Morgunblaðið - 21.03.1984, Page 19

Morgunblaðið - 21.03.1984, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 19 kringum okkur í formi rangra opinberra fjárfestinga og einnig í formi offjárfestingar í sumum at- vinnugreinum. Fjárfesting sem er ekki bara arðlaus heldur einnig í mörgum tilvikum verulega íþyngj- andi vegna beins taps sem við þurf- um að bera vegna hennar á kom- andi árum. Aðgerðir á peningamarkaði Það er skoðun mín að frumað- gerðir nýrrar efnahagsstefnu hljóti að verða á peningamarkaðnum. Stjórnmálamenn verða fyrst af öllu að gefa eftir þann forgang sem þeir hafa tekið sér á þessum mark- aði. Það eitt er þó taepast nóg, ég tel að hið opinbera verði að sæta því nú um sinn að draga saman seglin í baráttunni um lánsféð og una því að mæta afgangi. Við núverandi aðstæður í efna- hagsmálum okkar verða atvinnu- vegirnir að komast að. Jafnframt verður nú þegar að gera ráðstafan- ir til að örva innlendan sparnað á nýjan leik. Fljótvirkasta leiðin er örugglega sú að virkja bankakerfið í landinu til frjálsrar samkeppni á pen- ingamarkaðnum og örva á þann hátt frjálsan sparnað. Frjáls sparnaður hefur verið hættulega lítill hér á landi um mörg undanfarin ár, vegna af- skipta ríkisstjórna af vaxtamálum. A þessu sviði verða stjórnmála- menn einnig að láta af forsjá sinni og treysta sjálfu fólkinu í landinu til þess að ráða sínum fjármálum. Æ fleiri stjórnendur fyrirtækja gera sér grein fyrir því að góð stjórnun er ekki fólgin í sífelldum afskiptum og inngripum í störf undirmanna sinna. Góður stjórn- andi er sá sem virkjar samstarfs- menn sína til átaka í samræmi við þá meginstefnu sem hann hefur mótað og reynir að tryggja það að einstök markmið þeirrar stefnu ná- ist á tilsettum tíma. Sömu meginreglur gilda um stjórnunarhlutverk löggjafar- og framkvæmdavalds. Það er ekki jafnaðarmerki á milli magns og gæða. Stjórnmálamenn hljóta að ná meiri árangri með því að laða þegnana til sjálfstæðra athafna heldur en með því að skipa þeim sífellt til verka. Hingað til hefur a.m.k. verið talið réttara að beita dráttarklárum fyrir vagninn en að hengja þá aftan í hann. Aðgerðir á peningamarkaðnum eru frumaðgerðir til mótunar nýrr- ar efnahagsstefnu. I þeim efnum þarf þó miklu fleira að koma til. Nauðsyn sumra þeirra aðgerða má sjá fyrir í dag, annað mun koma í Ijós þá fyrst er almenn umræða um nýja efnahagsstefnu hefst sem víð- ast í þjóðfélaginu. Stórgallað skattakerfi Ein er þó sú brotalömin á núver- andi kerfi sem mönnum hefur verið ljóst um langt skeið án þess að verulegar tilraunir hafi verið gerð- ar til breytinga, en það er stórgall- að opinbert skattkerfi. Í langan tíma hafa mönnum ver- ið ljósir gallar á núverandi skatt- heimtukerfi jafnt beinna sem óbeinna skatta. Óbeina skattheimt- an hefur verið þeim annmörkum háð að valda kostnaðaruppsöfnun hjá framleiðsluatvinnuvegunum. Þannig hefur skattheimta hins opinbera leitt til hærra fram- leiðsluverðs en ella og veikt sam- keppnisstöðu innlendrar atvinnu- starfsemi og stuðlað að því að halda aftur af uppbyggingu fram- leiðslunnar. Þeir skattar og skattaígildi sem hér er um að ræða eru margskonar og þá er víða að finna. í þessu sam- bandi ætla ég að láta mér nægja að benda á fjóra. En þeir eru sölu- skattur, aðstöðugjöld, launaskattur og verðjöfnunargjald á raforku. Allar okkar nágrannaþjóðir hafa leyst vandamál óbeinu skattanna með því að taka upp virðisauka- skatt. Umræðan um virðisauka- skatt hefur nú lifnað aftur við hér á landi eftir nær 9 ára þögn um málið. Miklu skiptir nú að fram fari raunsæ og hlutlæg umræða um þennan skatt, kosti hans og galla. í því sambandi verður að líta ákveð- ið til þeirra vandamála sem núver- andi óbeinir skattar valda atvinnu- vegunum. Það er mikiu alvarlegra mál en það hve áhrif virðisauka- skatts verða til hækkunar eða lækkunar á einstökum vöruflokk- um. Sú umræða verður að leiða til þess hvort sem það verður gert með virðisaukaskatti eða með öðrum hætti, að horfið verði frá þeim sköttum sem valda kostnaðarupp- söfnun hjá atvinnuvegunum. Slík breyting á óbeinni skatt- heimtu er óhjákvæmileg forsenda atvinnuppbyggingar og nýrrar sóknar í atvinnumálum. Núgildandi lög um tekju- og eignarskatta einstaklinga og fyrir- tækja hafa verið nokkrum ann- mörkum háð. Þeir annmarkar lúta