Morgunblaðið - 29.02.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 1984
15
Sprengjutilræði
Símamynd AP.
Tvær handsprengjur sprungu í anddyri stórrar versl-
unar í Jerúsalem í ísrael í dag. Fjórum sprengjum
hafði verið komið fyrir í kassa í anddyrinu, en tvær
sprungu ekki. 22 slösuöust, einn lífshættulega, en
allir illa. Enginn hafói lýst verknaöinum á hendur sér
síðast er fréttist, en ísraelski herinn hafði handtekiö
nokkra araba og sættu þeir yfirheyrslum.
Vaxandi njósnir
Austur-Evrópu-
ríkjanna í Noregi
Ósló, 28. febrúar. AP.
„ÁHUGI kommúnistaríkjanna á Nor-
egi hefur vaxiö mjög á síðustu árum
og njósnarar þaöan eru nú fleiri hér
en nokkru sinni fyrr. heir eru einkum
á höttunum eftir iðnaðarieyndarmál-
um en Norömenn ráða nú yfir mikilli
tækniþekkingu hvaö varðar olíu-
vinnslu," segir Jostein Erstad, yfir-
maöur norsku leyniþjónustunnar.
„Sú breyting hefur orðið á, að
leyniþjónustur kommúnistaríkj-
anna stunda nú miklu víðtækari
starfsemi í Noregi en áður var.
Venjulegar njósnir, undirbúning
skemmdarverka og stór liður í
starfseminni er að koma á fram-
færi röngum upplýsingum og grafa
undan tiltrú almennings á
mönnum og stofnunum, sem and-
stæðar eru hagsmunum kommún-
istaríkjanna."
Jostein Erstad greindi frá þessu í
fyrirlestri, sem hann flutti í Ósló í
fyrri viku, en það var í fyrsta sinn
sem haldinn er opinber fyrirlestur
um starfsemi og viðfangsefni
norsku leyniþjónustunnar.
Jostein Erstad segir, að flestir
njósnarar austantjaldsríkjanna
hafi löglegt dvalarleyfi í Noregi og
að lítið sé um að þeir reyni að koma
Frænka forsætisráðherrans vill flýja A-Þýskaland:
Stoph reynir að gera sem
minnst úr skyldleikanum
Berlín, 28. Tebrúar. AP.
Berlín, 28. Tebrúar. AP.
WILLI Stoph, forsætisráðherra
Austur-Þýskalands, reyndi í dag að
gera sem minnst úr skyldleika sín-
um við konuna, sem ásamt fjöl-
skyldu sinni hefur leitaö hælis í
vestur-þýska sendiráðinu í Prag í
Tékkóslóvakíu og krefst þess að fá
að flytjast til Vestur-Þýskalands.
Þykir þetta mál mjög vandræðalegt
fyrir austur-þýsk stjórnvöld.
í fremur óvenjulegri frétt, sem
hin opinbera fréttastofa A-Þýska-
lands flutti, var viðurkennt, að
austur-þýsk fjölskylda væri í
v-þýska sendiráðinu í Prag og að
föðurnafn konunnar væri Stoph.
Sagt var líka, að forsætisráðherr-
ann væri ekki í „neinum tengsl-
um“ við fjölskyiduna en ekki er
litið á það sem beina neitun við
því, að þau séu skyld eins og
vestur-þýska stjórnin hefur stað-
fest. í fréttinni var farið mjög
háðulegum orðum um fjölskyldu-
föðurinn og sagt, að hann væri
hinn mesti ævintýramaður.
Hans-Dieter Berg og kona hans
Frásögn liðhlaupa úr sovéska hernum í Afganistan:
Liðsandinn í molum og
liðhlaupum fjölgar æ
leituðu hælis í vestur-þýska sendi-
ráðinu ásamt börnum sinum
tveimur, sjö ára gömlum syni og
þriggja ára gamalli dóttur, og
móður Bergs, Olgu. í vestur-þýsku
blöðunum hafa borist fréttir um,
að tveir eða þrír aðrir Austur-
Þjóðverjar hafi leitað á náðir
v-þýska sendiráðsins í Prag en
þær hafa ekki fengist staðfestar.
Stjórnum beggja þýsku ríkj-
anna þykir þetta mál hið óþægi-
legasta. Willi Stoph og austur-
þýskum stjórnvöldum finnst það
lítillækkandi en vestur-þýska
stjórnin óttast að afleiðingarnar
geti orðið stirðari samskipti milli
ríkjanna. Þess vegna vilja þær
sem minnst um málið tala en sagt
er að samningaviðræður fari fram
á bak við tjöldin.
New Haven, ('onnecticut, 28. febrúar. AP.
EF MARKA má upplýsingar tveggja
liðhlaupa úr her Sovétmanna í Afg-
anistan, sem komnir eru til Banda-
ríkjanna, má ætla að alit að 2% her-
mannanna gerist liðhlaupar í mán-
uði hverjum.
„Það hefur enginn áhuga á né
vilja til að murka lífið úr saklaus-
um borgurum," sagði hinn 19 ára
gamli Alexander Boranov á fundi í
Yale-háskóla í gærkvöldi. „And-
legt þrek hermannanna er í algeru
lágmarki," bætti hann við. Fund-
urinn í gær er sá fysti í fyrirhug-
aðri röð funda.
Boranov og félagi hans, Nikolai
Chernenko yfir-
maður varnarmála
Moskvu, 28. rebrúar. AP.
