Morgunblaðið - 24.02.1984, Síða 18

Morgunblaðið - 24.02.1984, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 Birgir ísleifur Gunnarsson: Árás Alþýðubanda- lags á forseta ASI Meginmarkmið stjórnarinnar raskast lítt Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, fékk marga hnútuna í utandagskrárumræðu á Alþingi í gær, en stóð ósár eftir, ef marka má svip þann er þessi mynd sýnir. — sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins Þessir samningar ganga nokkuö lengra en efnahags- legar forsendur standa til, sagði Þorsteinn Pálsson formaöur Sjálfstæðisflokks- ins efnislega á Alþingi í gær, en þó ekki lengra en svo, að meginmarkmið ríkisstjórnar- innar raskast ekki að ráði. Allur málflutningur for- ystuliðs Alþýðubandalagsins hér á Alþingi í dag hefur ver- ið samfelld heiftarárás á Ásmund Stefánsson, forseta ASÍ, og miöstjórnarmann Al- þýðubandalags, sagði Birgir Isleifur Gunnarsson (S), efn- islega eftir haft. • Ólafur Ragnar Grímsson (Abl) kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í Sameinuðu þingi í gær. Hafði þingmaðurinn sitt hvað á hornum sér varðandi samning ASÍ og VSÍ. Spurðist m.a. fyrir um: 1) hvern veg ætti að fjármagna hliðarráð- stafanir, sem ríkisstjórnin hefði undirgengist samhliða samning- um, 306-330 m.kr., 2) hvort taka ætti hluta af því fjármagni, sem nú fer í að halda vöruverði í land- inu niðri, til þessarra hluta, 3) hvort fjármálaráðherra myndi segja af sér vegna þess að kjara- samningarnir færu yfir þau 4% mörk, sem ráðherrann hefði mið- að hugsanlega afsögn sína við. • Kjartan Jóhannsson (A) vildi fá upplýst, hvort hliðarráðstafanir, sem ríkisstjórn hefði lofað, væru bundnar því að öll aðildarfélög ASÍ staðfestu samningana. Hann spurði ennfremur, hvort fjármála- ráðherra myndi bjóða BSRB sam- skonar hækkun og ASÍ-samning- arnir fælu í sér. Ennfremur, hvort frumvarp um nýjan vísitölugrund- völl tengdist hinum nýju samning- um. • Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, sagði aðila vinnu- markaðar, fulltrúa ASÍ og VSÍ, hafa sett fram óskir um þær hlið- arráðstafanir, sem ríkisstjórnin hefði undirgengist, í trausti þess að ná fram heildarsamningum á vinnumarkaði, án átaka. Fjár- mögnun þessarra hliðaraðgerða, til að mæta þörfum hinna lægst launuðu, væri ekki ráðin. Það yrði gert í samráði við aðila vinnu- markaðarins. Fulltrúar VSÍ hefðu viðrað tilfærslu fjármuna frá niðurgreíðslum til þessara hluta. Forsætisráðherra sagði ákvörðun um framlagningu nýs vísitölu- frumvarps hafa verið tekna sl. vor, óháð samningum nú. Ríkis- stjórnin muni ekki gleyma lífeyri öryrkja og aldraðra. Ekki hefði verið tekin afstaða til BSRB- samninga, en ljóst væri þó, að samningar á almennum vinnu- markaði hefðu þar áhrif á. Þessir samningar valda einhverri en óverulegri röskun á efnahags- og verðþróunarmarkmiðum ríkis- stjórnarinnar. • Kristín Halldórsdóttir (Kvl) sagði kjör hinna lægst launuðu til skammar. Leiðrétting, sem nú væri rædd, væri ónóg. Það bólar ekki á því í þessum samningum, að taka sérstaklega á launamálum kvenna. Það ætti að hækka þær starfsstéttir þar sem konur eru fjölmennastar um tvo launa- flokka. • Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, taldi samn- ingana ganga nokkuð lengra en efnahagslegar forsendur stæðu til. Þjóðartekjur myndu rýrna áfram 1984. Hinsvegar hefði náðst meiri árangur í verðbólguhjöðnun, en upphafleg markmið stóðu til. Samningarnir gengu ekki lengra en það að meginmarkmið stjórn- arinnar myndu í aðalatriðum standast. Fjármagna yrði kostnað af hliðarráðstöfunum með til- færslum innan fjárlagarammans, eins og óskir ASf og VSÍ stæðu til. Við þessum óskum hefði