Morgunblaðið - 21.03.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984
23
Stórnjósnarinn Arne Treholt:
Vann fyrir KGB af „hugsjón"
en fyrir íraka í ábataskyni?
Ósló, 20. mars. Frá Jan Erik Lauré, frcttarilara Mbl.
EINS og sagt hefur vcrið frá í fréttum njósnaði
Arne Treholt ekki aðeins fyrir Sovétmenn,
heldur einnig fyrir írösku leyniþjónustuna. Það
hcfur komið fram hjá norsku leyniþjónustunni,
að hennar menn hafi verið búnir að ráða dul-
málið, sem Treholt og Sovétmcnnirnir notuðu
þegar þeir mæltu sér mót erlendis, og þess
vegna kom það Norðmönnunum mjög í opna
skjöldu þegar Treholt átti fund í Aþenu í fyrra
með manni, sem þeir báru engin kennsl á.
Norska leyniþjónustan vill ekkert um það
segja hvernig henni tókst að ráða fram úr
dulmáli Treholts og KGB en það gerði henni
hins vegar kleift að fylgja honum eftir til
Helsinki, New York, Vínar og Aþenu. Fund-
urinn með ókunna manninum í Aþenu var
ljósmyndaður í bak og fyrir og þegar leyni-
þjónustumönnunum varð ljóst um hvern var
að ræða tók málið dálítið óvænta stefnu.
Það var ekki aðeins, að Treholt njósnaði
fyrir Rússa, heldur var hann einnig á mála
hjá írökum og maðurinn á myndinni var
Radhi A. Mohammed, einn þeirra helsti
njósnari.
Treholt hefur ekki verið jafn samstarfsfús
í yfirheyrslunum og haldið var og játar ekk-
ert á sig nema sannanirnar séu lagðar á
borðið. Hann hafði heldur ekkert sagt um
samband sitt við íraka fyrr en honum var
sýnd myndin af þeim Radhi saman. Þá ját-
Arne Treholt með íraska njósnaforingjanum
Radhi A. Mohammed. Myndin var tekin í
Aþenu 19. október á sl. hausti, en þá var Radhi
starfsmaður íraska sendiráðsins þar en er nú
fyrsti sendiráðsritari íraska sendiráðsins í Par-
ís. Treholt hefur játað að hafa átt marga fundi
með honum í báðum þessum borgum.
AP
aði hann að hafa njósnað fyrir þá í tvö ár,
1981—83, og þegið 50.000 dollara fyrir. Um-
samin árslaun hans fyrir þessar njósnir
voru 20.000 dollarar.
Haft er eftir heimildamönnum innan
norsku leyniþjónustunnar, að Treholt hafi
sjálfur haft frumkvæðið að njósnunum fyrir
Iraka enda er afar ósennilegt, að Rússar
hafi viljað deila honum með öðrum. Sovét-
menn og írakar hafa að vísu náið samband
og láta upplýsingar oft leka hvorir til ann-
arra en KGB hefur örugglega ekki viljað
láta einhverja íraska „fúskara" eyðileggja
feril stórnjósnarans Arne Treholts.
Líklegt þykir, að Treholt hafi njósnað
fyrir Rússa af „hugsjónaástæðum" og til
þessa hefur hann aðeins viðurkennt að hafa
þegið af þeim 2.500 dollara upp í ferðakostn-
að. Um Iraka gegndi hins vegar öðru máli.
Þeir eru kunnir að því að borga sínum
njósnurum vel og Treholt hefur sennilega
hugsað sem svo, að úr því hann njósnaði
fyrir Sovétmenn gæti hann alveg eins selt
einhverju öðru ríki upplýsingar fyrir ein-
hvern pening.
Peningana, sem Treholt fékk fyrir njósn-
irnar, lagði hann inn á banka erlendis, eink-
um í Sviss. Þessir reikningar hafa nú verið
„frystir" en ekki hefur verið upplýst hve
margir þeir eru eða hve mikla peninga þeir
geyma.
Jarðskjálfti í
Samarkand
Mo.skvu, 20. marz. AP.
HARÐUR jarðskjálfti varð í dag í
Sovétlýðveldunum llzbekistan og
Turkmenistan í Mið-Asíu. Olli
jarðskjálftinn tjóni í mörgum borg-
um og bæjum, þar á meðal borgun-
um Tashkent og Samarkand. Sov-
ézka fréttastofan TASS greindi hins
vegar ekki frá neinu manntjóni í
frásögn sinni af jarðskjálftunum.
Jarðskjálftinn var harðastur í
Hætt verði
vopnasölu
til Jórdaníu
Washington, 20. marz. AP.
GGORGE P. Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hefur
hvatt Reagan forseta til þess að
falla frá áformum um að selja
loftvarnaeldflaugar til Jórdaníu,
þar sem andstæðingar þessarar
vopnasölu væru nú að komast í
meirihluta í öldungadeild Banda-
ríkjaþings.
Fulltrúi öldungadeildar-
þingmannsins Robert Pack-
woods úr Repúblikanaflokknum
sagði í dag, að 45 þingmenn í
öldungadeildinni hefðu undirrit-
að bréf, sem yrði sent Reagan
forseta á miðvikudag, en þar
væri mælt með því, að hætt yrði
við vopnasöluna til Jórdaníu
vegna neitunar Husseins kon-
ungs við að styðja friðarviðleitni
Bandaríkjamanna í löndunum
fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Larry Smith, einn af þing-
mönnum Demókrataflokksins í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings,
hefur beitt sér mjög gegn þess-
ari vopnasölu. Hann sagðist í
dag hafa stuðning 100 þing-
manna, sem væru ákveðnir í að
koma í veg fyrir þessa vopna-
sölu.
