Morgunblaðið - 19.02.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984
87
Guðubaðstofa Jónasar Halldórssonar 25 ára:
Léttlyndi, kæruleysi og kvensemi lykillinn að góðu lífi
Gamlir og nýir gufubaösgestir draga inn magann fyrir Ijósmyndarann.
— segir Jónas
„Ég hef aðeins þrjú boðorð í
lífinu, og ég þakka þeim hvað ég
er hraustur og lífsglaður. Það er
léttlyndi, hóflegt kæruleysi og
svolítil kvensemi," sagði Jónas
Halldórsson nuddari og fyrrver-
andi sundkennari, þegar blaða-
maður tók hann tali nýlega í til-
efni af 25 ára afmæli Gufubað-
stofunnar við Kvisthaga 29, sem
Jónas rekur og hefur gert frá
upphafi. Síðastliðinn laugardag
var haldið upp á afmæli stofunn-
ar, og fékk Jónas fjölda gjafa og
kveðja frá gömlum og góðum
kúnnum, meðal annars högg-
mynd eftir Kjartan Ragnarsson
af Jónasi að nudda.
„Þeir hafa verið margir kúnn-
arnir hjá mér í gegnum tíðina,"
segir Jónas, „sumir allt frá byrj-
un, eins og til dæmis Guðlaugur
Bergmann í Karnabæ. Gulli er
nú reyndar kallaður húsdraug-
urinn í okkar hópi, því hann er
hérna sex daga vikunnar.
Gufubaðstofan er enginn
kjaftaklúbbur, þótt vissulega sé
margt skrafað og fátt af viti,
eins og kallinn sagði. Menn
koma til að slappa af og hitta
góða félaga, enda er stofan orðin
eins og annað heimili hjá mörg-
um.
Annars ætla ég að loka stof-
unni í vor. Ég verð sjötugur í
sumar og það er orðið tímabært
að fara að slaka á, því það er
mjög erfitt starf að nudda og ég
orðinn slæmur í öxlunum og
verð að fara að hvíla mig. Og þá
getur maður gefið sér meiri tíma
til að stunda veiðar, en veiðar af
öllu möpilegu tagi hafa alla tíð
verið mitt hobbý númer eitt. Mér
er alveg sama hvort það er lax,
silungur, rjúpa eða hreindýr. Ég
hef jafn gaman af öllu.
Jónas heldur því fram að gufu-
böð séu gífurlega holl, og senni-
lega neita því fæstir. „En það
verður að stunda böðin rétt,“
segir hann, „ég er ekki hrifinn af
því að fara beint í kalda sturtu
úr 80 stiga hita. Það held ég að
sé beinlínis óhollt. En það þýðir
ekkert að segja mönnum hvað
þeir eigi að vera lengi inni í einu.
Það er mjög einstaklingsbundið,
og nokkuð sem menn verða að
finna út sjálfir."
Ólafur Jóhannesson, fyrrver-
andi ráðherra, hefur verið tíður
gestur á gufubaðsstofunni hjá
Jónasi um langt skeið. „Ég man
MorgunbladiA/ Friðþjórur
eftir því að þegar ólafur kom
fyrst, var hann spurður hvort
hann hefði verið nuddaður áður.
Hann sagðist nú ekki hafa verið
svo mikið nuddaður, en hins veg-
ar væri fólk sífellt að nudda í
sér, en það væri annar handlegg-
ur.“
Sæbjörgin VE 56 landar:
Loksins lét loðnan sjá sig
Loónunni landað. Á innfelldu myndinni er Sæbjörgin að leggj-
ast við bryggju með fullfermi. MorKunhi.ðiv ói.k.m.
„ÞAÐ HEFUR aldrei veiðst eins
mikið á jafn skömmum tíma frá
því að loðnuveiðar hófust og
þessa viku frá 2. febrúar síðast-
liðnum til miðvikudagsins 8.
febrúar. Það lætur nærri að um
100 þúsund tonnum hafi verið
landað á þessu tímabili, eða
tæplega helmingnum af allri
loðnuveiðinni frá því að veiðar
hófust í nóvemberbyrjun," sagði
Andrés Finnbogason hjá loðnu-
nefnd í spjalli við blm. Morgun-
blaðsins, en meðfylgjandi mynd-
ir eru teknar í Örfirisey þann 7.
febrúar sl., af loðnulöndun Sæ-
bjargar VÉ 56, sem kom með
fullfermi, 550 tonn.
Menn nefna einkum þrjár
ástæður fyrir þessu góða gengi.
Fyrst ber auðvitað að telja að
nóg virðist vera af loðnu í sjón-
um, en hitt skiptir ekki síður
máli að veður hefur haldist
sæmilegt og nægt þróarrými
verið til staðar. Siðustu daga
hefur tíðin verið heldur rysjótt
og skortur á þróarrými er farinn
að verða verulegt vandamál, svo
mikið, að bátar hafa orðið að
sigla langar leiðir til að fá lönd-
unarpláss og síðan þurft að bíða
allt að þrjá sólarhringa eftir að
komast að.
Eins og landslýð er kunnugt,
hefur sjávarútvegsráðherra
heimilað veiðar á 265 þúsund
tonnum af loðnu til viðbótar
þeim 375 þúsund tonnum, sem
þegar hafði verið gefið leyfi til
að veiða. Það er því keppt að 640
þúsund tonnum, en sl. fimmtu-
dag voru tæp 300 þúsund tonn
komin á land. Það er svo á valdi
loðnunnar sjálfrar og veðurguð-
anna hvort tekst að ná í þessi
340 þúsund tonn sem á vantar.
Hingað til hefur loðnan ein-
göngu verið veidd til bræðslu, en
upp úr mánaðamótunum febrú-
ar-mars fer að vera grundvöllur
fyrir að veiða loðnuna til
hrognanýtingar. Það hefur verið
samið við Japani um sölu á 3000
tonnum af hrognum, sem sam-
svarar um 80 til 90 þúsund upp
úr sjó.
Hjálmar brosir breitt
yfír fundi loðnunnar
Fiskifræðingarnir okkar hafa
ekki haft mörg tækifæri tii þess
að brosa upp á síðkastið. Hver
„svarta skýrslan" eftir aðra hef-
ur komið frá þeim um ástand
fiskstofnanna en nú varð breyt-
ing á. Loðnurannsóknaleiðangur
gaf af sér „ljósa skýrslu” um
ástand loðnustofnsins og fleiri
krónur munu því renna í illa
statt þjóðarbúið. Ekki mun af
veita. Það er því engin furða að
Hjálmar Vilhjálmsson brosi
breitt í tækjaklefa sínum um
borð í rannsóknarskipinu Bjarna
Sæmundssyni.
MorgunbUAið Rafn Olnfsson.