Morgunblaðið - 21.03.1984, Side 46

Morgunblaðið - 21.03.1984, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 Úrslitakeppni 1. deildar hefst á föstudagskvöld ÚRSLITAKEPPNIN í 1. deMd karla í handknattleik hefst næstkom- andi föstudag, 23. marz. Þá fara fram tveir leikir í Seljaskóla. Klukkan 20.00 leika Stjarnan og Víkingur og strax á eftir FH og Valur. Á laugardag leika svo FH og Stjarnan kl. 14.00 í Seljaskóla og kl. 15.15 Valur og Víkingur. Á sunnudagskvöld leika svo kl. 20.00 Víkingur — FH og Stjarnan — Valur. Fyrsta umferöin veróur öll í íþróttahúsi Seljaskóla. Önnur umferö keppninnar fer j fram í íþróttahúsinu á Digranesi í Kópavogi og fer hún fram 30., 31. marz og 1. apríl. Þriðja umferðin fer fram í Laugardalshöllinni og fjóröa og síöasta umferöin, þar sem úrslitin væntanlega ráöast, fer fram i íþróttahúsinu í Hafnarfiröi. Keppni í neöri hluta 1. deildar hefst á Akureyri á föstudagskvöid- iö og þar veröur leikiö alla helgina. Keppni í efri hluta 2. deildar hefst í Vestmannaeyjum á föstu- dagskvöldiö kl. 20.00 meö leik UBK og Gróttu. Síðan leika Fram og Þór. Keppninni veröur svo fram haldið á laugardag og sunnudag. — ÞR VINNUBRÖGÐ stjórnar Knatt- spyrnusambands islands hafa löngum veriö til mikils sóma í hvívetna. Fyrir nokkru sendi stjórnin frá sér leikjaskrá fyrir keppnistímabilið 1984. Er þaö til mikillar fyrirmyndar aö ganga svona snemma frá mótskrá og mættu önnur sérsambönd innan ÍSÍ taka KSÍ sér til fyrirmyndar. Laugardaginn 12. maí leika ÍA og ÍBV í meistarakeppni KSI. Fyrsti leikurinn í 1. deild veröur fimmtu- daginn 17. maí og er hann á milli Víkings og KR. Síðasti knattspyrnuleikurinn sem leikinn veröur á keppnistíma- bilinu veröur landsleikurinn gegn Wales í Wrexham í undankeppni HM. Hann fer fram 14. nóvember. Mótanefnd KSÍ skipa Ingvi Guö- mundsson formaöur, Helgi Þor- valdsson og Siguröur Hannesson. — ÞR • Úrslitakeppni 1. deildar hefst á föstudagskvöldiö í íþróttahúsi Seljaskóla. Fjóróa og síðasta umferö keppninnar fer fram í Hafnarfiröi og lýkur sunnudaginn 15. apríl. Mikil aösókn var aö úrslitakeppninni í fyrra og má búast vió fullu húsi áhorfenda í keppninni í ár ef aö líkum lætur. • Þaö veróur mikiö um að vera hjá knattspyrnumönnum á keppnis- tímabilinu sem er framundan. Þá stendur íslenska landslióið frammi fyrir stórum verkefnum. Hér má sjá Ragnar Margeirsson í landsleik gegn Spánverjum, en þeir verða meðal mótherja íslands í forkeppni HM sem hefst í haust. Lijfikjaskrá KSI komin út Leikið í Evrópukeppnunum í knattspyrnu í kvöld: Hvaða lið komast í 4 liða úrslitin? Evrópukeppni meistaraliða: Rapid Wien (Austurríki) — Dundee United (Skotlandi) . 2—1 AS Roma (ftalíu) — Dynamo Berlin (A-Þýskalandi) ..... 3—0 Dynamo Minsk (Sovét) — Dinamo Bukarest (Rúmeniu) .... 1—1 Liverpool (England) — Benfica (Portúgal) ............ 1—0 Evrópukeppni bikarhafa: Barcelona (Spáni) — Mancheater United (Englandi) ... 2—0 Porto (Portúgal) — Shakhtyor Donetsk (Sovétríkjunum) ... 3—2 Haka (Finnlandi) — Juventus (ftalíu) ....................................._0—1 Ujpest Dozsa (Ungverjalandi) — Aberdeen (Skotlandi) ........................ 2—0 UEFA-bikarinn: Tottenham (Englandi) — Austria Wien (Austurríki) _....... 2—0 Sparta Prag (Tékkósl.) — Hajduk Split (Júgóslavíu) ... 