Morgunblaðið - 21.03.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.03.1984, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 Tíu ár frá afhendingu undirskrifta Varins lands: Hinn þögli meirihluti sagði álit sitt — þegar 55.522 kjósendur skoruðu á ríkisstjórn og Alþingi „að leggja á hilluna ótímabær áform um upp- sögn varnarsamningsins og brottvísun varnarliðsins" „Fallegur er kassinn, en ekki veit ég um innihaldiö," varð Olafi Jó- hannessyni forsætisráðherra að orði í anddyri Alþingishússins fyrir ná- kvæmlega tíu árum, þ.e. 21. marz 1974. Tilefnið var að Olafur tók þá, ásamt forseta sameinaðs Alþingis, Eysteini Jónssyni, á móti undir- skriftalistum frá 55.522 íslending- um, eða um helmingi atkvæðisbærra manna. llndirskriftalistarnir fólu í sér áskorun á ríkisstjórn og Alþingi að standa vörð um öryggi og sjálf- stæði íslensku þjóðarinnar en leggja á hilluna „ótímabær áform um upp- sögn varnarsamningsins við Banda- ríkin og brottvísun varnarliðsins". Söfnunin fór fram undir kjörorðinu „Varið land“, en fyrir henni stóð hópur 14 manna, sem að eigin sögn ofbauð vaxandi undanlátssemi stjórnmálamanna, utan ríkisstjórnar og innan, við áróðri herstöðvaand- stæðinga. Var svo komið, er Varið land var stofnað, að menn úr öllum flokkum virtust vera farnir að trúa því að meirihluti þjóðarinnar vildi varnarliðið á brott. Verður hér á eftir rakinn í stuttu máli aðdragandi þess að þessi umfangsmesta undirskrifta- söfnun í sögu lýðveldisins fór af stað. Upprifjunin er byggð á við- tali blaðamanns Mbl. við Þorstein Sæmundsson stjörnufræðing, Þor- vald Búason eðlisfræðing og Ragnar Ingimarsson prófessor. Þessir þrír menn áttu frumkvæðið að undirskriftasöfnuninni, en fljótlega bættust fleiri í hópinn þannig að alls urðu forvígismenn- irnir 14 talsins. „Okkar tillaga aö herinn fari,“ sagði utanríkisráðherra í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar, sem sat við völd á þessum tíma, var að kröfu Alþýðubandalagsins ákvæði um endurskoðun varnarsamningsins við Bandaríkin og brottför varn- arliðsins á kjörtímabilinu. Mikil átök voru innan Framsóknar- flokksins árið 1973 vegna varn- armála. Bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra voru úr Fram- sóknarflokknum. Af viðtölum við utanríkisráðherra, Einar Ágústs- son, í dagblöðum frá þessum tíma, kemur fram, að hann telur það vilja íslensku þjóðarinnar og rík- isstjórnarinnar að endurskoðun varnarsamningsins fari fram í þeim tilgangi að stefna að brottför hersins. Utanríkisráðherra á við- ræður við Bandaríkjamenn um varnarsamninginn í Washington í byrjun október. f viðtali við blaða- mann Mbl. í Washington, sem birt er 5. október segir Einar: „Okkar tillaga er sú að herinn fari.“ Um miðjan nóvember kemur viðræðu- nefnd frá Bandaríkjunum til ís- lands og er Einar þá spurður í Mbl. 13. nóvember hvort hann sé persónulega á því að herinn fari. Hann svarar: „Já, ég hef viljað stefna að því, en það er Alþingi, sem hefur úrslitavaldið um upp- sögn samningsins, eins og ég hef alltaf sagt.