Gazli, smáborg, sem varð mjög illa
úti í jarðskjálftum 1976. Það er
mjög sjaldan sem sovézk stjórn-
völd skýra ítarlega frá tjóni og
mannsköðum af völdum náttúru-
hamfara. Það hefur því gefið til-
efni til bollalegginga um, að tjón
af völdum jarðskjálftans nú hafi
verið umtalsvert, úr því að skýrt
var frá honum á annað borð.
Borgin Mashhad, sem er í norð-
austurhluta Irans nærri sovézku
landamærunum, varð einnig fyrir
jarðskjálftanum í dag. Samkvæmt
frásögn útvarpsins í Teheran var
ekki vitað um, að hann hefði haft
neitt tjón í för með sér.
Bandaríska jarðfræðistofnunin
í Golden í Kaliforníu hefur skýrt
svo frá, að jarðskjálfti þessi hafi
mælzt 7.1 stig á Richtersmæli,
sem þýði, að hann hafi verið mjög
öflugur og gæti hafa haft mikið
tjón í för með sér.
Stangaveiði vinsæl
meðal Norðmanna
Osló, 20. mars. Frá Jan Grik Lauré, fréttaritara Mbl.
SKOÐANAKANNANIR SÝNA að 1,2 milljónir Norðmanna eyða frístundum
sínum meira og minna við stangaveiðar. Að meöaltali veiða Norðmenn þessir
10 daga ár hvert og er bráðin fyrst og
aborri og gedda.
Þessar sömu kannanir gátu þess
að urriðinn væri vinsælasti fisk-
urinn hjá sportveiðimönnum,
einkum og þó sér í lagi vegna þess
að mjög mikið er víða af honum,
svo er veiði hans langt frá því eins
dýr og laxveiðin. Norðmenn veiða
bæði sjóurriða og vatnaurriða og á
það einnig við um bleikjuna.
Stangaveiði á vaxandi vinsæld-
um að fagna í Noregi og æ fleiri
leggja lag sitt við hana. Nóg pláss
fremst lax, urriði og bleikja, en einnig
er fyrir stangaveiðimenn í Noregi,
á skrá eru 408 ár með laxi, sjóbirt-
ingi og sjóbleikju og þá eru ótalin
öll stöðuvötnin með vatnafiskin-
um. Álitið er að norskir stanga-
veiðimenn hafi á síðustu 15 árum
dregið á land 3,8 milljónir tonna
af vatnaurriða og 1,2 milljónir
tonna af laxi og sjóurriða. Bleikj-
an þykir ekki eins „fínn“ fiskur í
Noregi og fer því minni fregnum
af þeim afla.
Harkan vex í brezka
kolanámaverkfallinu
London, 20. marz. AP.
VERKFALLSMENN í brezkum
kolanámum héldu því fram í
dag, að ríkisstjórn íhaldsflokks-
ins hefði komið á hernaðar-
ástandi í landinu með því að
skipa fjölmennu lögregluliði til
gæzlu við kolanámur í landinu.
Enn er unnið við um fjórðung
kolanáma í landinu þrátt fyrir
verkfallið, sem nú hefur staðið
yfir í 9 daga.
Foringjar verkfallsmanna í
kolanámum í Kent sögðust í
dag ætla að fá dómsúrskurð,
þar sem lögreglunni yrði
bannað að 'setja upp götu-
hindranir til þess að koma í
veg fyrir, að verkfallsverðir
kæmust inn í Nottingham-
shire. Þar eru næstmestu
kolanámur Bretlands, en
námamenn þar hafa neitað að
fara í verkfall.
„Það ríkir nánast hernaðar-
ástand, þar sem fólk verður að
sýna persónuskilríki í bók-
staflegri merkingu til þess að
komast frá einum stað til ann-
ars“, sagði Arthur Scargill,
leiðtogi samtaka kolanámu-
manna, í útvarpsviðtali í dag.
Um 8.000 lögreglumenn
fylgjast með því, að náma-
menn, sem vilja vinna, komist
á vinnustað óhindraðir af
verkfallsvörðum. Skýrði yfir-
stjórn kolanámanna frá því,
að 42 kolanámur af 174 væru
starfræktar áfram með eðli-
legum hætti þrátt fyrir verk-
fallið.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Jan ............ 2/4
Jan ........... 16/4
Jan ........... 30/4
ROTTERDAM:
Jan ............ 3/4
Jan ........... 17/4
Jan ............ 1/5
ANTWERPEN:
Jan ............ 4/4
Jan ........... 17/4
Jan ............ 2/5
HAMBORG:
Jan ........... 23/3
Jan ............ 6/4
Jan ........... 19/4
Jan ............ 4/5
HELSINKI/TURKU:
Mælifell ...... 22/3
Hvassafell .... 31/3
Hvassafell .... 26/4
LARVIK:
Francop ....... 26/3
Francop ........ 9/4
Francop ....... 23/4
Francop ........ 7/5
GAUTABORG:
Francop ....... 27/3
Francop ....... 10/4
Francop ....... 24/4
Francop ........ 8/5
KAUPMANNAHÖFN:
Francop ....... 28/3
Francop ....... 11/4
Francop ....... 25/4
Francop ........ 9/5
SVENDBORG:
Francop .. 29/3
Francop .. 12/4
Francop .. 26/4
Francop .. 10/5
ÁRHUS:
Francop ... 30/3
Francop ... 13/4
Francop ... 27/4
Francop ... 11/5
FALKENBERG:
Helgafell ... 11/4
Ship ... 25/4
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell ... 24/3
Jökulfell ... 13/4
Skaftafell ... 25/4
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ... 26/3
Skaftafell ... 26/4
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101