1—0 Anderlecht (Belgíu) — Spartak Moskva (Sovétríkjunum) ... 4—2 Nottingham Forest (Englandi) — Sturm Graz (Austurriki) . 1—0 í KVÖLD fer fram síðari umferö- in í átta liða undanúrsfitunum í Evrópukeppnunum í knatt- spyrnu. Fjórir leikir í keppni meistaraliöa, UEFA-keppnínni og keppni bikarhafa. Margir spennandi leikir eru á dagskrá og fróðlegt veróur aó sjá hvaóa liö komast áfram. Úrslit leikja í fyrri umferöinni uröu þessi hjá liðunum: • Bruno Conti til hægri er einn besti leikmaóur Roma og hefur leikiö mjög vel meó liðinu í Evrópukeppni meistaraliða. Roma er nokkuð öruggt í fjögurra liöa úrslit keppninnar. Ef viö lítum fyrst á keppni meistaraliöa, þá bíöa vist flestir eftir úrslitum í leik Benfica og Liverpool. Benfica getur veriö hættulegt á heimavelli sínum og ef tekið er miö af því aö Liver- pool hefur ekki leikiö eins og þaö getur gert best aö undanförnu má allt eins búast viö óvæntum úrslitum í leiknum. En Liverpool þolir 1—2 tap í leiknum í kvöld og kæmist samt áfram á marki skoruöu á útivelli. Reikna má meö því aö liö Roma sé öruggt áfram og flestir spá því aö það veröi lið Roma og Liverpool sem mætist í úrslita- leiknum. Þaö er aö segja ef liöin dragast ekki saman í næstu um- ferð. • Fyrirliöi Man. Utd., Bryan Robson, hefur leikiö af hreinni snilld í síðustu leikjum og skor- aö falleg mörk. Man. Utd. má taka á honum stóra sínum ef liðið á aó komast áfram og sigra Barcelona. En takist Robson og félögum hans vel upp getur allt gerst og ef miöa á við síðustu leiki hjá Man. Utd. sigrar liöíö Barcelona í kvöld, hvort sigur- inn verði nægilega stór er svo önnur saga. Dundee á enn möguleika tak- ist þeim vel upp í kvöld þar sem þeim tókst aö skora á útivelli. j Evrópukeppni bikarhafa veröa hörkuleikir. Mikiö stuö er á Manchester United um þessar mundir og má mikiö vera ef liðið sigrar ekki Barcelona í kvqld og kemst áfram j keppninni þrátt fyrir 2—0 tap í fyrri leik liðanna. Juventus er alveg öruggt meö sigur gegn finnska liöinu Haka á heimavelli sínum. Fyrri leik liö- anna lauk meö 1—0 sigri Juvent- us sem þótti lítið. Leikmenn Ju- ventus reyna því örugglega aö. laga markatöluna í kvöld. Aberdeen hefur ekki mikla möguleika á aö komast áfram gegn sterku liði Doza frá Ung- verjalandi. Aberdeen tapaöi fyrri leik liöanna 0—2. Og þó aö liöiö leiki vel á heimavelli og hafi Evr- ópumeistaratitil aö verja fellur liöiö sennilega út úr keppninni. I UEFA-keppninni veröur aö telja líklegt aö bæöi ensku liöin Tottenham og Notthingham For- est komist áfram. Þá er næsta víst aö Anderlecht komist áfram þó aö leikurinn í Moskvu í kvöld veröi erfiöur og tapist. En varla ná Rússar betra markahlutfalli en Anderlecht sem skoraöi fjögur mörk í fyrri leiknum. Til gamans spáir Morgunblaöiö því aö þessi liö komist í fjögurra liöa úrslit í Evrópukeppnunum: Evrópukeppni meistaraliða: Rapid Vín, Austurríki. As Roma, Ítalíu. Dynamo Minsk, Rússlandi. Liverpool, Englandi. Evrópukeppni bikarhafa: Manchester United, Englandi. Donetsk, Rússlandi. Juventus, Ítalíu. Ujpest Doza, Ungverjalandi. UEFA-bikarinn: Tottenham, Englandi. Hjduk Split, Júgóslavíu. Anderlecht, Belgíu. Notthingham Forest, Englandi. — ÞR.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.