“ Eins og fyrr greinir er krafan um endurskoðun samningsins komin frá Alþýðubandalaginu, sem sæti á í ríkisstjórninni. Innan Framsóknarflokksins eru harðar deilur um afstöðuna til varnar- liðsins og veru okkar í NATO. Á Alþingi kemur um haustið fram þingsályktunartillaga frá Alþýðu- flokknum, sem varla verður túlkuð á annan veg en þann, að Alþýðu- flokkurinn vilji herinn á brott. Þá höfðu einnig nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins látið frá sér fara yfirlýsingar, sem fylgismenn veru varnarliðsins túlkuðu sem svo, að þeir væru orðnir „vakl- andi“ í afstöðu sinni. Efasemdir vakna um meirihluta á Alþingi Þetta allt varð til þess að menn fóru að efast um að meirihluti al- þingismanna væri fylgjandi því að varnarliðið yrði hér áfram. Þá kom fleira til, sem áhrif hafði á skoðanir stjórnmálamanna. Land- helgisdeilan við Breta varð til þess að menn ræddu mjög hvaða gagn við hefðum af verunni í NATÓ, afstöðu NATO til deilna tveggja aðildarþjóða o.s.frv. Að sögn þre- menninganna voru atburðir þessir keðjuverkandi og áberandi hversu herstöðvaandstæðingar nýttu sér atburðarásina. Nefndu þeir sem dæmi að í tilefni af fundi Nixons og Pompidou í Reykjavík sumarið 1973 voru herstöðvaandstæðingar mjög háværir, fjöldaganga var farin í kringum Miklatún, en fundur þjóðhöfðingjanna var haldinn á Kjarvalsstöðum. Þá kom og fram á fullveldisdaginn 1. desember áskorun frá 60 mönnum þar sem þeir lýsa stuðningi við „það stefnumark ríkisstjórnarinn- ar að taka herstöðvarsamninginn frá 1951 til endurskoðunar eða uppsagnar í því skyni að banda- ríski herinn fari úr landinu á kjör- tímabilinu". Segir þar einnig að formlegum endurskoðunartíma ljúki 25. desember 1973 og ef ekki liggi þá fyrir samningur um brottflutning hersins, „beri að segja samningnum upp einhliða". „Tími til kominn, að lýð- ræðisöflin spyrni við fótum“ í þjóðfélagsumræðunni á þess- um tíma-sjást þess merki. að fvlg- Dr. Þorsteinn Sæmundsson afhendir undirskriftalistana í anddyri Alþingis- hússins 21. marz 1974. Við þeim tóku forsætisráðherra, Ólafur Jóhannesson, og forseti Sameinaðs Alþingis, Eysteinn Jónsson. um anna ismenn óbreyttrar stefnu í varn- ar- og öryggismálum íslands eru farnir að gera sér grein fyrir þróun mála. í leiðara Mbl. 2. október 1973, sem ber heitið „Ein- angrun frá vestrænum vinaþjóð- i’“ segir m.a. vegna umræðn- um endurskoðun varnar- samningsins: „Það er alkunna, að kommúnistar hafa náð mikilli leikni í því víða um heim, þar sem þeir hafa komizt í samvinnu við lýðræðisöfl um ríkisstjórn að teyma lýðræðisflokkana smátt og smátt, stig af stigi, þrep fyrir þrep í þá átt, sem kommúnistar helst óska. Líklega hefur almenningur ekki gert sér grein fyrir því, hvað þessi þróun er komin langt hér á íslandi." Lokaorð leiðarans eru: „Tími er til kominn, að lýðræðis- öflin spyrni við fótum og stöðvi þessa uggvænlegu framvindu mála.“ Ragnar, Þorsteinn og Þorvaldur hafa rætt mál þessi í sínum hópi og meðal kunningja meginhluta ársins 1973, og eftir því sem líður á árið sjá þeir að við svo búið megi ekki standa. Þeir ganga í Samtök- in um vestræna samvinnu um sumarið og hyggjast fyrst reyna að ná til almennings í gegnum þau. Aðalfundur sem halda átti um haustið, er haldinn 28. nóvem- ber. Þar leggja þeir þremenningar fram ályktunartillögu þar sem þeir vara stjórnvöld við því að „láta blekkjast af síendurteknum yfirlýsingum þeirra þjartsýnis- manna, sem telja hag Islendinga best borgið með því að land þeirra verði varnarlaust", og „SVS telja fullvíst, að meirihluti íslensku þjóðarinnar sé þeirrar skoðunar að reynsla fslendinga af fram- kvæmd varnarsamningsins hafi