Morgunblaðið - 21.03.1984, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984
39
verið sammála hérlendis og sýnt
það margsinnis með verkum sín-
um, þótt þeir láti öðruvísi á stund-
um. Með þessu viðurkenna þeir
vald rfkisins til afskipta og
ákvarðana í þessum málum. Að
sjálfsögðu er deilt um það, hvort
ástæða sé til slíkra afskipta í einn
eða annan tíma, en almennt er
víðtækt samsinni fyrir því, að rík-
ið hafi hér vissan neyðarrétt.
Þessu mótmæla varla nema ein-
sýnustu „frjálshyggjumenn", sem
hafa það fyrir trúarsetningu, að
allt gangi bezt fyrir sig meðal
mannanna, ef þeir eru látnir af-
skiptalausir um eigin sýslan og
ákvarðanir. Þeir frelsistrúarmenn
eru vissulega til bæði meðal at-
vinnurekenda og verkalýðssinna,
en flokkur þeirra er fáskipaður,
því að fæstir þeir, sem taka sér
orðin „frjálsa samninga!” í munn,
reynast sjálfum sér samkvæmir.
Tillaga mín býður upp á lausn
til að leiðrétta þjóðfélagslegt mis-
rétti, bæði meðal þeirra launþega,
sem búa við bágustu kjörin, og
eins meðal atvinnuveganna
sjálfra, sem hafa mjög misjafnt
svigrúm til aukinna launa-
greiðslna. En hér er það höfuðat-
riði, að vinnuveitendur láti ekki
hörðustu forystumenn sína kom-
ast upp með að skella skolleyrum
við öllum réttlætiskröfum um
bætt launakjör.
Sem sjálfstæðismaður vil ég
enda þetta með hvatningu til ráð-
herra flokksins, að þeir dragi ekki
taum þeirra afla, sem nú um langa
hríð hafa notið ávaxta launa-
skerðingarlaganna og hyggjast
gera það til frambúðar. Ég er illa
svikinn af þeim flokki, ef hann
ætlar nú að bregðast því hlutverki
sínu að gæta hagsmuna allra stétta,
eins og hann hefur jafnan haft að
leiðarljósi.
ísafirði, 30. jan. 1984.
Jón Valur Jensson
Jón Valur Jensson er cand. theol.
og forstöóumaóur Kröldskólans á
Isafírði.
Sovésku eldflaug-
arnar gagnrýndar
Vín, 19. mars. AP.
TÉKKNESKIR háskólastúdentar og
nokkrir sveitasrtjórnamenn eru í
hópi þeirra sem að undanfórnu hafa
gagnrýnt þá ákvörðun að koma fyrir
nýjum sovéskum kjarnorkueldflaug-
um í Tékkóslóvakíu, að því er heim-
ildarmenn AP meðal tékkneskra út-
laga herma.
Lesendabréf hafa einnig birst í
blöðum þar sem látnar eru í ljós
áhyggjur út af eldflaugunum.
Stjórnvöld í Tékkóslóvakíu féll-
ust seint á síðasta ári á að eld-
flaugunum yrði komið fyrir í land-
inu. Er það að sögn gert til mót-
vægis við hinar meðaldrægu
kjarnorkueldflaugar Atlantshafs-
bandalagsins í Evrópu.
kvæman hátt er alls ekki unnt
lengur að líta á menntun sem það
eitt að gleypa viðtekna þekkingu,
heldur sem tilraun í strangasta
skilningi orðsins, þ.e.a.s. menntun
er einskonar rökræða við rökvís-
ina, menninguna, veröldina, sam-
félagið og framtíðina: Hún birtist
í vangaveltum um þau örlög sem
hver og einn verður að teijast
ábyrgur fyrir.
Rannsóknir hverskonar og
þekkingarleit halda ekki áfram að
þróast, dafna og skila árangri af
sjálfum sér — og alls ekki ef eng-
inn stundar þær. Þær blómstra
einungis þar sem aðstæður hæfa
þeim og þar sem þær njóta þess
frelsis og sjálfræðis sem er þeim
nauðsynlegt. Að standa gegn slíkri
viðleitni, eins og tíðkast í okkar
samfélagi, er að draga allan kraft
úr því. Slík framkoma er bæði
hættuleg og til skammar. Fram-
tíðin krefst þess að menntun og
rannsóknir hljóti þann aöbúnað
sem gerir okkur kleift að eiga
hlutdeild í henni, ella verðum við
undir í samfélagi þjóðanna og
hættum að skilja sjálf okkur, aðr-
ar þjóðir og heiminn. Er einhver á
meðal okkar sem óskar þess?
1‘órður Kristinsson er prófstjóri rið
Háskóla íslands.
Ágúst Pétursson, Úlfar Thoroddsen og Sigríður Kristinsdóttir fyrir miðri
mynd við afhendingu baðlyftunnar.
Starfsfólk á sjúkrahúsinu sýnir viðstöddum notkun lyftunnar.
Lions gefur baðlyftu á Patreksfirði
Patreksfjördur.
