Morgunblaðið - 21.03.1984, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 21.03.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 43 Minning: IngunnJZyjólfs- dóttir ísafirði Kædd 27. maí 1890 Iláin 12. febrúar 1984 Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. Höndin þin, Drottinn, hlifi mér, þá heims ég aðstoð missi, en nær sem þú mig hirtir hér, hönd þína’ eg glaður kyssi. Dauðans strið af þín heilög hönd hjálpi mér vel að þreyja, meðtak þá, faðir, mína önd, mun ég svo glaður deyja. Minn Jesús, andlátsorðið þitt í mínu hjarta’ eg geymi, sé það og líka síðast mitt, þá sofna’ eg burt úr heimi. (Hallgrímur Pétursson) Þann 18. febrúar var til moldar borin hér á ísafirði öldruð vinkona mín, Ingunn Eyjólfsdóttir. Mig langar því að minnast hennar með þessum síðbúnu orðum. Ingunn var fædd í Smiðjuvík á Ströndum. Foreldrar hennar voru Eyjólfur Guðmundsson og Mildfríður Bær- ingsdóttir. Ingunni varð tveggja barna auðið, þau eru Eyjólfur G. Ólafsson og Anna Maríanusdóttir. Kynni mín af Ingunni hófust er við bjuggum báðar í Túngötu 22, öðru nafni Vallaborg. Ég þá í for- eldrahúsum en hún í sambúð með Ágústi Valdemarssyni. Það var oft glatt á hjalla í Vallaborg, enda bjuggu þar margar fjölskyldur. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að vinna með Ingunni í nokkur ár. Var hún mesti dugnaðarforkur og hlífði sér í engu. Vann hún úti langt fram á sína löngu ævi, en hefði hún lifað hefði hún orðið 94 ára nú í sumar. Og það er ekki lengra síðan en í fyrrasumar, að maður rakst oft á Ingunni, þegar hún var að ganga sér til hress- ingar alla leið ofan af Hlíðarvegi, þar sem hún bjó nú síðustu árin hjá syni sínum, og alla leið niður á eyri. Þó sjónin væri farin að dapr- ast var þessi óbifandi dugnaður enn á sama stað. Ingunn var góð- hjörtuð kona og mátti ekkert aumt sjá, hún vildi gera allt sem hún gat fyrir alla. Sérstaklega minnist ég á þessari stundu hvað vel hún reyndist einum systursyni mínum og lét hún sér annt um velferð hans allt til þess dags er hún kvaddi þennan heim. Kunni hann vel að meta þessa umhyggju fyrir sér og hélt tryggð alla tíð við gömlu konuna. Og nú þegar ævi- skeið þessarar öldruðu vinkonu minnar er á enda hugsar maður með aðdáun til þess, hvernig þetta fólk, sem nú er óðum að hverfa af sjónarsviðinu, komst með dugnaði og harðfylgi gegnum öll erfiðu ár- in hér fyrr á tímum. Því þá var ekki vottur af þessum lífsgæðum sem nú eru og lífið örugglega eng- inn dans á rósum. Ingunn hafði munað tímana tvenna og þurft oft að basla fyrir sínu. Síðustu árin var hún sem fyrr sagði á heimili sonar síns, og efalaust hefur gömiu konunni líkað vel að geta fylgst með ömmu og langömmu- börnum í uppvextinum. Að lokum þakka ég Ingunni samfylgdina, bið henni Guðs blessunar í hinum nýju heimkynnum. Ættingjum hennar og öllum ástvinum votta ég mína dýpstu samúð. Megi minningin um þessa góðu konu geymast í hugum okkar um alla tíð og verða okkur að leiðarljósi. I.S. Kveðjuorð: Steinunn Björg Júlíusardóttir Fædd 20. mars 1895 Dáin 13. febrúar 1984 Það var morguninn 13. febrúar sem við fréttum að Steinunn amma okkar væri dáin. Þessi frétt kom eins og þruma úr heiðskíru lofti, þrátt fyrir það að við höfðum gert okkur í hugarlund að það væru farin að styttast æviárin hjá afa og ömmu. Þegar við systkinin vorum öll heima í jólafríinu var amma svo andlega hress og kát og engu okkar hefði dottið það í hug þá að hún yrði ekki meðal okkar næst þegar við yrðum öll saman. Seinustu mánuðina sem amma lifði var hún farin að þjást af hósta sem ágerðist alltaf meir og meir og í von þeirri að hægt væri að lækna þennan hósta fór hún á sjúkrahús Patreksfjarðar með þá ósk í huga að fá að koma heim aftur. En þetta