verið hin ákjósanlegasta“. Áskorun 60-menning- anna gerði útslagið Tillagan fékkst ekki samþykkt á fundinum og segja þremenn- ingarnir að ástæðan hafi verið hótanir Framsóknarmanna um að rjúfa samtökin, ef af þessu yrði, en eins og komið hefur fram var Framsókn þá þegar klofin í mál- inu og deilur hvað harðastar með- al ungra framsóknarmanna. Þeir þremenningar sögðu sig þá þegar úr samtökunum (SVS) og í fram- haldi af áskorun 60-menninganna 1. desember hófu þeir í fullri al- vöru að ræða framkvæmd undir- skriftasöfnunar. Fljótlega urðu þeir ásáttir um, að undirskrifa- söfnunin ætti ekki að takmarkast við fámennan hóp, heldur þyrfti hún að ná til þjóðarinnar allrar. Áður höfðu þeir rætt aðrar leiðir, svo sem fundaferðir um landið o.fl. Upphafleg lágmarkstala 5 þúsund undirskriftir í lok ársins stækkaði hópurinn dag frá degi og þegar komnir voru 14 manns var ákveðið að láta stað- ar numið. Forgöngumennirnir áttu það allir sameiginlegt að telja að stjórnvöld væru ranglega að túlka skoðanir þjóðarinnar í mál- inu, og undirbúningur var hafinn að undirskriftasöfnun meðal „hins þögla meirihluta". í upphafi gerðu menn sér ljóst að ef ákveðinn fjöldi undirskrifta næðist ekki væri verr af stað farið en heima ist. Aðspurðir um viðmiðun sögðu þeir að slík söfnun hefði aðeins einu sinni farið fram áður, en það var í kringum 1960, þegar her- stöðvaandstæðingar efndu til und- irskriftasöfnunar gegn veru varn- arliðs. Árangur þeirrar söfnunar varð svo rýr, að undirskriftalist- arnir voru aldrei lagðir fram, né niðurstöðutölur birtar. Þegar Ragnar Arnalds var spurður um þessa lista í sjónvarpsviðtali, svaraði hann því einu til, að þeir væru vel geymdir. Hugmyndina að nafninu „Varið land“ átti Þór Vilhjálmsson, nú forseti Hæstaréttar. Mikil vinna var lögð í allan undirbúning, ákveðið var að taka á móti fjár- framlögum en halda nákvæmt bókhald og taka ekki á móti neinu fé, án þess að gefa númeraðar greiðslukvittanir. Undirskrifta- listarnir voru númeraðir og ekki látnir af hendi nema á persónu- lega ábyrgð þeirra sem höfðu þá undir höndum. Öll þessi ná- kvæmni kom sér vel síðar, því að eins og mönnum er í fersku minni ÁSKORUN UM UPPSOGN HERSTÖÐVARSAMNINGSINS A SAMKOMU stiident* I Háskólabfóé a.1 laugarda* I" Margrét Guðnadóttir prófestor eftirfarandl ávarp. sem 60 ein- ■taklingar h«8u rttafl undir: Við undirritufl lysum stuflningi vtð Það at«fnu««t rlkiasOórnarinnar að talu her stöflvasamninginn frá 1951 tll endurskoflunar eða uppsagnar I þvf skyni. að bandarlski hennn fari ilr landinu á kjörtlirubilinu Formlegum endurskoðunar- tlma lýkur 25. desember 1973 Liggi þá ekki f yrir samnmgur •••" brottflutning hersins, form. Lands- varafor- ber að einhliða , segjasamningnumupp Við skorum þvf á rfkisatjómina að afla sér heimildar til uppsagn i ar herstöðvasamningsins I árs- byrjun 1974. þinnig að brottför , hersins sé t^ygg, * kjörtlma- bilinu.” Undir ávarpið rita Adda Bira SigfOsdóttir AlfreðGíslason. læknir Andrés Kristjánason Atll HeimirSvemsson Baldur Odtarsson Baldur Pálmason Baldvin lfalldórsson. Benedikt Davlðsson. BJörn BJamaaon, sambands iðnverkafólks Bjöm BJamason, rektor Eðvarfl Sigurðaaon Eggert Jóhannesson, maflur S.U.F. F.llas Snæland Jónsson Gestur Jónsson. varaformaður Stúdentaráfls Gfsli B BJömsson Guflmundur Danlelsson. Gunnlaugur