Morgunblaðið - 21.03.1984, Síða 18

Morgunblaðið - 21.03.1984, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 Atvinniivegirnir verða að kom- ast að á peningamarkaðnum — og ríkið að draga saman seglin * — Ræða Víglundar Þorsteinssonar, formanns FII, á ársþingi iðnrekenda í gær. Hér fer á eftir í heild ræða Víg- lundar l'orsteinssonar, formanns Kélags ísl. iðnrekenda, á ársþingi iðnrekenda í gær: Árið 1983 var íslenskum iðnaði fremur hagstætt. Þrátt fyrir 5% samdrátt þjóðarframleiðslunnar, var víða vöxtur í iðnaði. Jafnframt batnaði afkoma iðnaðarins í heild á árinu. Sá bati sem í iðnaðinum varð á sl. ári vekur vonir um að honum takist að fullu að vinna upp tap- reksturinn 1981 og fyrri hluta árs- ins 1982 á þessu ári ef ekkert óvænt kemur upp á. Þegar litið er á einstakar greinar iðnaðarins á sl. ári kemur í ljós að bætt afkoma og vöxtur iðnaðar- framleiðslunnar er ekki í þeim öll- um. Góður vöxtur var í útflutnings- framleiðslunni á árinu. Talið er að hún hafi aukist um 5%. Þessi vöxt- ur kemur fram í öllum þáttum út- flutningsframleiðslunnar, nema hvað samdráttur er hjá skinnaiðn- aði og einnig varð verulegur sam- dráttur í framleiðslu á prjónahandi og lopa til útflutnings, þannig að þrátt fyrir aukna framleiðslu á til- búnum fatnaði úr ull stóð ullar- vöruútflutningurinn í heild sinni í stað. Framleiðsla áls og kísiljárns jókst á árinu og einnig var góð framleiðsluaukning í niðursuðu- og niðurlagningariðnaði. Framleiðsla á kísilgúr var óbreytt, enda afkastageta verksmiðjunnar full- nýtt. 30% af heildarútflutningi Á síðasta ári var mikill vöxtur í útflutningi ýmiss konar iðnaðar- vöru sem verið hefur á nokkru til- raunastigi undanfarin ár. Hér er um að ræða iðnaðarvörur fyrir sjávarútveg, svo sem umbúðir, veiðarfæri, vélar og plastvörur og ýmsar aðrar vörur, svo sem máln- ingu, harðfeiti, þangmjöl og vikur. Útflutningsaukningin á þessum vörum í heild varð tæplega 60% og heildarútflutningur þeirra nam samtals um 250 milijónum króna að fob-verðmæti. Þó hér sé ekki um að ræða háar fjárhæðir, enn sem komið er, er þetta engu að síður athyglisverður vöxtur. Ef við lítum nokkur ár til baka þá var þessi starfsemi vart mælanleg í heildar- útflutningi landsmanna, en á síð- asta ári var hún 1,5% af öllum út- flutningi. Heildarútflutningur iðnaðarvöru á sl. ári jókst hins vegar miklu meir en sem nam aukningu út- flutningsframleiðslunnar. Fyrst og fremst vegna þess að mikið gekk á birgðir fullunninna iðnaðarvara einkum áls. Útflutningsverðmæti iðnaðar- vöru var samtals 5500 milljónir króna eða 30% af heildarútflutn- ingi okkar. Það er hæsta hlutfall iðnaðarvöruútflutnings frá upp- hafi. Sambærilegt hlutfall árið 1982 var 23%. Það ár telst mér til að iðnaðarvöruútflutningur hafi numið 151 milljón dollara en hann varð 220 milljónir dollara á síðasta ári. Góður vöxtur í mörgum greinum Þegar litið er á hinar hefð- bundnu heimamarkaðsgreinar iðn- aðarins má segja að skipst hafi á skin og skúrir. Þannig var góður vöxtur í mörgum greinum, óbreytt framleiðsla í öðrum og loks sam- dráttur í nokkrum. Ein stærsta heimamarkaðsgrein- in er matvæla- og drykkjar- vöruiðnaður. Þar var um verulega framleiðsluaukningu að ræða. Sú aukning virðist hafa verið nokkuð almenn í greininni í heild með þeirri undantekningu að samdrátt- ur í öl- og gosdrykkjaframleiðslu varð um 15%. Þann samdrátt má fyrst og fremst rekja til þeirrar ofsköttunar sem beitt hefur verið af hálfu ríkisins á öl og gosdrykki. Lætur nú nærri að 50% af smá- söluverði þessarar vöru renni í rík- issjóð í formi ýmissa skatta. Með sama áframhaldi er ekki annað að sjá en að gengið verði af þessari framleiðslu dauðri innan fárra ára. í plastiðnaði og umbúðaiðnaði var mjög góður vöxtur eða rúmlega 