Morgunblaðið - 21.03.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984
7
Hinar margeftirspuröu norsku skíöapeys-
ur komnar aftur, kræktar og heilar.
Margir nýir litir. Dömu- og herrastæröir.
QEÍSÍBf
Hin gömlu
kynni
skemmtun sniðin fyrir aldraða í
Broadway fimmtudaginn 22. mars
nk.
Dagskrá:
Ki. 18.00 Húsiö opnaö — fordrykkur
Kl. 18.45 Sameiginlegt borðhald.
Matseöill: Norölenskt hangikjöt m/uppstúfi
og tilheyrandi. íslenskar pönnukökur
m/rjóma og sultu.
Kl. 18.55 Hljómsveit Gunnars Þóröar leikur þjóölög
undir boröum
Kl. 20.00 Ingveldur Hjaltested syngur m/undirleik
Guöna Þ. Guömundssonar.
Kl. 21.15 Tískusýning undir stjórn Hermanns R. Stef-
ánssonar.
Kl. 21.45 Anna Guðmundsdóttir leikkona flytur gam-
anmál.
Kl. 22.00 Danssýning undir stjórn Hermanns R. Stef-
ánssonar.
Kl. 22.15 Siguröur Ólafsson og Þuríöur Siguröardóttir
syngja saman.
Kl. 22.45 Dansaö til kl. 23.30.
Tískusýning: Modelsamtökin sýna.
Ávarp Pétur Sigurösson.
Dansstjóri og kynnir veröur Hermann Ragnar Stefáns-
son.
Aö gefnu tilefni er ástaöa til aö vekja athygli á því aö
skemmtun þessi er aðallega sniöin fyrir fólk 60 ára og
eldri.
Aörir dagskrárliðir: Gáta kvöldsins.
Lag kvöldsins.
Gestur kvöldsins.
Félög og einstaklingar eru vin-
samlega beöin að tilkynna þátt-
töku í síma 77500 sem fyrst.
2,7% lægra skatthlutfall
af þjóðarframleiðslu
Tekjutap vegna lækkadra skatta 550 m.kr.
Iil K— M ■■•Wtmlir akalUf 'betaw *f
77T if •erfn ^jMulrialriMii Skall
paarrraakiéato IWI «f JOJT. I«N2.
bærn IM2 ea •?•> Maatia lil. afc< aýrri
17.7*5 m kr
trfcjar rihMa|Ma aáiaa CT.f. af »
Sfcalllrkfar rikuMjMn róm fc.i 2.7S
lehjaaæilaa rikaijMa
Liraa )«um (Sk formaður
íjar.ritinfanefndar frrAi frnn
f>rir nrfndaráliti of brr>tmgar
tillofum mnrihluta fjirhafS' of
. idnkiptanrfndar rfn dnldar Al
þinfia. rr frumvarp til brr> tinfa *
trkjuakaitalofum kom til 2 um
rarÁu i þinadrildinni Hann
frnndi frá aýrri trkjuávtlun rik
larjóA* fvrir liAandi ár. avohljAA-
tolla of vorufjaldv af jmsum
nauAt>njum 70 m kr of niburfrll
>nf soluakatts af innfluttum vál-
um. tvkjum Of tolvum 80 m kr
Brrvtinfartillajrur vtjórnarliba.
srm áAur hrfur vrriA frré frrin
fyrir i þinffrrttum of miAaAar
rru vté W.S'T mrAalhmkkun
bruttAtrkna milli áranna l*W3 o*
!9fU. 'óru samþv kktar
Skatttekjur ríkissjóðs
í hlutfalli af
þjóðarframleiðslu
Samkvæmt nýrri tekjuáætlun ríkissjóös
fyrir árið 1984 er gert ráð fyrir því að
innheimtir skattar, beinir og óbeinir, nemi
27% af áætlaðri vergri þjóðarframleiöslu.
Skatttekjur rikissjóðs vóru 28,8% af
þjóðarframleiðslu 1981 og 30,2% 1982. Á
síðasta heila ári Ragnars Arnalds sem
fjármálaráöherra vóru skatttekjur ríkis-
sjóös 2,7% hærri — sem hlutfall af þjóð-
arframleiðslu — en tekjuáætlun líðandi
árs stendur til.
Tekjuáætlun
ríkissjóds
Láru.s Jónsson, formaAur
fjárvtitingantfndar. gerði
nýlega grein fyrir nýrri
tekjuáætlun ríkissjóðn
1984 í efri deild AlþingLs.
Samkvæmt þessari nýju
tekjuáætlun verða inn-
heimtar ríkissjóðstekjur
sem hér segir:
• BEINIR SKATTAR,
þ.e. tekjuskattur, eigna-
skattur og sjúkratrygg-
ingargjald 2.990 milljónir
króna.
• ÓBEINIR SKATTAR,
þ.e. tollar, vörugjald, sölu-
skattur og aðrir verðþyngj-
andi skattar, 14.775 m.kr.
