Morgunblaðið - 24.02.1984, Side 11

Morgunblaðið - 24.02.1984, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 Bréfkorn til séra Sigfusar á Hofí frá Halldóri Blöndal Kæri vin, ég sé að þú ert farinn að skrifa um Guðs orð í Þjóðviljann og boðar á því nokkurt framhald. Það er ný- lunda á þeim bæ og góð tíðindi — nema annað búi undir og vík ég að því síðar. En svona er nú þetta Sigfús minn og ég get ekki stillt mig um að skjóta þessu að þér í leiðinni: Þú manst eftir sögunni um séra Arnljót ólafsson, meðan hann sat á Bægisá. Eitt sinn vakti hann máls á því í predikunarstólnum, hvort sóknarbörnin væru fús að leggja eitthvert fé af mörkum til kristniboðs í fjarlægum álfum. — „Ætli það væri ekki nær að byrja * hér í Hörgárdalnum," gall við í bónda einum. Eins fór fyrir mér, þegar ég sá þig í predikunarstell- ingum í Þjóðviljanum: Þýðir þetta nokkuð? Er ekki betri hljóm- grunnur fyrir Guðs orði í Vopna- firðinum eða hvað? En ekki skal ég gera lítið úr trú þinni á það, sem þú ert að gera, gamli vinur. Annars rifjaðist hálfgleymt at- vik upp fyrir mér, þegar ég sí til- skrifið þitt „á messudegi" í Þjóð- viljanum. Við ólafur Ragnar Halldór Blöndal Grímsson vorum fyrir tveim, þrem árum á Skálholtsstað í hópi lærðra og leikra, sem hóað hafði verið saman til þess að skiptast á skoðunum um stríð og frið og orsakir þess arna. Óþarfi að taka það fram að við ólafur Ragnar vorum ósammála um grundvallar- atriði eins og það hvort lýðræðis- legir stjórnarhættir væru eftir- „Ég veit ekki hvort þú getur séö þaö fyrir þér hvernig Ólafur Ragnar lítur út fyrir framan alt- arið á Skálholtsstað og reynir að vera biskup frá Hollandi. Ég get trú- að þér fyrir því, að það var ekki laust við hann væri kindarlegur þá stundina.“ sóknarverðir og raunar forréttindi á jörðu hér, svo að okkur bæri skylda til að leggja mikið í sölurn- ar til að verja þá, ef við skeyttum ekki um okkur sjálfa, þá vegna barna okkar og eftirkomenda. Eft- ir löng og ströng fundarhöld var gengið í kirkju og hlýtt á kór Hamrahlíðarskóla undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Það var ógleymanleg stund. Síðan las Ólafur Ragnar biskupsbréf hol- lenskt, sem hann hafði lagt á sig að snúa á íslenska tungu, auðvitað af því að boðskapurinn var honum pólitískt þóknanlegur. Á meðan var hann biskupslegri en nokkur biskup og sagði „vér“ og „yður“ með þeim rétta hreim. En fyrir mér fór eins og Jóni Loftssyni forðum, sem lét sig litlu skipta, þótt skilaboð hefðu borist um langan veg og sá þættist nærri guðdómnum, sem bað fyrir þau: „Heyra má eg erkibiskups boðskap en ráðinn er eg í að halda hann að engu.“ — Ég veit ekki hvort þú getur séð það fyrir þér hvernig Ölafur Ragnar lítur út fyrir fram- an altarið á Skálholtsstað og reyn- ir að vera biskup frá Hollandi. Ég get trúað þér fyrir því, að það var ekki laust við hann væri kindar- legur þá stundina. Og nú ert þú sem sé farinn að lesa okkur pistilinn í Þjóðviljan- um á messudegi: „Svona pólitíska afsiðun má þjóðin hvorki þola né láta bjóða sér. Hún er ekki aðeins andfélagsleg. Hún er ókristileg með öllu. Lausnarinn sagði nefni- lega ekki: Hungraður var ég, og þér lækkuðuð launin mín og hækkuðuð verð á nauðþurftum mínum; sjúkur var ég, og þér sögð- uð: Borgaðu, góðurinn. Hann sagði allt annað. Þótt þetta sé í munni íslenskra valdsmanna „að vinna að hjöðnun verðbólgunnar" — og sama hversu margir verða sárir í þeim leik eða troðast undir í þess- um þjösnaskap." Svo að nú er þinn gamli skóla- bróðir orðinn Antíkristur sjálfur, Sigfús minn. En ég spyr: Berð þú sannleikanum vitni? Þér er tamt að vitna í Biblíuna og kannt þau fræði betur en ég. Veist líka betur en ég, að hún gefur ekki rétta svarið nema hún sé rétt lesin fremur en faðirvorið er tilbeiðsla, lesið aftur á bak. Til þess að þú 11 skiljir betur hvað^ég á við, bið ég þig að svara þessum spurningum: Hvernig getur þú fært rök að því, að vaxandi verðbólga milli 100 og 200% sé betri fyrir þá verst settu en stöðugt verðlag — og hafðu þá í huga að mestu góðæri Islandssög- unnar snerust til ills vegna verð- bólgunnar? Minnir það ekki á háttalag faríseanna, þegar sagt er um þá sem ábyrgð bera á stjórn landsins: Þessir menn eru ekki eins góðir og ég og er „sama hversu margir verða sárir í þeim leik eða troðast undir í þessum þjösnaskap"? Með hvaða hætti hefur sjúkum verið íþyngt, svo að það réttlæti þín orð: „Sjúkur var ég, og þér sögðuð: Borgaöu, góður- inn.“ Það eiga margir um sárt að binda í þjóðfélagi okkar og öll vilj- um við bæta kjör hinna verst settu. En það hefur vafist fyrir að finna ráðin til þess. Síðasta ríkis- stjórn lagði skattskrána til grundvallar og varð að athlægi. Guðmundur J. Guðmundsson hef- ur kveðið upp úr um það, að ekki sé hægt að láta við það sitja að hækka lágmarkslaunin, þar sem það komi „illa niður á öllum eftir- vinnu- og bónustöxtum". Og svo geta menn undir yfirskini Guðs orðs gert skop að því, þegar reynt er að finna leiðir til að bæta lífs- kjör án verðbólgu. Gamli vin! Ég gat ekki stillt mig um að senda þér þessar línur. For- láttu mér það. En svona er nú þetta. Predikun þín í Þjóðviljan- um er Ólafur Ragnar fyrir framan altarið i Skálholtskirkju. Með kærri kveðju. Halldór Blöndal er alþingismaður Sjílfstæðisílokks fyrir .Xorður- landskjördæmi eystra. rö strax , dag í síma 77500. NÝJA ROKKIÐ í nk. laugardagskvöld Allir bestu og mestu rokkarar landsins koma fram meö hljómsveit Gunnars Þóróarsonar og Dúa-kvartettinn og flytja fjölda rokklaga fyrri áratuga. Tarzan og Zorro kynna. Gestir fá aö velja sér eigin rokklög úr djúkboxi Broadway. Matseðill Kjúklingapaté í vatnsdeigi með kjöthlaupi. Broadway-steik með smjör- steiktum sveppum, gljáöum gulrótum, rjómasoönu blóm- káli, hrásalati, bökuöum jarö- eplum og béarnaise-sósu. Ðroadway-pakki Flugleiöa fyrir aöeins 3.445 krónur! Flugleiöir bjóöa flug, gistingu í 2 nætur, kvöldverö og skemmtun á Broadway fyrir 3.345 krónur!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.