Stefánsson. Ilafsteinn Þorvaldsson. Ilalldór Kristjánsson. Kiritjubóli llallgrlmur Guðmundsson. form seskulýðsnefndar S.F.V * Haraldur Henrýsson. Helgi Sæmundsson llerdfs Ölafsdóttir. form verka- kvennafélagstns Akranesl Hermóður Guðmundsson HJörleifur Sigurðsson lljörtur E. Þórarinsson. TJöm Hörður Zophónlasson. ytir- kennari. Inga Bima Jónsdóttir. Ingólfur A. Þnrkelsson Jakob BJömsson. orkumálastjóri. jakob Jónæwn. Dr theol Jóhann S Hannesson. mennta- skólakénnari. Jón Asgeirsson, form Alþýöu- sambands Norðurlands form. Jón Sigurðsson. form. SJómanna- sambands Islands. jónas Kristjánsson. forstöðumað- ur Amastofnunar. Kristinn Kristmundsson. skólameistari Kristján Ingólfsson Kriatján Thorlacius NJörður P NJarðvlk. Ölafur Olafsson. landlæknir Olafur Jóhann Sigurðsaon Olafur Þ. Kristjánsson Páll A Pálsson. yílrdýralækmr Sigurður A Magnússon Sigurður Einarsson. Alþýðusambands Suðurlands Sigurður Guðgeirsson Sigurjón Rist Slgurvin Einarason Snorri Jónaaon, forsetl ASI. Stefán ögmundsson. Sveinn Skorri Höakuldsson Tryggvi Gfslaaon. skólameistari V aldimar Jóhannsson Vigdfs Finnbogadóttir. Þórbergur Þórðarson Þorbjöm Guðmundsson. form. Iðnnemasambands Islands Þorleifur Einarsson Þarsteinn öl Stephensen Þorvaldur Skúlason. Þorvarður ömólfsson. Frétt Mbl. þriðjudaginn 4. desember 1973 um áksorun 60-menninganna, sem ýtti undirskriftasöfnuninni af staö. setið. Lágmarkstala var mjög til umræðu í ljósi þess, að margir þeir sem væru sömu skoðunar og þeir, fengjust þó aldrei til að skrifa nafn sitt á slíka lista. Talan 5.000 var upphafleg lágmarkstala, sem menn komu sér saman um að ekki yrði unnt að forsmá af stjórnmálamönnum, ef hún næð- átti Varið land eftir að verða mjög til umfjöllunar í dómssölum, en sú saga verður ekki rakin að sinni. Beinskeyttur og ákvedinn texti Varið land böðaði til biaða- mannafundar 15. janúar 1974 þar sem undirskriftarsöfnunin var Hvað segja þeir í dag? HÉR Á EFTIR og í blaöinu á morgun fara viötöl við nokkra af forvígismönnunum fjórtán sem stofnuðu Variö land. Þeir voru spuröir hvaö þeim væri eftirminnilegast frá þeim tíma sem söfnunin stóö yfir. Þá er einnig rætt við Ólaf Jóhannesson sem var forsætisráöherra á þeim sama tíma og tók hann ásamt Eysteini Jónssyni þáverandi forseta Sameinaðs Alþingis á móti undirskriftalistunum. Hreggviður Jónsson framkvæmdastjóri: Eins og fargi af mörgum létt „MÉR VERÐIJR þaö minnisstæö- ast, hve fólkið var ánægt og glatt. Það var eins og létt hefði verið fargi af fjölmörgum," sagöi Hregg- viður Jónsson framkvæmdastjóri, en Hreggviöur starfaði sem fram- kvæmdastjóri Varins lands á skrifstofu þess í Reykjavík á meö- an á söfnuninni stóð. Hann sagði ennfremur: „Með þessari söfnun var fólki gefið tækifæri til að láta hug sinn í ljós í þessu máli og það gerðu menn óspart. Almenningur sá vel hvað tréholtarnir voru að gera og studdi því af alhug við bakið á okkur, sem fyrir þessari „þjóðaratkvæðagreiðslu“ stóð- um. Sá hlýhugur og hvatning, sem mér mætti frá fjölda karla og kvenna meðan á söfnuninni stóð verður mér þegar litið er til baka hvað ógleymanlegast. Það er ein- stætt að hafa talað persónulega við þúsundir einstaklinga í síma eða á skrifstofu Varins lands á jafnskömmum tíma og raun ber vitni og finna þann eldhug, sem bjó í öllu þessu fólki."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.