10%, sambærilegur vöxtur var í hreinlætisvöruframleiðslu og um 15% vöxtur í öðrum efnaiðnaði. Húsgagna- og innréttingafram- leiðsla stóð líklega í stað á sl. ári, en hins vegar jók þessi grein veru- lega markaðshlutdeild sína því um talsverðan samdrátt var að ræða á innfluttum húsgögnum og innrétt- ingum. Þannig að þrátt fyrif minnkandi eftirspurn eftir hús- gögnum og innréttingum hefur innlenda framleiðslan haldið sín- um hlut og samdrátturinn lent á innflutningnum. Á hinn bóginn varð samdráttur á sl. ári í iðngreinum sem framleiða fyrir sjávarútveg, einkum í málm- iðnaði og veiðarfæraiðnaði. Sá samdráttur á rætur sínar að rekja til minnkandi sjávarafla og þeirra erfiðleika sem nú ríkja í sjávarút- vegi. Einnig er um nokkurn samdrátt að ræða í steinefnaiðnaði, raf- tækjaframleiðslu og málning- arframleiðslu vegna samdráttar í byggingariðnaði á síðasta ári. Munar þar mest um minnkandi orkuframkvæmdir en einnig var staðbundinn samdráttur á nokkr- um stöðum úti á landi. Samdráttur í fataframleiðslu Loks er þess að geta að árið 1983 var enn eitt samdráttarárið í fata- framléiðslu fyrir heimamarkað, er það þriðja árið í röð þar sem um samdrátt er að ræða í greininni. Erfiðleikar fataiðnaðarins á und- anförnum árum eiga sér ýmsar orsakir, en líkiega eru tvær öðrum þyngri: 1. Erfið samkeppnisstaða á árunum 1981 og 1982 vegna rangrar geng- isskráningar og að einhverju leyti vegna aukins innflutnings frá þriðja heims löndum. 2. f öðru lagi hafa tískubreytingar leitt til verulegs samdráttar í stórframleiðslu fatnaðar sem hér var orðin hjá nokkrum fyrir- tækjum. Þrátt fyrir samdrátt hjá fataiðn- aðinum á sl. ári hefur verið unnið mikið starf í fyrirtækjunum í hönnun og vöruþróun, og mörg þeirra hafa nú lagað sig að breytt- um markaðsaðstæðum og eru í vexti á ný. Til marks um þetta er að þrátt fyrir samdrátt fatafram- leiðslunnar í heild á síðasta ári var góður vöxtur hjá sumum fyrirtækj- anna. Var þar um að ræða fyrir- tæki sem fyrst urðu til að laga sig að breyttum aðstæðum og taka upp fjölbreyttari framleiðslu. Mestir möguleikar í útDutningi Þegar vöxtur iðnaðarframleiðsl- unnar á árinu 1983 er metinn, er Ijóst að bætt samkeppnisstaða samfara efnahagsbata í umheimin- um hefur haft jákvæð áhrif á út- flutningsframleiðslu iðnaðarvara. Þá hefur hin bætta samkeppnis- staða haft jákvæð áhrif á margar heimamarkaðsgreinar. Sá eftir- spurnarsamdráttur sem varð í kjölfar efnahagsráðstafananna hefur hins vegar valdið samdrætti í greinum sem framleiða fyrir bygg- ingariðnað. Þá hafa áföllin í sjáv- arútvegi valdið samdrætti hjá fyrirtækjum í veiðarfæra- og málmiðnaði. Við núverandi aðstæður í efna- hagsmálum er nokkuð Ijóst að stærstu vaxtarmöguleikar iðnaðar- ins eru á sviði útflutningsfram- leiðslu. Á þetta við um flestar iðngreinar. Ef við lítum fram á árið 1984 eru allar líkur til þess að um áfram- haldandi vöxt verði að ræða í út- flutningsframleiðslu iðnaðarvara samfara efnahagsbatanum í um- heiminum. Mér sýnist mega gera ráð fyrir því að útflutningsfram- leiðslan í ár geti vaxið um 6—8% og að útflutningur iðnaðarvöru verði áfram um eða yfir 220 millj- ónir dollara á þessu ári, þó nú séu engar birgðir eldri ára til staðar. Þá má gera ráð fyrir nokkrum vexti í heimamarkaðsgreinum á ár- inu. Hvort og hversu mikill hann verður mun fyrst og fremst ráðast af aðgerðum á sviði vöruþróunar og markaðsmála í fyrirtækjunum sjálfum. En þetta er hvergi nærri nóg. Þrátt fyrir aukningu iðnaðar- framleiðslu á árinu 1983 skulum við hafa það hugfast að þjóðar- framleiðslan dróst saman um 5% á því ári og hún mun enn dragast saman um 4—5% á þessu ári. Sitjum við vökina á ísnum í ræðu minni á síðasta ársþingi lét ég m.a. svo um mælt að fyrir- sjáanlegur