Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 18
1£’
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR ,'LMAÍ19g4.
Endurnýjun á búnaði fiskimjöls-
verksmiðjunnar í Siglufirði hafin
FRAMKVÆMDIR vid endurbætur á
llíikinijölsverksmiðju SR á Siglufirði
eru nú að hefjast. Miðast endurbæt-
urnar fyrst og fremst við orkusparnaö
og betri gang í verksmiðjunni.
Að sögn Jóns Reynis Magnússon-
ar, framkvæmdastjóra SR, er ætl-
ínin að byrja nú á stórum áfanga,
lem felst í endurbyggingu soð-
töðvar við verksmiðjuna, en þar er
vatn eimað af soðinu í stað þess að
þurrka það í þurrkara. Sú aðferð
hefur lengi verið notuð í verksmiðj-
unni á Siglufirði og víðar, en nú-
verandi tæki eru orðin úr sér geng-
in og þarfnast endurnýjunar. Verð-
ur soðstöðin byggð við hlið núver-
andi verksmiðju þar sem SR 30
stóð, en það var fyrsta verksmiðja
SR á Siglufirði. Þá er fyrirhugað að
setja þarna upp nýja sjóðara og
forsjóðara, sem nýtir gufu, sem
annars fer til spillis.
Jón Reynir sagði að þetta væri
mikið verkefni og tæki langan tíma
og væri kostnaðarsamt. Fyrirhug-
að væri að vinna allan búnað, sem
mögulegt væri á verkstæði SR á
Siglufirði og sparaði það bæði fé og
veitti mönnum atvinnu. Auk þess
væri svo stöðug endurnýjun á bún-
aði annarra verksmiðja SR í gangi.
Fulltrúaráðsfundur Landssam-
bandsins gegn áfengisbölinu var
haldinn fimmtudaginn 26. janúar
síðastliðinn. Eftirfarandi ályktanir
voru samþykktar á fundinum.
Skorað er á heilbrigðismála-
ráðherra og dómsmálaráðherra að
þeir hlutist til um að framkvæmd
áfengislaganna verði breytt þann-
ig að hún stefni að tilgangi þeirra
en ekki frá honum.
Jafnframt beinir fundurinn
þeirri eindregnu áskorun til
menntamálaráðherra að hann
hlutist til um að ríkisfjölmiðlarnir
gangi fram fyrir skjöldu með auk-
inni fræðslu fyrir almenning.
Fundurinn skorar á viðkomandi
yfirvöld og forystumenn í félags-
og mcnningarmálum, ekki síst
fjölmiðlafólk, að skera upp herör
gegn neyslu allra vímuefna og
taka þátt í að svipta dýrðarhjúpn-
um af öllum vímuefnum.
Þá beinir fundurinn því til Al-
þingis að samþykkja ekki fram
komna þingsályktunartillögu um
almenna atkvæðagreiðslu um
hvort leyfa skuli sölu áfengs öls
hér á landi.
Tölvuboró
stöðluð eða sérsmíóuó
aó óskum kaupanda
%
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF.
SKEIFUNNI 6,SlMAR: 33590,35110. 39555
Friðrik Óskarsson fylgist með dælingu í lýsispokann. MorgunblaðiA/SiKurgeir.
Vestmannaeyjar:
Lýsi dælt í poka
Vestmannaeyjum, 18. apríl.
NÝLEGA var skipaö hér út í eitt af
skipum Hafskips hf. 12 tonnum af
lýsi. Það er í sjálfu sér ekki svo mjög
fréttnæmt hér í stærstu verstöð
landsins að lýsi sé lestað í skip en
það var flutningamátinn sem vakti
athygli okkar Morgunblaðsmanna.
Lýsingu er nefnilega dælt í stóra sér-
staklega útbúinn poka sem er í
þurrgámi. Gámurinn er fluttur í lýs-
istank við Lifrarsamlagið og dælt
beint í pokann. Gámnum er síðan
ekið að skipshlið og hann hífður um
borð.
Að sögn Friðriks óskarssonar,
umbosðmanns Hafskips hf. í Eyj-
um, hefur þessi nýja tækni í flutn-
ingum reynst mjög vel en þetta er
annar lýsisfarmurinn sem er
fluttur út frá Eyjum með þessum
hætti. Friðrik sagði að pokinn
tæki 12 tonn af lýsi en fyrirferðin
á honum tómum og samanbrotn-
um væri ekki meiri en svo að hann
rúmaðist í sæmilega stórri ferða-
tösku. „Það tekur ekki nema um
eina klukkustund að gera pokann
kláran, dæla í hann og ganga frá
honum í gámnum," sagði Friðrik
óskarsson, sem nú heldur upp á 10
ára afmæli sem umboðsmaður
Hafskips hf. í Vestmannaeyjum.
Landsambandið gegn áfengisbölinu:
Mótfallið atkvæða-
greiðslu um áfengt öl
1984 1985
Nýtt happdrættísár
með fjölda stórra vínninga
ídag kl.6.
varður dregið i l.flokkí. ,
AÖalumboðíð Vesturverí opíð tíl kl. 6.
Nokkrír lausir míðar enn fáanlegír. Happdrættí '84-85