ríkis- stjórnin orðið í trausti þess að samningar næðust milli þeirra heildarsamtaka, ASÍ og VSI, sem hefðu sett fram óskirnar. Vonandi stenzt sú samningsgerð og verður til farsældar fyrir þjóðfélagið í heild. • Kjartan Olafsson (Abl) sagði m.a. að hinir lægst launuðu fengju 15,5% kauphækkun, samkvæmt hinum nýju samningum. Hann spurði hvort annar hópur lág- launafólks, aldraðir og öryrkjar, fengju ekki hliðstæða hækkun. Þar væri þörfin mest. • Albert Guömundsson, fjármála- ráðherra, sagði efnislega, að niðurgreiðsla á launum atvinnu- vega, samræmdist ekki grund- vallarskoðunum sínum. Atvinnu- vegirnir ættu að hafa aðstæður til að standa undir launagreiðslum, sem þeir semdu um. Hjöðnun verðbólgu og vaxtalækkun kæmi þeim til góða. Sér hefði, af sam- ráðherrum, verið gert að færa til fjármuni, innan fjárlagaramm- ans, til að mæta hliðarráð- stöfunum, tengdum þessum samn- ingum. Hann léti nú skoða það mál, gaumgæfilega, hvort upp gæti gengið, án þess að leggja á nýja skatta eða auka á skuldir. Öllum mætti ljóst vera, nema e.t.v. Alþýðubandalagsmönnum, að engin stofnun yrði rekin á út- gjöldunum einum saman. Þó þeir Alþýðubandalagsmenn hefðu sýnilega mikinn áhuga á því, hvort hann segði af sér eður ei, yrðu þeir engu að síður að hafa biðlund enn um sinn. Fjárlaga- ramminn og það sem í honum er verður nú enn tekinn til heildar- skoðunar. • Steingrímur Sigfússon (Abl) kvað fjármálaráðherra hafa farið í hliðarherbergi, fært skjöld, sem hann hafi borið framanvert á bak aftur og væri nú kominn í skógar- ferð til að leita skýringa á því, hversvegna hann sæti áfram. • Guðmundur Einarsson (BJ) sagði samningsmátann þann, að taka peninga úr vösum fólks, sem hefði lítið, og færa í vasa fólks á sultarkjörum. Með þessum samn- ingum væri verkalýðsforystan að viðurkenna, að það sem ríkis- stjórnin hefði gert á liðnu ári, hefði verið rétt. Verið væri að nota tryggingakerfið til að finna ódýra leið til að halda uppi lágmarks- launum, en hér væri ekki um frjálsa samninga að ræða. • Stefán Benediktsson (BJ) sagði gerða kjarasamninga sýna að verkalýðsforystan hefði hafnað málflutningi A-flokka. Þeir væru opinbert samþykki á gerðum ríkis- stjórnarinnar liðið ár. Kjara- skerðingin væri nú lögtekin af öll- um aðilum vinnumarkaðarins. Samtrygging gömlu flokkanna hefði enn einu sinni heimfært það, að eina hagstjórnartækið á íslandi væru launþegar, upp til hópa. • Karl Steinar Guðnason (A) kvað svokallaða verkalýðsforystu, hafa verið stanzlaust snupraða í þess- um umræðum. Þingmenn, sem sætu inni t ylnum, þættust hafa efni á að ganga í skrokk á þeim, sem haldið hefðu á málum laun- þega í gerðum samningum ASÍ og VSÍ. Rétt væri að kjaraskerðingin væri hvergi nærri bætt upp. Samningarnir fælu hinsvegar í sér það sem frekast hefði verið hægt að fá, án átaka. Fólk, sem byggi við takmarkað atvinnuöryggi og takmörkuð fjárráð, teldi sig vart í stakk búið til stórátaka, sem hafi verið hinn kosturinn í málinu. Karl Steinar tók dæmi af ein- stæðu foreldri með eitt barn. Lág- markslaun og félagslegar aðgerð- ir, sem fylgja ætti samningum, færðu þessu foreldi kr. 16.938.- í stað kr. 13.089.