Morgunblaðið - 21.03.1984, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 21.03.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 3 Morj^unblaðiö/ ÓI.K.M. Austurstræti lokað Austurstræti var lokað fyrir umferð um eftirmiðdaginn sl. mánudag, en þá var þar unnið að endurnýjun á vatnslögnum. Viðgerðarmenn grófu skurð við suðurhlið Landsbankans og varð vegfaranda sem þar átti leið um að orði, að íslendingar væru nú farnir að nota fulldjarfar aðferðir við að komast inn í bankana „bakdyramegin“. Kn víst er að um þessa leið fór enginn inn, enda löggæsla á staðnum, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Greiðsla nýrra húsnæð- islána hefst á mánudag Á MÁNUDAG hefjast greiðslur nýrra lána hjá Húsnæðisstofnun fyrir árið 1984. I>á verða greiddar milli 120 og 130 milljónir króna. Húsnæðisstofnun mun fljótlega gera útlánaáætlun til húsnæðis- mála fyrir árið 1984, byggða á ný- afgreiddri lánsfjáráætlun. Þetta kom fram í máli Alexanders Stef- ánssonar félagsmálaráðherra á Alþingi í gær. Ráðherrann gaf einnig skýrslu um ráðstafanir rík- isstjórnarinnar á sl. ári. Fram kom, að viðbótarlán sem afgreidd höfðu verið frá lánadeild- inni til veðdeildar Landsbankans að kvöldi 14. mars, voru 4.884 og námu samtals 302.893.000 kr. Veðdeildin hafði á sama tíma- bili greitt út 4.714 lán samtals að fjárhæð 288.640.000 kr. Húsnæðisstofnunin hefur lokið við að yfirfara allar umsóknir sem henni bárust varðandi þessa hækkun á lánveitingum áranna 1982 og 1983 og eru þetta því end- anlegar tölur varðandi fjölda og fjárhæð viðbótarlánanna. Miðbæjarkjarni fyrirhugaður við þjóðveginn — segir Erla Sigur- jónsdóttir, oddviti Bessastaðahrepps „SAMKVÆMT hugmyndum að aó- alskipulagi Bessastaðahrepps er fyrirhugað að reisa miðbæjar- kjarna vestur og norður með þjóð- veginum, þar sem hann liggur um Bessastaðagranda. Þó aðalskipulag sé enn ekki fyllilega frágengið, er afar ólíklegt að horfið veröi frá því. Annars get ég ekki tjáö mig frekar um þetta mál. Það er á viðkvæmu stigi og til umræðu innan hrepps- nefndar," sagði Erla Sigurjónsdótt- ir, oddviti Bessastaðahrepps, er Morgunblaðið innti hana eftir því, hvort fyrirhugað væri að reisa benzínstöð við þjóðveginn gegnt Bessastöðum. Erla sagði ennfremur, að nú væri unnið að því að ganga fylli- lega frá umræddu aðalskipulagi og vonazt væri til að það gæti legið fyrir hreppsnefnd til um- fjöllunar í maí eða júní næst- komandi. Vegna mikillar fjölg- unar í hreppnum undanfarin ár, væri mikil nauðsyn á þjónustu- kjarna, miðbæjarskipulagi, og væri fyrirhugað að hann risi á þessu svæði. Hvað varðaði bygg- ingu benzínstöðvar á þessu svæði eða nánari þætti skipulagsins vildi hún ekki tjá sig frekar um. Klías Sna land Elías Snæland ráðinn aðstoð- arritstjóri DV KLÍAS Snæland, fyrrum ritstjóri Tímans, hefur verið ráðinn aðstoð- arritstjóri Dagblaðsins og Vísis frá og með 1. apríl næstkomandi. Elías mun annast fréttastjórn á D&V ásamt núverandi frétta- stjórum. Hann hefur starfað við blaðamennsku frá árinu 1963, mest á Timanum og Vísi. Hann var ritstjórnarfulltrúi á Vísi 1978 til 1981 og ritstjóri á Tíman- um frá 1981 til síðustu áramóta. Minnum á islands- mót i vaxtarrækt 25. mars nk. Gestur mótsins Mohamed Makkawy, atvinnu- maður í vaxtarrækt. nrásalati. grlllaö „ay lrá 3.272 Xronu<r Gunna^ Guöbergur Siguröur Rúnar Sigurdór Þorsteinn Garöar Einar Stebbi Astrid nkKSÝNmG— S^TMÉGmHIN k i awÐiWLl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.