Morgunblaðið - 21.03.1984, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 21.03.1984, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 Amarflug: Mikil aukning á farþega- og vöru- flutningum í ár — segir Magnús Oddsson, sölu- og markaðsstjóri „ÁRID hefur farið mjög vel af stað í áætlunarfluginu, sem sést kannski best á því, að farþegar okkar í janú- ar voru 959, en til samanburðar 640 á sama tíma í fyrra. Aukningin milli ára er um 50%,“ sagði Magnús Oddsson, sölu- og markaðsstjóri Arnarflugs, í samtali við blm. Mbl. „Þessi þróun hefur síðan haldið áfram og í febrúarmánuði var aukningin á farþegafjölda um 107%, eða 1.137 farþegar á móti 550 á sama tíma í fyrra. Þegar mars er hálfnaður eru farþegar og bókanir orðnar liðlega 1.200, en í mars á síðasta ári fluttum við 970 farþega. Aukningin milli ára er því þegar orðin um 25%,“ sagði Magnús ennfremur. Magnús sagði aðspurður, að vöruflutningar félagsins hefðu ennfremur gengið mjög vel það sem af er árinu og nefndi sem dæmi, að í febrúarmánuði hefði félagið flutt tæplega 31,5 tonn, borið saman við liðlega 12,3 tonn á sama tíma í fyrra. Aukningin milli ára er því vel yfir 150%. „Þá er það mjög ánægjulegt að hlutur Hollendinga í farþega- fjölda hefur farið vaxandi og er aukning hollenskra ferðamanna til íslands í byrjun ársins um 100%, miðað við sama tíma í fyrra," sagði Magnús. Magnús Oddsson sagði, að bók- anir erlendis fyrir sumarið 1984 Seltjörn endur- byggð SELTJÖRN, sem Seltjarnarnes heit- ir eftir, verður að líkindum endur- byggð á næstu árum. Tillaga þar að lútandi var samþykkt á bæjarstjórn- arfundi á Seltjarnarnesi sl. miðviku- dagskvöld. Seltjörn hvarf að mestu fyrir um 100 árum þegar rifið hafði lækkað mikið, skv. upplýsingum Magnúsar Erlendssonar, forseta bæjarstjórnar á Nesinu, en hann var flutningsmaður tillögunnar. Forsaga málsins er sú, að ný- lega var gerð athugun á notkun stórgrýtis til landvarnar á Sel- tjarnarnesi norðanverðu. Jón Búi Guðlaugsson, verkfræðingur hjá Köfunarstöðinni hf., annaðist þá athugun og telur að hún hafi leitt í ljós athyglisverðan möguleika — þ.e. að endurbyggja Seltjarnarrif fyrir um níu milljónir króna. Reiknað er með um 700 metra löngum sjóvarnargarði, 5,5 metr- um hærri en rifið er nú og 100 metra langri innsiglingarrennu við Gróttu. Mat Jóns Búa er, skv. bréfi hans til bæjarstjórnarinnar, að sjó- varnargarðurinn myndi m.a. skapa ákjósanlegar aðstæður fyrir smábátabryggju í syðri hluta Seltjarnar. Hann telur að að kostnaður við verkið verði á bilinu 8,7—9 milljónir króna. Til að stað- festa þær tölur þurfi að gera nokkrar rannsóknir, m.a. að hæð- armæla Seltjarnarnessrif og gera útreikninga á nauðsynlegri hæð sjóvarnargarðs með tilliti til öldu- hæðar og fyrirhugaðrar notkunar Seltjarnar. bentu til þess að mjög mikill fjöldi ferðamanna frá Evrópu hyggði á íslandsferð í ár. „Nú þegar eru margar ferðir uppseldar, sérstak- lega frá Dússeldorf og Zúrich og hafa verið settar upp aukaáætlun- arferðir. Þá hefur verið ákveðið að bæta við 4 áætlunarferðum milli íslands og Amsterdam í aprílmán- uði. Þá hefur sú ánægjulega þróun orðið, að sífellt fleiri fullborgandi farþegar eru á ferðinni, sérstak- lega frá Evrópu, sem gefur okkur að sjáifsögðu meiri tekjur." Hofsá hjá Fossi. Séð út eftir Fossdal. Krossavíkurfjöll í baksín. (Ljósm. Haraldur Jónsson) HoM í Vopnafirði — eftir Einar Hannesson Fátt er um góðar laxveiðiár á Austurlandi miðað við aðra lands- hluta. Stafar þetta fyrst og fremst af þvi að straumvötnin eru yfir- leitt frekar köld enda árnar marg- ar stuttar eða leysingavatns gætir í þeim fram eftir sumri. Af rúm- lega 30 vatnsföllum, sem eiga ós í sjó, eru aðeins níu með laxveiði, en hinar silungsár. Bestu laxveiði- árnar eru allar í Vopnafirði: Selá, Vesturdalsá og Hofsá. Hofsá í Vopnafirði, sem gerð er að umtalsefni í grein þessari, er gjöfulasta laxveiðiáin á Austur- landi. Hún fellur í sjó í botn Vopnafjarðar. Efstu drög hennar eru í norðanverðum Þríhyrnings- fjallgarði, skammt frá Háfsvatni, í 553 m hæð yfir sjó. Þaðan eru 85 km til sjávar. Aðrennslissvæði Hofsár er 1.100 km2 (Vatnamæl- ingar). Fáar laxveiðiár hér á landi, er teljast til bergvatnsáa, eru með stærra vatnasvið en Hofsá. Hofsá dregur fyrst