Morgunblaðið - 19.02.1984, Blaðsíða 44
92
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984
________________________________________» 1M3 Unlvirul Pr.». t.ndlcl.
Qujrdu ót> muincí... fyrir íveimur drurvi...
5e\dW&u mér hannstur."
ást er...
... „að láta blómin
tala. “
TM Reg U.S Pal. Oft.—aH ríQhls reswved
e1984 Los Angeles Times Syndicale
l>etta skeði þegar ég lækkaði
í hátalarakerfinu.
HÖGNI HREKKVISI
„Umbótastefna Andropovsu?
Lýðræðissinni skrifar:
„I fréttum ríkisútvarpsins þann
13. þ.m., var þess getið að hinn nýi
aðalritari sovéska kommúnista-
flokksins, Konstantin U. Chern-
enko, væri talinn fulltrúi þeirra
sem lögðust gegn „umbótastefnu"
Andropovs.
Já, það hefur ekki tekið frétta-
mann ríkisútvarpsins nema örfáa
mánuði að gera þennan fyrrverndi
yfirforingja ógnarlögreglunnar
KGB í 15 ár að umbótamanni, með
jákvæðum formerkjum, í ímynd
íslensku þjóðarinnar. Fyrir þá sjá-
andi fólst þó „umbótastefnan" í
utanríkismálum aðallega í stans-
lausum hræðsluáróðri og hótunum
gagnvart vestrænum lýðræðisríkj-
um, ef þau voguðu sér að efla
varnir sínar gegn hömlulausum
vígbúnaði Sovétríkjanna, nú og á
undanförnum árum. Þessi „um-
bótastefna“ naut að sjálfsögðu
fullrar aðstoðar allra Treholtinga.
í innanríkismálum fólst „um-
bótastefnan" aðallega í hertum
þrælatökum gömlu samstarfs-
mannanna í KGB á andófs-
mönnum, rithöfundum og öllum
almenningi.
Eins og áður sagði, tók það ekki
marga mánuði fyrir starfsmann
Sannleiks-ráðuneytis ríkisút-
varpsins að breyta ímynd Andro-
povs. Eitt verða þeir þó að varast,
en það er að hamra ekki of lengi á
því að nýi leiðtoginn Chernenko
hafi lagst gegn „umbótastefnu"
Andropovs, því nú þarf að taka til
óspilltra málanna og skapa nýja
„umbótastefnu-ímynd" Chernenk-
os.“
Um göngur glerálsins
að suðurströndinni
Til Velvakanda.
f Morgunblaðinu 3. febrúar sl.
er viðtal við Þórir Jónsson fiski-
fræðing þar sem talað er um
göngur glerálsins í Faxaflóa og
hugsanlegar göngur hans upp að
suðurströndinni.
Þar sem ég er alinn upp við ósa
Ölfusár, á Eyrarbakka, og aðal-
leikvöllurinn var fjaran og skerin,
langar mig að leggja orð í belg. Á
svæðinu austan Ölfusár hef ég oft
orðið var við töluveran glerál á
vorin, þó ekki torfur. Hann virtist
dreifður um fjöruna, en var þó
mest í kring um ræsin þar sem
mýrarvatnið rann fram. Einnig
man ég eftir að hann kom upp í
bátinn hjá manni með þararusli
þegar dregin voru rauðmaganet. Á
leirunni vestan Óseyrarness var
oft mikið af glerál í pollum þar
sem áin féll yfir á flóði.
Ég er hræddur um að gleráls-
göngurnar hafi ekki verið árviss-
ar, að minnsta kosti mismiklar á
þessum árum. Á seinni árum hef
ég ekki fylgst með þessu.
í sambandi við veiðitilraunir er
þetta helst að segja. Það er vitað
mál að áll er í flestum lækjum og
síkjum á þessu svæði, en ég er
hræddur um að erfitt geti orðið að
setja upp gildrur þar sem helst
væri veiðivon, því ekki má hindra
göngur lax og silungs.
Hvað við kemur álaveiði baróns-
ins á Hvítárvöllum, tel ég að þar
sé alls ekki um neina fjarstæðu að
ræða — a.m.k. finnst áll hér alla
leið upp í Hvítá.
