Morgunblaðið - 29.02.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 1984
13
Náttsöngur List-
vinafélagsins í
Hallgrímskirkju
í NÁTTSÖNG í Hallgrímskirkju í
kvöld klukkan 22.00 munu hjónin
Inga Rós Ingólfsdóttir og Höröur Ás-
kelsson leika saman á selló og orgel
tvö verk eftir Theodor Kirchner.
Þetta verður síðasti Náttsöngur
að sinni, því á föstunni eru haldnar
föstuguðsþjónustur á miðviku-
dagskvöldum í Hallgrímskirkju. í ár
verður hafður nokkuð annar háttur
á föstuguðsþjónustunum en áður. í
tengslum við þær verður boðið upp á
fræðsluerindi í safnaðarheimilinu,
þar sem fyrirlesari verður Einar
Sigurbjörnsson.
Kaupþing hf.:
Rætt um mögu-
leika sparifjár-
eigenda
FYRIRTÆKIÐ Kaupþing efnir til al
menns fræðslufundar næstkomandi
fimmtudag klukkan 20.30 í Kristalssal
Hótels Loftleiða. Á fundinum veröur
fjallað um efnið „Hvað bjóða bankar
sparifjáreigendum og hvers eiga þeir
úrkosti annars staðar."
Dr. Pétur H. Blöndal, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings, flytur
inngangsorð. Höskuldur Ólafsson,
bankastjóri Verzlunarbanka Is-
lands, fjallar um samskipti banka
og sparifjáreigenda. Guðmundur
Arnaldsson, viðskiptafræðingur og
fjármálastjóri Plastprents hf., fjall-
ar um hag sparifjáreigenda fyrr og
nú. Ari Arnalds, verkfræðingur,
fjallar síðan um sparnað, en að er-
indum loknum verða frjálsar um-
Morgunblaðið/KÖE
í leiknefnd Frumsýning á Okla-
Herranætur: <■ ^ rri r \ r
homa i Tonabæ í gær
HERRANÓTT Menntaskólans í Reykjavík
frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn Oklahoma
eftir Rogers og Hammerstein. Sýningar eru í
Tónabæ. í frétt frá Herranótt segir, að það
verði Iff og fjör á Herranótt, þar sem rómantík-
in verði í hávegum höfð og atburðirnir svífi á
rósrauðum skýjum blekkingarinnar.
Leikurinn gerist í sæluríkinu Oklahoma
árið 1880, sem á þeim tíma hét raunar Indi-
an Territory og greinir frá baráttu kúreka
og bænda fyrir auknu landrými, sem leiðir
til stofnunar nýs ríkis, Oklahoma. Inní leik-
inn fléttast svo söngur af ástum og mann-
drápum, eins og vera ber í sönnum vestra.
Leikarar í sýningunni eru 49 talsins, 24ra
manna hljómsveit sér um undirleikinn og
hefur Ríkharður Örn Pálsson útsett tónlist-
ina og er hann jafnframt hljómsveitarstjóri.
Bára Grímsdóttir hefur æft kórinn í sýning-
unni og Ingibjörg Björnsdóttir einsöngvar-
ana en leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir.
Leikmynd og búningar eru gerð af hópnum
undir stjórn þeirra Baltasar Samper og
Hildar Svavarsdóttur, sem jafnfrmt eru
leikarar í sýningunni. Halla Margrét Árna-
dóttir er dansahöfundur og hefur æft dans-
ana.
f leiknefnd Herranætur eru nú sjö stúlk-
ur, sem ákváðu að í ár skyldi ráðist í þetta
stóra verkefni, og ekki brugðust nemendur
skólans þeim því geysifjölmennt var á nám-
skeiði því sem efnt var til í október og nóv-
ember og var í raun undanfari sýningarinn-
ar. Og nú sýnir Herranótt afraksturinn af
vinnu þessa fjölmenna hóps í Tónabæ
eitthvað fram eftir marsmánuði.
Æskulýðsráð Reykjavíkur lagði hópnum
til æfingahúsnæði og auk þess hafa fjöl-
margir komið til móts við hópinn og á ýms-
an hátt lagt honum lið.
HAGKAUP
Reykjavík
Akureyri
Njarðvík
Fermi
Jakki Jakki
stærðir 1-2 789,- stærðir 1-2 789.-
Buxur Buxur
stærðirs-m-l 889,- stærðirs-m 989,-
Jakki
stærðir 1-2
Samfestingur
stærðir xs-s-m-l
789,-
I 989 -
Jakki
stærðir I -2
Buxur
stærð s-m 989
789,-
Jakki
stærðir 1-2
Pils
stærðir s-m-l
789,
989,
Samfestingur
stærðir xs-s-m-l 1989,
Sfmi póstverslunar er 91-30980