VESTRÆNIR sendiráðsstarfsmenn
sögðu í gær, að Konstantin Chern-
eko, arftaki Yuri Andropov í emb-
ætti leiðtoga sovéska kommúnista-
flokksins, væri nú jafnframt orðinn
formaður varnarmálaráðs landsins.
Embætti þetta er æðsta embætti ör-
yggis- og varnarmála í landinu.
Að vanda hefur ekki verið skýrt
frá þessari auknu vegsemd Chern-
enkos í sovéskum fjölmiðlum.
Hins vegar skýrðu sendiráðs-
starfsmenn frá því að á degi hers-
ins, sem haldinn var hátíðlegur sl.
fimmtudag, hafi Nikolai V. Ogar-
kov, marskálkur og yfirmaður sov-
éska hersins, vitnað til Chernenk-
os sem formanns varnarmála-
ráðsins.
Forverar Chernenkos, bæði
Andropov og Brezhnev, höfðu
þetta sama embætti á hendi sem
og forsetatign og embætti leiðtoga
sovéska kommúnistaflokksins.
Chernenko hefur enn ekki verið
kjörinn forseti Sovétríkjanna.
Eigi embætti forseta að falla
Cherneko í skaut er talið líklegt að
hann verði kjörinn á næsta fundi
æðsta ráðsins í maí eða júní.
Razkov, gerðust Iiðhlaupar í júlí í
fyrra, en voru síðan handteknir af
frelsissveitunum. Urðu að dvelja í
5 mánuði í fangabúðum þeirra,
skammt frá Kabúl, en bera þeim
vel söguna. Segjast hafa notið
góðs aðbúnaðar og verið hjálpað
til að flýja til Evrópu eftir leyni-
legum leiðum.
í frásögnum sínum sögðust þeir
Boranov og Razkov oft hafa heyrt
af fjöldaaftökum sovéskra borg-
ara, án tillits til kynferðis eða ald-
urs. íbúar sumra þorpa hafa í
sumum tilfellum verið myrtir allir
með tölu. Ekki kváðust félagarnir
hafa orðið varir við að efnavopn-
um væri beitt í Afganistan.
Þær fregnir bárust svo frá
Islamabad í Pakistan í morgun, að
eldflaugar frelsissveitanna hefðu
hæft sovéska sendiráðið í Kabúl
öðru sinni í þessum mánuði.
Skothríðin á Kabúl var hluti um-
fangsmeiri aðgerða frelsissveit-
anna víðs vegar um Iandið. Voru
m.a. fjórar , lögreglustöðvar
brenndar til grunna í orrahríð-
inni. Nákvæmar upplýsingar um
mannfall liggja ekki fyrir.
inn í landið á fölsku nafni. Norska
leyniþjónustan hefur farið fram á,
að ferðafrelsi sendimanna frá
kommúnistaríkjunum verði tak-
markað en á það hefur norska
utanríkisráðuneytið ekki viljað
fallast. Svenn Stray, utanríkis-
ráðherra, segir, að sú regla, að cr-
lendir sendimenn geti farið frjálsir
ferða sinna í Noregi, muni áfram
gilda.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Filippseyjar:
45 falla
í átökum
Zamboanga, Kilippwvjum, 28. mars. AP.
TALIÐ er aö a.m.k. 45 manns hafi
lálið IiTiö í hörðum átökum á milli
hersins á Filippseyjum og uppreisn-
armanna úr röðum múhameðstrúar-
manna á laugardag. Þetta er mesta
mannfall í átökum þessara tveggja
afla í endurteknum skærum að und-
anförnu.
Þá skýrði varnarmálaráðuneytið
í Manila einnig frá dauða 12 manna
í átökum við stjórnarherinn í öðru
héraði. Átökin á öllum þremur
stöðunum eru liður í baráttu að-
skilnaðarsinna og vopnaðrar hreyf-
ingar kommúnista gegn stjórnvöld-
um.
Moro-aðskilnaðarhreyfingin hef-
ur í meira en áratug barist fyrir
því, að múhameðstrúarmenn á Fil-
ippseyjum fái að ráða sér sjálfir og
þurfi ekki að lúta stjórn kaþólikka,
sem eru í miklum meirihluta á eyj-
unum.
Jan 6/3
Jan 19/3
Jan 2/4
Jan 16/4
ROTTERDAM:
Jan 7/3
Jan 20/3
Jan 3/4
Jan 17/4
ANTWERPEN:
Jan 8/3
Jan 21/3
Jan 4/4
Jan 18/4
HAMBORG:
Jan 9/3
Jan 23/3
Jan 6/4
Jan 20/4
HELSINKI/TURKU:
Hvassafell 5/3
Hvassafell 26/3
LARVIK:
Francop 12/3
Francop 26/3
Francop 9/4
GAUTABORG:
Francop 13/3
Francop 27/3
Francop 10/4
KAUPMANNAHOFN:
a Francop 14/3
Francop 28/3
Francop 11/4
SVENDBORG:
Francop 1/3
Francop 15/3
Francop 29/3
Francop 12/4
ARHUS:
Francop 2/3
Francop 16/3
Francop 30/3
Francop 13/4
FALKENBERG:
Helgafell 14/3
Mælifell 20/3
GLOUCESTER MASS.:
Jökulfell ........ 13/3
Skaftafell ....... 27/3
Helgafell ........ 14/3
Mælifell ......... 20/3
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ....... 28/3
ia
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101