- Hækkun um 29,4%. Jafnvel þó hluti af trygg- ingabótahækkun yrði tekin af niðurgreiðslum næmi tap pr. mán- uð, þessvegna, aðeins litlu broti af því sem vinnast myndi. • Sighvatur Björgvinsson (A) sagði niðurstöður þessa samnings, eins og niðurstöður samninga í tíð fyrri ríkisstjórna, vera smánar- blett á íslenzku þjóðfélagi, hvað kjör lágtekjufólks varðar. • Birgir ísleifur Gunnarsson (S) sagði allan málflutning talsmanna Alþýðubandalags, þegar grannt væri gáð, samfellu gífuryrða um og árása á Ásmund Stefánsson, forseta ASÍ og miðstjórnarmann í Alþýðubandalagi, sem forystu hefði haft í gerðum samningum. Alþýðubandalagið skyldi við þjóð- arbúskapinn í 130% verðbólgu, erlendum skuldum sem námu 60% af þjóðarframleiðslu, ríkissjóð á hausnum, atvinnuvegi í kaldakoli og fjöldaatvinnuleysi á þröskuldi. Forystumenn Alþýðubandalagsins kynnu hins vegar illa við sig án valdastóla. Þeir hefðu treyst því að þeir gætu hrakið núverandi rík- isstjórn frá völdum og breytt hjaðnandi verðbólgu í fyrra stand með verkalýðshreyfinguna að vopni. Þessar vonir hafi nú brugð- izt. Árásir þingmanna Alþýðu- bandalags á forseta ASÍ og fyrir- liggjandi samninga, sem þing- menn hafi nú mátt hlusta á í hverri ræðunni af annarri, stafi af vonbrigðum vegna þess, að fagleg- ir forystumenn verkafólks hafa metið heildarhagsmuni meir en persónulega valdadrauma flokks- foringja. • Svavar Gestsson (Abl) sagði Birgi ísleif fulltrúa svartasta íhaldsins og tala eins og „subbu- dálkur Morgunblaðsins", Stak- steinar, væri skrifaður. Birgir væri þar að auki bandingi fjár- málavaldsins og þess stéttarlega afturhalds sem birtist í Vinnu- veitendasambandinu, Verzlunar- ráðinu, Sjálfstæðisflokknum og Morgunblaðinu. Forsætisráð- herra, sem væri nú í vinnu hjá afturhaldinu, hefði storkað verka- lýðsfélögum meir en nokkur annar forsætisráðherra með þeim hótun- um, að félagsmálapakkinn fengist ekki afgreiddur nema öll aðiidar- félög ASÍ féllust á samningana. • Ólafur Þórðarson (F) sagði m.a. efnislega að samningarnir hefðu aldrei verið gerðir nema Ásmund- ur Stefánsson, formaður ASÍ, hefði skrifað undir þá. Þingmenn Alþýðubandalagsins væru fyrst og fremst að skamma hana miskunn- arlaust og kysu að gera það Þþing- sölum, þar sem hann gæti ekki svarað fyrir sig, fremur en á öðr- um vettvangi. Sveik forseti ASl Alþýðubandalagið eða alþýðu landsins, sem hann er fulltrúi fyrir? Ásmundur hefði lýst yfir þeirri skoðun sinni í Þjóðviljanum að í þessum samningum væri alvarlegri tilraun gerð en áður til að rétta hlut þeirra lægstlaunuðu í landinu og samningarnir væru betri kostur en að efna til átaka á vinnumarkaðnum. Þetta væri stór yfirlýsing sem gæfi tilefni til þess m.a. að rifja upp samninga fyrr- verandi fjármálaráðherra við lækna á sínum tíma. I Þjóðviljan- um hefði hinn almenni verkamað- ur hins vegar fengið tilmæli um að fella samningana, m.a. frá Svavari Gestssyni, formanni Alþýðu- bandalagsins. • Eiður Guðnason, (A) sagði um- ræðurnar í þinginu marka tíma- mót, þar sem það hefði ekki áður gerst að Alþýðubandalagið og formaður þess í fararbroddi réðist ekki leynt heldur ljóst á forseta ASÍ og forystu sambandsins. For- ysta ÁSl og Álþýðubandalagsins væri ekki samstíga í þessu máli, enda væri þingmönnum Alþýðu- bandalagsins heitt í hamsi við þessar umræður. Kvaðst Eiður telja að Ásmundur Stefánsson, hefði metið stöðuna rétt, enda hefði hann mjög náin tengsl við fólkið á vinnustöðunum og fulla yfirsýn yfir stöðu mála. • Svavar Gestsson, (Abl) sagði að ljóst væri að innan verkalýðssam- takanna væru deildar meiningar um hvort beita ætti afli samtak- anna nú eða síðar til að knýja fram niðurstöður. Ríkisstjórnin hefði manað til átaka allt frá því að hún var mynduð. Það væri rangt hjá ólafi Þórðarsyni að verkalýðshreyfingunni yrði skipað fyrir verkum af pólitískum aðil- um, hún væri samsett fólki með mismunandi skoðanir og mismun- andi viðhorf á faglegum grund- velli. Ágreining væri víða að finna um þessa samninga m.a. innan Al- þýðuflokksins og vitnaði Svavar til afstöðu Jóhönnu Sigurðardótt- ur, varaformanns þingflokks Al- þýðuflokksins, að þessu leyti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.