fór allt á annan veg. í staðinn fyrir að koma heim aftur tók Guð hana til sín nóttina eftir að hún var flutt á Patreksfjörð. Sem betur fer fékk amma hægt andlát og við stöndum í þeirri trú að henni líði vel þar sem hún er núna. Með þessum fáu orðum ætlum við systkinin að þakka henni fyrir allt sem hún hefur gert fyrir okkur þessi ár sem við höfum ver- ið með henni. Hún hefur kennt okkur margt af sinni lífsreynslu og er það okkur mikils virði. Þó stundum hafi kastast í kekki með okkur og henni, því það fara stundum ekki saman skoðanir þeirra sem yngri eru og þeirra sem eldri eru, var það alltaf fyrir- gefið af okkar hálfu og hennar. Þegar þau elstu af okkur fóru að fara að heiman út áJand í skóla vitum við að hún sakrtaði þeirra og gladdist alltaf þegar komið var heim í fríin. En nú er engin amma til að gleðjast yfir heimkomu okkar og kveöja okkur með tár í auga þegar fríi er lokið. Með þessum fáu orðum viljum við líka biðja Guð að styrkja afa okkar sem fylgdi ömmu á sjúkra- húsið en er þar ennþá í sorg sinni og gefa að hann geti hresst svo að hann fái að koma heim aftur. Við ætlum að enda þessa grein á hluta úr sálmi eftir Sigurð Kr. Pétursson, sem amma var búin að biðja að yrði sunginn þegar hún yrði jörðuð. Löng þá sjúkdómsleiðin verður, lífið hvergi vægir þér, þrautir magnast, þrjóta kraftar, þungt og sárt hvert sporið er, honum treystu, hjálpin kemur, hann af raunum sigur ber.» Drottinn læknar, — Drottinn vakir, daga og nætur yfir þér. Þökk fyrir allt. Systkinin Innri-Múla + Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móður okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, GUORÍÐAR VILHJÁLMSDÓTTUR, Vesturbrún 8. Hólmfriöur Kristjánsdóttir, Þorkell Nikulásson, Erla Kristjónsdóttir, Árni Finnbogason, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug við andlát og útför móöur okkar, SESILÍU JÓSAFATSDÓTTUR, Austurbrún 6. Sórstakar þakkir færum viö starfsfólki á deildum A-2 og A-5 Borgarspítalans. Elisabet Eygló Jónsdóttir, Jóna Gréta Jónsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu, viö andlát og útför eiginmanns míns, fósturfööur, tengdafööur og afa, DANÍELS Ó. EGGERTSSONAR frá Hvallátrum. Anna Jónsdóttir, Gyða Guðmundsdóttir, Marías Sveinsson, Anna Guðrún Mariasdóttir, Svanhildur Ósk Maríasdóttir. + Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem auösýndu okkur samúö og hlýhug við fráfall og útför eiginmanns míns, fööur, afa og langafa, JÓNS ÞORBERG ÓLAFSSONAR, yfirverkstjóra, Laugarnesvegi 96, Reykjavík. Sérstakar þakkir til húsfólksins aö Laugarnesvegi 96—102 og fyrrverandi samstarfsfólks á Gatnadeild borgarinnar. Kristjana S. Guðlaugsdóttir, Stefán Ó. Jónsson, Ólafur H. Jónsson, Elín Þórarins, Þórdís Jónsdóttir, Brynjólfur Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andlát og útför fööur okkar, tengdaföður og afa, BALDURS KRISTJÁNSSONAR, pianóleikara. Sórstakar þakkir flytjum viö starfsfólki á Laugarásvegi 71 og deildar A-6 Borgarspítala. Kristján S. Baldursson, Soffia U. Björnsdóttir, Elsa Baldursdóttir, Kristján Guömundsson, Guöjón Baldursson, Kristín Blöndal, Birgir Bragi Baldursson og barnabörn. Sparneytnir bílar þurfa ekki að vera þröngir og óþægilegir. Það sannar MAZDA 323 MAZDA 323 er rúmgóður og sparneytinn alvörubíll á smábílaverði. Þú fórnar allt of miklu í rými og þægindum, ef þú kaupir suma af þessum „smábílum" sem eru á markaðnum og endar með að borga allt of mikið fyrir allt of lítið. Hugsaðu þig því tvisvar um, því að MAZDA 323 kostar aðeins Kr. 273.000 i Deluxe útgáfu, með ryðvörn og 6 ára ryðvarnarábyrgð. MAZDA 323 Sættu þig ekki við neitt minna! mazoa BÍLABORGHF. Smlðshöföa 23. sími 812 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.