LAIJGARDAGINN 18. febrúar var
sjúkrahúsi Patreksfjarðar færð að
gjöf baðlyfta af Arjo-gerð frá
Lions-klúbbi Patreksfjarðar, er
klúbburinn hefur að undanförnu
safnað fyrir.
Ágúst H. Pétursson, formaður
Lions afhenti Úlfari B. Thorodd-
sen, stjórnarmanni í stjórn Sjúkra-
húss og Heilsugæslustöðvar Pat-
reksfjarðar, gjöfina en Úlfar síðan
í umsjón Sigríðar Karlsdóttur,
hjúkrunarforstjóra sjúkrahússins.
Bolli Ólafsson, forstöðumaður
Heilsugæslustöðvar og Sjúkra-
húss Patreksfjarðar, þakkaði
fyrir góða gjöf og gat þess um
leið að nýlega hefðu sjúkrahús-
inu verið gefin sex ný sjúkra-
rúm, er að frumkvæði starfs-
mannafélags sjúkrahússins
hafði verið safnað til af kvenfé-
lögum í V-Barðastrandarsýslu
ásamt framlagi nokkurra ein-
staklinga til þeirra kaupa. Elstu
sjúkrarúm sem þessi nýju leysa
af hólmi eru orðin allt að 50 ára
gömul. Krétt»rit»ri.
Leikritið „Eilíf
veizla" frumsýnt
á Reyðarfirði
Reyðarnröi, 14. marN.
HJÁ Leikfélagi Reyðarfjarðar er nú
verið að æfa nýtt íslenskt leikrit. Höf-
undur þess og leikstjóri er Margrét
Traustadóttir sem er formaður leikfé-
lagsins hér. Leikritið heitir „Eilíf
veisla". Leikrit þetta er fyrsta verk
höfundar og hefur hún unnið að því
sl. þrjú ár.
Margrét hefur við gerð þessa
leikrits notið aðstoðar tveggja
systra sinna þeirra Sólveigar og
Vilborgar. Vilborg sem býr fyrir
norðan hefur samið ljóð, sem í
verkinu eru, og Sólveig, sem býr á
Eiðum, hefur aðstoðað Margréti
við að koma verkinu upp. Sólveig
hefur bæði samið leikrit og sett
upp og leikstýrt leikritum hér fyrir
austan.
Leikritið „Eilíf veisla" fjallar um
konu sem giftir sig og eignast
fljótlega barn, en úr því fara ýmsir
sambúðarerfiðleikar að gera vart
við sig hjá ungu hjónunum. Aðal-
hlutverk eru í höndum Gerðar Ó.
Oddsdóttur og Agnars Bóassonar,
en raunveruleg hlutverk í leikrit-
inu eru 15. Leikendur eru tíu í þeim
hlutverkum og fara fimm með
fleiri en eitt hlutverk. Aukapersón-
ur eru fjórar og verða þá leikendur
alls tólf.
Áætlað er að frumsýnt verði á
Reyðarfirði föstudaginn 23. mars
og að sjálfsögðu mun leikfélagið
ferðast með sýninguna „Eilíf
veisla" til nágrannastaða hér á
Austurlandi.
Erfiðlega hefur gengið hjá leik-
félaginu undanfarin ár að fá fólk
til þess að leika, en það eru fleiri
sem bjóða fram aðstoð sína við
undirbúning leikrita, og auðvitað
er það vel þegið, en leikfélagið
vantar tilfinnanlega fólk sem er
tilbúið til þess að skella sér upp á
svið og leika. Það er viss kjarni í
félaginu sem starfað hefur undan-
farin ár og engin furða þó það
sama fólk vilji fara að hvíla sig
aðeins.
Margrét hefur verið aðaldriffjöð-
urin í leikfélaginu undanfarin ár og
á hún mikið lof skilið fyrir dugnað
sinn í félagsmálum hér. Margrét er
fædd að Djúpuvík á Ströndum, en
fluttist þaðan 6 ára gömul að
Sauðanesi við Siglufjörð. Til
Reyðarfjarðar fluttist Margrét
1979 með eiginmanni sínum, Kjart-
ani Arnþórssyni, og börnum. Við
óskum Margréti til hamingju og
vonum að leikriti hennar verði vel
tekið hér á Austurlandi.
Gréta.
Leikhópurinn á Reyðarfirði, sem nú undirbýr „Eilífa veislu“.
Ljósm. Ásfteir Metúsalemsson.
Margrét Traustadóttir, höfundur
leikritsins, leikstjóri og formaður
Leikfélagsins á Reyðarfirði.
Aðalleikararnir Gerður og Agnar.
ASEA
rafmótorar
Nú eru ASEA rafmótorar í næsta nágrenni viðskiptavina sinna: —
AUSTURLAND: Rafmagnsverkstæði Leifs Haraldssonar, Seyðisfirði
VESTMANNAEYJAR: Geisli, Vestmannaeyjum.
SUÐURNES: Rafiðn, Keflavík
VESTFIRÐIR: Póllinn, ísafirði
Sölumenn okkar veita frekari upplýsingar ef óskað er.
'RÖNNING