samdráttur þjóðar- framleiðslu árin 1983 og 1984 gæti orðið 6—8%. Ég sagði jafnframt að ef það gengi eftir yrði þjóðarfram- leiðslan 12—14% minni á mann í árslok 1984 en hún var á árinu 1981. Með öðrum orðum þjóðar- framleiðslan nú í árslok yrði komin niður í það sama og 1976. Slíkum samdrætti líkti ég við það að við yrðum búin að glata öllum ávinn- ingnum af útfærslunni í 200 mílur. Ég hef því miður ekki ástæðu til þess að breyta þessum orðum. I öll- um meginatriðum sýnist mér að þessi spá muni ganga eftir. Þessi samdráttur hefur smátt og smátt verið að koma fram í lífsafkomu fólks og lífskjörin hafa versnað í réttu hlutfalli við hann. Afleiðingarnar eru síðan þær að við íslendingar höfum fyllst von- leysi og óöryggi. Fólk óttast vinnu- samdrátt og atvinnuleysi og skortir jákvæða trú og framtíðarsýn til nýrra og betri tíma. Við þurfum ekki annað en líta yfir fyrirsagnir blaða og hlusta á útvarp og sjónvarp þessa dagana til þess að sjá hvernig þetta birtist. Meginviðfangsefni fjölmiðla þessa dagana eru þau hvort vænta megi þorskgöngu frá Grænlandi, nýrrar loðnugöngu upp að Vestur- landi nú eða hvort unnt sé að fá kvótann stækkaðan fyrir einstök byggðarlög. Með öðrum orðum vonir okkar íslendinga þessa dagana eru bundnar við óvæntar guðsgjafir og „himnasendingar". Með þessu er ég ekki að gera lítið úr guðsgjöfum sem við íslendingar höfum svo sannarlega notið ríku- lega. Síður en svo. En það sem skelfir mig er að hinn ævaforni hugsunarháttur veiðimannaþjóðfé- lagsins skuli vera svona áberandi á íslandi árið 1984. Þótt ekki sé saman að jafna koma mér ósjálfrátt í hug lýsingar heimskautafaranna gömlu á Iífs- baráttu eskimóa á norðurslóðum, þar sem tilviljanakennd vetrarsel- veiði veiðimannsins skipti sköpum. Réð úrslitum um hungur eða alls- nægtir. Nú kann ýmsum að þykja sem þessi líking sé alisherjar svartsýn- israus. Víst er að ólíku er saman jafnað. En spurningin er: Hver er munurinn á því að sitja við vökina á ísnum og bíða eftir því að selur reki upp hausinn, eða að bíða eftir þorskgöngunni frá Grænlandi? Er ekki hér á ferðinni sama úrræða- leysið, sama vantrúin á eigin getu til að breyta ástandinu? Pólitískt frum- kvædi skortir Hér verður hver að svara fyrir sig. Eitt er þó víst. Við íslendingar erum í ákveðinni sjálfheldu í at- vinnumálum. Okkur vantar póli- tískt frumkvæði til að brjótast úr henni. Niðurstaða fiskifræðinga um ástand fiskstofnanna við landið þýðir að við verðum að gera ráð fyrir lítið breyttum sjávarafla næstu árin a.m.k. Sú staðreynd þýðir að störfum í sjávarútvegi hlýtur að fækka verulega á þessu og næsta ári. Þetta er flestum okkar ljóst í dag. Okkur virðist hins vegar ekki Ijóst hvernig við ætlum að vinna okkur út úr þessum vanda. Að vísu er mikið talað um nauð- syn alhliða iðnaðaruppbyggingar til að bæta hér úr og er það vel. Orð eru til alls fyrst; en orðum verða að fylgja athafnir. Það er öruggt að alhliða upp- bygging iðnaðar getur bætt okkur upp áföllin á undangengnum árum og gott betur. Iðnaður hér á landi mun halda áfram að vaxa. En hann mun ekki vaxa nógu hratt nema að til komi ný og stórhuga stefna í efnahagsmálum. Meginhlutverk stjórnmála- manna í dag er að móta slíka stefnu. Stefnu sem losar um höml- ur sem lagðar hafa verið á ein- staklinga og atvinnufyrirtæki á undanförnum árum og örvar þessa aðila til fjárfestingar og uppbygg- ingar í atvinnulífinu. Við verðum að rífa stjórnmála- umræðuna upp úr dægurþrasi og ómerkilegu bagsmunapoti. Við verðum að beina umræðunni að því hvernig við getum bætt úr þeim mörgu þáttum sem úrskeiöis hafa farið á undanförnum árum og lagt grunn að traustu og heilbrigðu efnahagslífi, sem örvi hagvöxt á næstu árum og bæti lífskjör. Sú barátta sem háð hefur verið við verðbólguna