• SAMTALS SKATT-
HEIMTA, beinir og óbein-
ir skattar, 17.765 m.kr.
• Þessi skattheimta þýðir
27,5% hlutfall af áætlaðri
vergri þjóðarframleiðslu.
Samskonar hlutfall 1982
var 30,2% eða 2,7% hærri
en nú.
Tekjutap
vegna skatta-
lækkana
Formaður fjárveitinga-
nefndar sagði tekjutap rík-
issjóðs 1983—1984 vegna
lækkaðra og niðurfelldra
skatta vera 550 m.kr. og
sundurliðast þannig:
• Vegna lækkunar tekju-
skatts einstaklinga (sér-
stök hækkun persónuaf-
sláttar og barnabóta) 250
m.kr.
• Lækkun innflutnings-
gjalds af bifreiðum 50
m.kr.
• Afnám 10% álags á
ferðagjaldeyri 100 m.kr.
• Lækkun tolla og vöru-
gjalds af ýmsum nauðsynj-
um 70 m.kr.
• Niðurfelling söluskatts
af ýmsum innfluttum vél-
um, tækjum og tölvum 80
m.kr.
Endurskoðað fjárlaga-
dæmi, sem leitt hefur í Ijós
vanáætlun útgjalda, m.a.
vegna nýrra skuldbindinga
er ríkissjóður hefur tekið á
sig eftir að fjárlög vóru af-
greidd (s_s. vegna samn-
inga ASÍ og VSÍ), veldur
því, að ekki er hægt að
lækka skatta frekar í ár en
orðið er, að sögn stjórnar-
liða.
Fjárlagagötin
fyrr og nú
Fjárlög hafa, því miður.
ekki rcynzt — hin síðari
árin — sá marktæki og
heldi rammi utan um ríkis-
sjóðsútgjöld né það hag-
stjórnartæki í þjóðarbú-
skapnum sem þau geta
orðið og eiga að vera.
I>essvegna hefur þurft að
grípa til svokallaðra „auka-
fjárveitinga" í enda fjár-
lagaárs, til að fylla upp í
fjárlagagötin. Sé horft til
þriggja næstliðinna ára lít-
ur dæmið þannig út:
• Árið 1981 þurfti síðbún-
ar „aukafjárvcitingar"
fyrir 546 m.kr. sem var
10% af gjaldatölu ársins.
• Árið 1982 þurfti sams-
konar gatfyllingu að fjár-
hæð 1.100 m.kr. sem var
14% af gjaldatölu þess árs.
• \rið 1983 (síðustu fjár-
lög Ragnars Arnalds) nam
fjárlagahótin hvorki meira
né minna en 3.300 m.kr.,
sem var 25%, eóa fjórðung-
ur, af gjaldatölu þess árs.
Hagstjórnar-
tæki og heldur
útgjaldarammi
l»að klæðir því fyrrver-
andi fjármálaráðherra illa
þegar hann „kemur nú af
fjöllum" vegna fjárlaga-
gats, seni að hluta til a.m.k.
á sér eðlilegri skýringar nú
en í hans tíð. !>á vóru fjár-
lögin gjarnan eins og gata-
sigti, þó um þverbak keyrði
1983, þegar fjárlögin vóru
nánast sýndarplagg sem
enginn gerði neitt með,
allra sízt höfundar þess,
stefnuvitar Alþýðubanda-
lagsins.
Hinsvegar er það ámæl-
isvert, bæði fyrr og nú, að
gagnasöfnun og upplýs-
ingastreymi embættis- og
stjórnmálamanna, sem við
fjárlagagerð fást, skuli
ekki haldbetri grunnur að
fjárlagagerð en raun ber
vitni um. Hér er sýnilega
úrbóta þörf. l>aó ríður á
miklu að fjárlög séu sem
raunhæfastur rammi, og
heldur rammi, utan um rík-
issjóðsútgjöld, og áhrifa-
ríkt hagstjórnartæki i þjóð-
arbúskapnum.
liagræðing og sparnaður
í ríkisbúskapnum, alvöru-
fjárlög og „þak" á skatt-
heimtu ríkLs og sveitarfé-
laga sem hlutfall af þjóðar-
tekjum á hverri tíð eru þær
kröfur sem vinnandi fólk í
landinu, skattgreióendur,
sem borga ríkissjóðsbrús-
ann endanlega, með einum
eða öðrum hætti. gera.
Þú kemst það...
*
Með ARMSTRONG undir bílnum.
Ein mest seldu 4X4 dekkin í Bandaríkjunum.
Þau grípa vel og eru mjúk, en þó óhemju slitsterk.
Útsölustaðir:
Hjólbarðastöðin, Skeifunni 5, Reykjavík.
Hjólbarðahöllin, Fellsmúla 24, Reykjavík.
Hjólbarðaþjónustan, Hvannavöllum 14B, Akureyri.
>4rmstrong
WE GO THE EXTRA MILE