Jón V. Ólafsson
Frá sýningu verslunarskólanema á rokkóperunni Rocky Horror.
Þessir hringdu . . .
Til hamingju
rás 2!
Ánægður útvarpshlustandi
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Mig langar til að vitna
í grein, sem birtist í Velvakanda
síðastliðinn laugardag (4. febrú-
ar) þar sem farið var ófögrum
orðum um nýju útvarpsrásina
okkar. Mér finnst þetta ansi
stórorð grein og viðkomandi hef-
ur örugglega mjög sjaldan gerst
svo djarfur að hluta á rás 2.
En hvað um það, við verðum
víst að sætta okkur við eðli ís-
lendinga, að sjá sjaldnast björtu
hliðarnar á hlutunum. Alveg er
ég viss um að krakkarnir sem
stjórna þáttunum á rás 2, taka
svona skrif mjög nærri sér.
Við vitum öll að skammdegið
fer illa í suma íslendinga, en að
láta það bitna á nýjungunum,
sem við erum alltaf svo hrædd
við, finnst mér út í hött.
Annars langar mig til að óska
þessum krökkum, og sérstaklega
honum Þorgeiri Ástvaldssyni, til
hamingju með góða byrjun. Mér
finnst sumt mega missa sín, en
við verðum að gefa fólkinu tíma.
Þátturinn „Pósthólfið", finnst
mér bera af öðrum þáttum rás-
arinnar. Hann virðist vera með
eindæmum vel unninn og Valdís
Gunnarsdóttir, annar umsjón-
armanna, hefur mjög góða rödd.
Ég er hissa að sú rödd skuli ekki
vera meira notuð í útvarpi, því
ekki er mikið um kvenraddir á
rásinni.
Til hamingju krakkar! Þetta
er stórfínt hjá ykkur. Haldið
áfram af krafti, öllsömul!
Stórgóð upp-
færsla nem-
enda VÍ á rokk-
óperunni
Rocky Horror
Verslunarskólanemi hringdi:
„Ennþá er ég altekinn hrifningu
eftir að hafa séð uppfærslu nem-
enda Verslunarskóla fslands á
rokkóperunni Rocky Horror
laugardaginn 10. þ.m. Háskóla-
bíó var þétt setið og þar var
brjáluð stemmning. Ásamt
kórnum, sem er skipaður sextíu
nemendum, komu fram átta ein-
söngvarar sem lifðu sig inn í
hlutverkin eins og þeir hefðu
aldrei gert neitt annað en syngja
í rokkóperum.
Geysimikil vinna liggur að
baki slíkri sýningu og á þar
stærstan þátt kórstjórinn, Jón
ólafsson, kornungur maður, en
hann útsetti lögin og er jafn-
framt meðlimur hljómsveitar-
innar Toppmanna sem átti atlan
heiður af tónlistinni. Sóley Jó-
hannsdóttir danskennari aðstoð-
aði hópinn við uppfærsluna.
Búningar, lýsing og hljóðstjórn
var allt með miklum ágætum.
Þið stóðuð ykkur vel krakkar!
Ég hrópa húrra fyrir ykkur og
skora á ykkur að endurtaka
óperuna. Ég er viss um að þið
getið troðfyllt Háskólabíó aftur
ef þið kærið ykkur um.
Með þökk fyrir frábæra
skemmtun."
Fyrirspurn
varöandi sjón-
varpsskerminn
á sovéska
sendiráðinu
Björn Hjaltason hringdi og
óskaði eftir að ítreka fyrirspurn
sem hann fékk birta hér í Vel-
vakanda sunnudaginn 5. febrúar:
— Hinn 5. febrúar gerði ég fyrir-
spurn til yfirvalda vegna sjón-
varpsskermsins sem er á sendi-
ráði Sovétríkjanna við Túngötu.
Hafa verið gerðar ráðstafanir til
að fjarlæga þennan skerm? Ekki
veit ég til hvaða aðila maður á
að snúa sér með slíka fyrirspurn
og bið þig þess vegna að ítreka
hana í dálknum þínum Velvak-
andi góður.