á undanförnum misserum er til lítils nema til komi ný heildarstefna í efnahagsmálum. Við verðum að muna það að sá árangur sem náðst hefur í verð- bólgubaráttunni er ekki sigur í stríðinu heldur eingöngu í fyrstu orrustunni. Stríð er bara rétt að byrja og það er margra ára barátta framundan. Óðaverðbólgan hefur haft marg- vísleg skaðvænleg áhrif á efna- hagskerfið sem nú þarf að bæta úr. Það er kunnugt hvernig innlán í bönkum og sparisjóðum fóru ört minnkandi í hlutfalli við þjóðar- framleiðslu framan af síðasta ára- tug, vegna vaxandi verðbólgu og lélegrar efnahagsstjórnar. Þótt þetta hafi heldur snúist við á síð- ustu árum með aukinni verðtrygg- ingu í bankakerfinu, þá er enn langt í það að innlán séu sambæri- leg við það, sem þau voru fyrir 1970. Þetta hefur leitt til þess að bankakerfið er nú gjörsamlega ófært um að mæta eðlilegri fjár- þörf atvinnulífsins. Sama gildir um peningalegan sparnað í heild, hann hefur farið hlutfallslega minnkandi og þá fyrst og fremst hinn frjálsi sparnaður. Lántaka hefur hins vegar ekki minnkað og munar þar mest um að hið opinbera hefur í æ ríkara mæli seilst til lántöku, til að standa und- ir vaxandi starfsemi og fram- kvæmdum. Þetta bil milli sparnað- ar og eftirspurnar eftir lánsfé hef- ur síðan verið brúað með erlendum lánum eins og alkunna er. Þannig var komið í árslok 1982 að innlendur sparnaður stóð aðeins undir 56% af öllum þeim lánum sem hið opinbera, fyrirtæki og ein- staklingar höfðu tekið. Yfir 40% af útistandandi skuldum þessara að- ila voru erlend lán. Við höfum þannig tekið nær helmingi meira að láni en við gátum staðið undir af eigin sparnaði. Við skuldum er- lendis nær jafnmikið og við skuid- um öllu innlenda lánakerfinu. Sé litið á heildarskuldir við inn- lenda og erlenda lánakerfið þá hef- ur hlutur ríkis og sveitarfélaga vaxið úr rúmlega 20% árið 1968 í yfir 35% í árslok 1982. Hlutur at- vinnuveganna hefur hins vegar minnkað úr 57% í 46%. Þessi aukna hlutdeild hins opinbera kemur fyrst og fremst fram í er- lendum lánum. Enda er nú svo komið að nær tveir þriðju hlutar allra erlendra skulda eru á vegum þess. Hlutur atvinnufyrirtækjanna í erlendum skuldum befur minnk- að, enda hefur aðgangur fyrirtækj- anna að erlendu lánsfé verði tak- markaður með opinberu skömmt- unarkerfi. Þetta kerfi hefur valdið mismunun milli greina eins og öll slík kerfi gera en oft látið undan pólitískum þrýstingi og þá oftast þar sem síst skyldi. Nú þegar í óefni er komið í er- lendum skuldum sækir hið opin- bera í vaxandi mæli á innlendan lánamarkað. Er nú veruleg hætta á að hið opinbera hreinlega ryðji fyrirtækjunum út af lánamarkaðn- um með þeirri miðstýringu fjár- magns sem hér hefur ríkt um ára- bil. Hér er því ástæða fyrir stjórn- völd í landinu að staldra við og íhuga hvert stefnir. Öll þekkjum við þá baráttu sem verið hefur í þjóðfélaginu um lánsfé á undanförnum árum, fyrst og fremst vegna þess hve innlenda peningakerfið hefur dregist saman á verðbólguárunum vegna nei- kvæðra vaxta. Heilbrigð samkeppni um fjár- magn í hverju þjóðfélagi er af hinu góða og leiðir að öllu jöfnu til þess að fjármagnið leitar þangað sem það gefur mestan arð. Okkar vandi er hins vegar sá að samkeppnin um fjármagnið hér á landi á undanförnum árum hefur ekki farið fram á jafnréttisgrund- velli. Stjórnmálamennirnir hafa nefnilega haft rangt til. í krafti löggjafarvaldsins hafa þeir lagt undir sig æ stærri hlut lánsfjár innanlands sem á erlend- um mörkuðum. í krafti löggjafar- valds hafa 60 þingmenn tekið sér það hlutverk að hafa vit fyrir okkur hinum 240 þúsundunum, um það hvernig ráðstafa skuli því lánsfé sem völ er á á hverjum tíma. Afleiðingarnar sjáum við allt í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.