Morgunblaðið - 21.03.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.03.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 35 Frá keppni í kvennaflokki. MorKunblaöið/Arnór. Islandsmót kvenna og yngri spilara: jr Ovænt úrslit í unglingaflokki Bridge Arnór Ragnarsson Um helgina var haldið íslands- mót kvenna og yngri spilara í sveitakcppni að Hótel Ilofi. í kvennaflokki spiluðu 11 sveitir og spiluðu allar sveitir saman 8 spila leiki. Tvær sveitir skáru sig nokkuð úr í kvenna- flokknum. Þegar 3 umferðum var ólokið var sveit Esterar Jakobsdóttur með 134 stig, sveit Öldu Hansen með 125 stig og sveit Erlu Sigurjónsdóttur með 93 stig. Þessi röð hélst til loka og urðu lokatölur þessar: Ester Jakobsdóttir 174 Alda Hansen 160 Erla Sigurjónsdóttir 131 Guðrún Bergs 123 Með Ester spiluðu í sveitinni Valgerður Kristjónsdóttir, Ragna Ólafsdóttir, Halla Berg- þórsdóttir og Kristjána Stein- grímsdóttir. Unglingakeppnin Tíu sveitir mættu í unglinga- keppnina og var spiluð undan- og úrslitakeppni, átta spila leik- ir. Sveit Antons Reynis Gunn- arssonar sigraði nokkuð óvænt í undankeppninni með 140 stig en röð næstu sveita varð þessi: Runólfur Pálsson 129 Valgarð Blóndal 114 Jakob Kristinsson 111 Árni K. Bjarnason 99 Ingvaldur Gústafsson 77 Marinó Guðmundsson 61 Fjórar efstu sveitirnar spiluðu síðan til úrslita í 8 spila leikjum og tóku með sér stigin úr undan- keppninni. Þetta 11 stiga forskot dugði sveit Antons sem sigraði með 5 stiga mun. Lokastaðan: Anton Reynir Gunnarsson 183 Runólfur Pálsson 178 Valgarð Blöndal 130 Jakob Kristinsson 123 Með Anton spiluðu í sveitinni Svavar Björnsson, Guðmundur Auðunsson, Ragnar Ragnarsson og Stefán Oddsson. Keppnisstjóri var Agnar Jörg- ensson. Bridgespilarar framtíðarinnar. Bandalag kvenna: Skortir fræðslu um neytenda- mál í útvarpi og sjónvarpi AAalfundur Bandalags kvenna í Rcykjavík haldinn 25. og 26. febrúar 1984: 1. Leggur áherzlu á við stjórnvöld að hverskonar aðflutningsgjöld og tollar af hráefnum til innlendrar framleiðslu verði afnumdir til efl- ingar atvinnulífi í landinu. 2. Aðalfundurinn beinir þeim til- mælum til hljóðvarps og sjónvarps, að séð verði fyrir fræðslu til al- mennings um neytendamál, sem svo mjög hefur skort á. 3. Aðalfundurinn hvetur Verð- lagsstofnun til að halda áfram verð- könnunum, svo að hinn almenni neytandi fái sem bestar upplýsingar um verð og vörugæði á hverjum tíma. 4. Aðalfundurinn skorar á stjórn- völd að standa vörð um neytendur og hvetur til góðs stuðnings við Neytendasamtökin í landinu og Leiðbeiningastöð húsmæðra. SILJAN KR. 8.67 4 nr»t. VörumarkaDurinn hf. Sími 86112. heit og mjúk i morni,nc»,riA Opnum kl.7 Komióog kaupió sjóóandi heit og mjúk brauó meó morgunkaffinu Opnum kl. 7.00 alla virka daga Opnum kl. 8.00 laugardaga Opnum kl. 9.00 sunnudaga. Bjóöum öllum morgunbrauö meö 50% afslætti fyrir þá sem verzla fyrir kl. 10.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.