og fremst til sín vatn af gróðursælum heiðum; Jökuldalsheiði og Tunguheiði. Á vatnakerfinu eru nokkur stöðu- vötn. Stærst þeirra er Sænauta- vatn á Jökuldalsheiði. Það er um 2,3 km2 að grunnfleti í 525 m h.y. sjó og 67 km frá sjó. Á svæðinu eru auk þess Þuríðarvatn og Nykur- vatn í Vopnafirði, Geldingavatn og Langhólmavatn á Tunguheiði og Smjörvatn á samnefndri heiði. Auk þess eru mörg smærri vötn og tjarnir. Víðáttumikið vatnasvæði Vatnasvið Hofsár er ákaflega víðáttumikið, eins og fyrr er getið. Fjöldi kvísla og lækja af Jökul- dalsheiði og fjallgörðum vestan hennar streymir til Hofsár. Hofsá sjálf hefur göngu sína á heiðar- svæði sunnan Fossdals 47 km frá sjó. Áin fellur fyrst í stefnu norður en síðar, er hún kemur í Fossdal, heldur hún í norðaust- ur. Ain fer síðar um Hofsárdal og fellur í sjó í Vopnafjarðarbotn. Margar ár renna í Hofsá sjálfa, flestar koma að austanverðu í ána. Tvær þær helstu eru: Sunnudalsá, sem fellur í Hofsá i 16 km fjar- lægð frá sjó og er þar í 50 m h.y. sjó. Vatnasvið Sunnudalsár er 200 km2, mest á Smjörvatnsheiði. Hin er Tunguá, sem kemur af sam- nefndri heiði, með 80 km2 að- rennslissvæði. Tunguá sameinast Hofsá 25 km frá sjó og eru ármót- in í 140 m h.y. sjó. Nokkrar ár eru Veiðihúsið Árhvammur við Hofsá í Vopnafirði. Veiðifélagið Veiðifélagið var stofnað 9. .febrúar 1%7. Það tók til 18 jarða á fiskgenga hluta vatnasvæðisins. Föstu skipulagi var þar með kom- ið á veiði og fiskrækt. í stjórn fé- lagsins voru kjörnir: formaður Gunnar Valdimarsson, Teigi, rit- ari Sigurður Björnsson, Háteigi, og gjaldkeri Einar Gunnlaugsson, Burstarfelli. Gunnar var formað- ur félagsins í 10 ár, allt til ársins 1977. Þá tók við formennsku Gunnar Pálsson, Refsstað, en hann var formaður 1 sjö ár. Séra Sigfús J. Árnason, Hofi, var kjör- inn formaður félagsins 1983. Leigutakar Við Klapparhyl í Hofsá. Laxinn þreyttur. þá ótaldar, er koma úr Smjörfjall- garði, auk tveggja, Þuríðarár og Teigarár, sem falla í ána að vest- anverðu. Hofsá er lax- geng 31 km Hofsá er fær göngufiski úr sjo 31 km, að hindrun í ánni hjá bæn- um Fossi í samnefndum dal. Þá er Sunnudalsáfiskgeng 7 km. Öæði lax og silungur er á þessu svæði, en af silungi er mest sjóbleikja. í Hofsá hefur veiði verið stunduð alla tíð og veitt í net: með ádrætti og lagneti lengst af. í seinni tíð kom stangarveiði til sögunnar. Til fróðleiks má geta þess, að Stefán Eiríksson, myndskeri, stundaði laxveiði á stöng í Hofsá fyrir 1920 og Englendingar nokkur sumur um 1930. Um skeið var veitt bæði i net og á stöng og stunduðu eigend- ur jarða að ánni veiðina eða henni var á sumum jörðum ráðstafað til annarra, sem stunduðu þá stang- arveiði. Þörf umbóta Þróun veiðimála við Hofsá varð sú á sjöunda áratugnum að vand- ræðaástand skapaðist vegna þes að hver og einn veiðieigandi nýtti veiði fyrir sínu landi án tillits til heildarafkomu fiskstofnsins í ánni. Stangarfjöldi fór því úr böndunum, en netaveiði var stunduð þar sem óhægt var að veiða á stöng. Þetta leiddi til þess að áhugamenn við ána um bætt ástand beittu sér fyrir stofnun samtaka um Hofsá á grundvelli laga um lax- og silungsveiði. Veiðimálastjórn gaf því út heimild 1966 til þess að stofna veiðifélag um Hofsá. Veiðifélagið ákvað í upphafi að eingöngu skyldi veitt á stöng á fé- lagssvæðinu og áin leigð út. Stangaveiðifélagið Flúðir á Akur- eyri og Major Brian MacDonald Booth frá Englandi leigðu veiðina í ánni 1967. Ári seinna, 1968, leigði Major Booth alla veiði á félags- svæðinu til sjö ára eða til loka veiðitímans 1974. Sami aðili var einnig með ána 1975 til 1980, en seinustu tvö árin leigði Stanga- veiðifélagið Ármenn Sunnudalsá og einnig árið 1981. Veiðifélagið tók í eigin hendur útleigu á veiði 1981 og hefur svo verið síðan. Fiskræktin Gönguseiðum af laxi og sumar- öldum seiðum hefur verið sleppt árlega, en framan af voru það gönguseiði eingöngu, en seinna hvort tveggja. Veiðieftirlit hefur verið á svæðinu og auk þess hefur veiðifélagið haft samvinnu um margra ára skeið við önnur veiði- félög í Vopnafirði um eftirlit í sjó í firðinum. Umbætur hafa verið gerðar í ánni og vegir lagðir til að greiða fyrir för veiðimanna að veiðistöð- um í ánni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.