp 5 lög. Til þessa notuðu
fjórmenningarnir 20 tíma í
upptökuheimili Geimsteins.
Þótt enn hafi ekkert oröið af
plötuútgáfu hjá þeim félögunum er
vart aö efa, aö þeir hyggja á slíka
hluti meö upptökur á borð viö
þessar í pokahorninu.
Umsjónarmaöur Járnsiðunnar
fékk í vikunni aö heyra upptökur af
lögunum fimm og ekki ber á ööru
en umtalsveröar breytingar hafi
oröiö bæöi á hljóðfæraleik og þá
ekki síður lagasmíöum.
Síöast er ég vissi til var Singult-
us á Rush-línunni og stóö sig bara
bærilega í þeim efnum. Nú er tón-
listin öll oröin „fusion“-kenndari og
þá um leiö jazzaöri. Á a.m.k. einum
staö örlar meira aö segja á hrein-
ræktaöri sveiflu.
Þótt ekki kunni ég eins vel viö
þessa tónlist og þá er hljómsveitin
lék áöur fer ekki á milli mála aö
meðlimir Singultus eru „ungir
menn á uppleiö" svo þaö oröatil-
tæki sé notaö rétt eina feröina.
Sólógitarleikurinn hjá Hilmari
(föðurnafn vantar) er tvímælalust
sterkasti hlekkurinn i tónlistinni, en
trommuleikur Matthíasar Daviös-
sonar þá um leiö veikasti hlekkur-
inn. A.m.k. kemur þaö þannig út á
spólunni, sem ég heyröi. Reyndar
kemur þetta á óvart því undirritaö-
ur man ekki betur en Matthías
væri lipur trymbill. Kannski veriö
lasinn í upptökunum, hver veit?
Bassaleikur Valdimars Óskarsson-
ar er er ágætur (jákvæöur skilning-
ur) og ekki varö vart viö neiní
hnökra. Fjóröi meðlimurinn
rythmagítaristinn Ólafur Elíasson
skilar sínu svo litiö ber á, endé
ekki hlaupiö aö því aö vekja á séi
athygli viö hliö sólógitarista, serr
skilar sínu af jafn mikilli snilld oc
raun ber vitni.
Þegar öllu er á botninn hvolft ei
Ijóst, aö Singultus er á miðji
breytingarskeiöi, mitt á milli fyrr
tónlistarstefnu og hinnar nýrri. Urr
endanlega útkomu veröur van
hægt að dæma að fullu fyrr en a<
nokkrum mánuöum liönum, þ.e
þegar Ijóst er hvaö verður ofan á
Hitt er víst, aö Singultus er sveit
sem vert er aö veita rækilege
athygli. -SSv.
Bubbi kannar möguleika
á sólóferli í Ameríku
Rétt áður en Járnsíðan fór í Bubbi Morthens væri á förum
prentun bárust þau tíðindi til New York, þar sem hann
Járnsíðunni til eyrna, að ætlaði að dvelja um nokkurra
daga skeið og kanna mögu-
leika á eigin sólóferli.
Eins og sagt var frá á Járnsíð-
unni fyrir jól var Bubbi búinn aö
skrifa undir samning viö Safari
Records án þess hann væri laus
allra mála hjá Steinum hf. Fékk
hann væna fúlgu fyrir, en undir-
skriftin mun hafa veriö gerö af
hálfu Bubba í þeirri trú aö hann
væri laus allra mála hjá Steinum.
Svo var hins vegar ekki.
Eins og menn hafa vafalítiö tek-
iö eftir hefur Egóiö lítiö veriö á
feröinni undanfarna mánuöi, en
Bubbi hefur hins vegar haldiö sig
viö efniö hvaö snertir eigin sóló-
feril. Ser nú enda flestum saman
um, aö hæfileikar hans sem trúba-
dors séu enn meiri en rokkara í
fremstu víglínu. Er ekki ósennilegt
aö ætla, aö Bubbi hyggist sööla
um og snúa sér alfariö aö sólóferli
áöur en langt um líöur.
Egó-sveítin mun hætt við
aö fara til Englands til aö taka
upp þriöju plötu sína eins og
skýrt var frá á Járnsíðunni
fyrir nokkru. Ekki tókst aö ná
í Bubba Morthens, forsprakka
flokksins, til þess aö inna
hann eftir ástæðunni, en
samkvæmt heimildum Járn-
síðunnar mun samkomulag
ekki hafa tekist á milli
hljómsveitarinnar og Steina
hf. í þessu efni.
Þá hefur Járnsíöan einnig frétt á
skotspónum, aö þeir Asgeir
Óskarsson og Pétur Hjaltested
muni aöstoöa Egó viö upptöku
plötunnar.
Trommuleikaravandræöi Egós-
ins hafa veriö fyrir hendi frá þvi
ísfirski trymbillinn skildi viö sveit-
ina og hinn 15 ára gamli Ýmir úr
Englabossunum tók viö. Þrátt fyrir
lofsamleg ummæli reyndist hann
ekki vera nógu góöur. Magnús
Stefánsson hljóp um tíma í skarö-
iö, en hann er nú um það bil aö ýta
eigin sveit úr vör.
Þaö má því Ijóst vera, ef rétt er,
aö Asgeir kemur eins og kallaöur
fyrir Egóiö fyrir nýju plötuna. Einn
allra fremsti, ef ekki sá fremsti,
trommuleikari landsins um áraraö-
ir.
Hvaö Pétur Hjaltested áhrærir
horfir máliö nokkuö ööru vísi víö.
Aö því er best er vitaö er Gunnar
Ásgeir Óskarsson, trommari
Rafnsson, sem áöur var í Kikk, enn
í Egóinu. Hvort nota á tvo hljóm-
borösleikara eða hvort Gunnari
veröur ýtt út er nokkuö sem ekki
fengust svör viö, þar sem ekki
tókst aö ná í Bubba.
Aöstoöa Ásgeir
og Pétur Egóiö
á nýrri plötu?