Morgunblaðið - 04.05.1984, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.05.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAEHÐ, FÖSTUDAGUR 4> MAÍ 1984 5 Þriðja einkasýning Jóhönnu K. Yngvadóttur í listmunahÚNÍnu við Lækjargötu verður opnuð sýning á málverkum Jóhönnu Kristínar Yngvadóttur nk. laugardag, 5. maí. Þetta er þriðja einkasýning Jóhönnu og verða sýnd um þrjátíu olíumálverk sem öll verða til sölu. Myndirnar eru allar unnar á þessu ári og því síðasta. Jóhanna Kristín er fædd í Reykjavík 1953. Á árunum 1972- 1976 stundaði hún nám við Mynd- lista- og handiðaskóla íslands og að loknu námi þar dvaldist hún við nám í Hollandi í fjögur ár. Þetta er þriðja einkasýning Jó- hönnu, en auk þess hefur hún tek- ið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Sýningin stendur yfir til 20. maí nk. Hún verður opin virka daga frá kl. 10—18, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14—18. Lokað verður á mánudögum. Búnaðarbanki íslands: Guðmundur * Arnason ráð- inn aðstoðar- bankastjóri BANKARÁÐ Búnaðarbanka íslands ákvað á fundi sínum 30. aprfl sl. að ráða Guðmund Árnason aðalbókara aðstoðarbankastjóra við bankann. Var sú ákvörðun einróma. Guðmundur Árnason er fæddur 14. mars 1916. Hann hóf störf í sparisjóðsdeild bankans í apríl 1958. Hann varð aðalbókari 1. janúar 1974. Guðmundur Árnason Firmakeppni Fáks Hin árlega firmakeppni Hestamannafélagsins Fáks verður haldin á skeiðvelli Fáks á Víðivöllum laugardaginn 5. maí klukkan 14. Keppt verður í unglingaflokki, kvennaflokki og karlaflokki. Búast má við að um spennandi keppni verði að ræða. íslenzkir karimenn er ekki kominn tími til aö viö tileinkum okkur frjálslegri klæðaburð. Konur hafa haft slík forréttindi á þessum sviöum aö eindæmum sætir. Hristum nú af okkur okiö og klæöumst t.d. léttum þægilegum samfestingum. Viö höfum látið hanna nokkur sniö af samfestingum fyrir herra á öllum aldri. Þegar þú hefur einu sinni farið í þessa þægilegu flík skilur þú hvaö frjálslegur klæðnaður er. Umboösmenn okkar úti á landi eru: Í Reykjavfk: Austurstræti 22 — Laugavegi 20 — Laugavegi 66 — Glæsibæ. Úti á landi: Epliö Isafiröi — Eyjabær Vestmannaeyjum — Fataval Keflavík — Alfhóll Siglufiröi — Nína Akranesi — Ram Husavík — Bakhúsiö Hafnarfiröi — Austurbær Reyöarfiröi — Kaupfél. Rangæinga Hvolsvelli — Sparta Sauðárkróki — Skógar Egilsstööum — fsbjörninn Borgarnesi — Lindln Selfossi — Patróna Patreksfiröi — Báran Grindavik — Þórshamar Stykkishólmi — Hornabær Höfn Hornafiröi — Nesbær Neskaupstaö — Verzlunin Noröurfell Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.