Morgunblaðið - 04.05.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1984
13
Elín S. Óladóttir og Kristján Kristjánsson.
„Handbók brunaeftirlits-
mannsins“ dreift
í grunnskóla Rvíkur
UM ÞESSAR mundir er verið að
dreifa bæklingi um eldvarnarmál til
allra barna á aldrinum 9—11 ára í
grunnskólum Reykjavíkur. Bækling-
ur þessi, sem nefnist „Handbók
brunaeftirlitsmannsins", er gefin út
af JC Reykjavík með styrk frá
nokkrum fyrirtækjum og er þeirra
getið í bæklingnum, segir í frétt frá
JC Reykjavík.
í „Handbók brunaeftirlits-
mannsins" eru börnin hvött til
þess að gerast einskonar bruna-
eftirlitsmenn heimilisins í sam-
vinnu við foreldra sína. Þeim er
bent á hugsanlegar eldhættur í
hinum ýmsu herbergjum íbúðar
og hvernig skuli minnka eða eyða
þessum hættum. í bæklingnum er
einnig skýrt út hvernig bregðast
skuli við ef eldur brytist út í íbúð.
Það er eldvarnarnefnd JC
Reykjavíkur sem hefur tekið sam-
an bækling þennan og hefur hún
haft til hliðsjónar erlenda bækl-
inga um sama efni. Nefndin hefur
einnig annast allan undirbúning
að útgáfu þessari m.a. í samvinnu
við Prentrún hf. sem sá um upp-
setningu og prentun.
f eldvarnarnefnd JC Rvk. eiga
sæti Kristján Kristjánsson, form.,
Auður G. Kristjánsdóttir, Elín S.
Óladóttir, Guðmundur Jónsson og
Yngvi Högnason.
„Handbókinni" er dreift af
kennurum grunnskólanna í
HANDBOK
BRUNAEFnRLITS-
MANNSINS
Reykjavík, með samþykki
Fræðsluráðs Reykjavíkur og var
mælst til þess að þeir, þ.e. kennar-
arnir, fjölluðu um eldvarnarmál í
heimahúsum við nemendurna í
eina klukkustund í sambandi við
útkomu bæklingsins.
Philips er stærsti sjónvarpstækjaframleiðandi í Evrópu. Pað er því óhætt að treysta framleiðslunni,
hún er 1. flokks og litirnir eru svo eðlilegir að það er eins og þú sért á staðnum.
Breyttar reglur um afnotagjöld, þar sem aðeins skal greiða af einu tæki á hverju heimili,
og stóraukin videó- og tölvuvæðing heimila kalla á fleiri sjónvörp, - nýjar gerðir.
Við eigum lítil tæki og stór, með og án fjarstýringar, stereó og mónó, fyrir 220 volt og rafhlöður,
frá 8 upp í 90 rása og þannig má áfram telja.
Við erum sveigjanlegir í samningum!
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655
20" standard
Verð kr. 24.480.- stgr.
16" standard
Verð kr. 21.390.- stgr
16" fjarstýrt, stereó
Verð kr. 44.950.- stgr.
14" standard
Verð kr.19.900.-stgr
- stgr.