einkum að reglum laganna um mis- munandi meðferð sparifjár. Einnig eru gildandi reglur um fyrningar fyrirtækja og reglur um varasjóði gallaðar og örva ekki nægjanlega fjárfestingu í atvinnulífinu. Fyrir Alþingi liggja nú laga- frumvörp sem myndu bæta veru- lega úr þessum göllum ef samþykkt verða. Samþykkt þessara frum- varpa er þýðingarmikill þáttur í mótun þeirrar nýju efnahagsstefnu sem mér hefur orðið tíðrætt um. Nú síðustu daga hefur mátt heyra þær raddir á Alþingi í hinni svokölluðu „gatumræðu" að réttast væri að hætta með öllu við fyrir- huguð áform um þessar breytingar á skattalögum. f því sambandi er full ástæða til að minna á að fjárlagagatið er m.a. tilkomið vegna þess samdráttar sem orðinn er í framleiðslustarf- semi okkar, en sá samdráttur hefur aftur leitt til tekjutaps hjá ríkis- sjóði. Það er i mínum huga lítil hygg- indi fólgin í því að leggja þá til að brúa fjárlagagatið ■ með því að kasta fyrir borð einu tillögunum sem fyrir Alþingi liggja og gætu örvað fjárfestingu i atvinnulífinu og leitt til aukinnar framleiðslu á ný. Vonandi sjá þeir þingmenn, scm þannig tala, nú aftur fram á veginn og hverfa frá þeim sér- kennilegu hugmyndum um að leysa vandamál augnabliksins með þvi að ráðast á þau mál sem er ætlað að örva og byggja upp atvinnulífið í framtíðinni. Aðrar leiðir hljóta að vera nærtækari og skynsamari. Tækifærin blasa viö Ég sagði fyrr í ræðu minni að ég teldi að okkur skorti trú og fram- tíðarsýn. Sömuleiðis gerði ég þær kröfur til stjórnmálamanna að þeir leiddu umræðu um nýja efna- hagsstefnu sem gæti skapað trú á atvinnuuppbyggingu. Núverandi ríkisstjórn nýtur mik- ils fylgis meðal þjóðarinnar ef marka má skoðanakannanir. Þann stuðning má eflaust rekja til þess árangurs sem náðst hefur í barátt- unni við verðbólguna. Það eitt er þó ekki nægjanleg skýring. Telja verður líklegt að vegna þess árangurs sem ríkisstjórnin hefur náð i verðbólgubaráttunni, sé að kvikna með fólki sú von að hún muni jafnframt reynast þess megnug að leggja grunn að nýrri efnahagsstefnu sem leiði til nýrrar atvinnuuppbyggingar. Á miklu veltur að ríkisstjórnin rísi undir þeirri eftirvæntingu sem hún hefur vakið og móti efnahagsstefnu er leggi grunn að uppgangi og hag- sæld hér á landi á nýjan leik. Tækifærin blasa alls staðar við. Okkur er öllum ljóst sá mikli vaxt- armöguleiki sem fólginn er í áframhaldandi uppbyggingu stór- iðju. Þar er nærtækur möguleiki til að skapa þúsundir nýrra starfa á næstu árum. Sömuleiðis eru miklir möguleik- ar fólgnir í auknum útflutningi annarra iðnaðarvara. Á þeim vettvangi eru nú mörg íslensk fyrirtæki að reyna fyrir sér í fyrsta sinn og hafa sum þeirra þegar náð nokkrum árangri og svo mun verða um fleiri. Samkvæmt upplýsingum Utflutningsmiðstöðvar iðnaðarins urðu 11 iðnfyrirtæki útflytjendur í fyrsta sinn á síðasta ári og um þessar mundir eru samtals 50 iðn- fyrirtæki að huga að útflutnings- tilraunum í fyrsta sinn. Á sviði nýiðnaðar eru miklir möguleikar á næstu árum að nýta hugvit okkar og orku til aukinhar framleiðslu. Nægir þar að benda á rafeindaiðnað, fiskeldi og nú síðast lífefnaiðnað. Þó verðum við að varast að ein- blína um of á einstaka kosti, því iðnaðarframleiðslan byggir fyrst og fremst á hugviti og atorku ein- staklinga. Reynslan hefur sýnt að örvandi aðgerðir stjórnvalda hafa ávallt jákvæð áhrif í iðnaði og oft kemur mesti vöxturinn þaðan sem enginn sá fyrir. Góðir ársþingsgestir. Iðnaðurinn hefur verið að vaxa og hann mun halda áfram að vaxa á komandi ár- um. En eitt er víst að hann getur vaxið miklu hraðar með jákvæðum stuðningi stjórnvalda og alls fólks- ins í landinu. X e Þaö er ekki auðvelt að rata um tölvuheiminn og því miður hafa allt of margir lent inní blindgötu þegar þeir hafa ætlað að stytta sér leið eða spara sér tíma og fé. Wang PC tölvan er tvímælalaust einn besti valkostur þeirra fyrirtækja, sem eru að hefja tölvuvæðingu. Wang PC býður í senn fullkomið ritvinnslu- og bókhaldskerfi og örugga möguleika til stækkunar og auknmgar með tengslum við stærri tölvueiningar. Heimilistæki hafa selt og þjónustað Wang tölvur í 7 ár með árangri sem fjöldi ánægðra viðskiptavina staðfestir. Þú lendir ekki í blindgötu með Wang! (WANG ) Við verðum hérna líka á morgun!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.