Morgunblaðið - 04.05.1984, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖ3TUDAGUR 4. MAl 1984
19
Dregið í
spurninga-
leik ESSO
YFIR 16 þúsund manns tóku þátt f
spurningaleik ESSO á AUTO ’84.
Dregið var úr réttum úrlausnum að
viðstöddum Þorkeli Gíslasyni, borg-
arfógeta, og er myndin tekin þegar
Soffía Jóhannsdóttir dregur úr rétt-
um úrlausnum. Hjá henni standa
Þorsteinn Þorsteinsson og Ármann
Eiríksson frá Olíufélaginu hf.
Þeir heppnu eru: 1. verðlaun, 3ja
vikna ferð fyrir tvo til Danmerkur
með Samvinnuferðum: Soffía
Guðmundsdóttir, Sólvallagötu 35,
Reykjavík. 2. verðlaun, 100 1 bens-
ínúttekt á bensínstöðvum ESSO:
Linda Björk Ólafsdóttir, Smára-
hvammi 1, Hafnarfirði. 3.-5.
verðlaun, 50 1 bensínúttekt á
bensínstöðvum ESSO: ólafur Ág-
ústsson, Hjaltabakka 18, Reykja-
vík; Hjörtur Ásgeirsson, Dalbergi,
Djúpavogi; Angelíka Guðmunds-
dóttir, Selbrekku 17, Kópavogi.
Auk þessara verðlauna áttu allir
þátttakendur kost á að fá 10% af-
sláttarkort sem gilti við kaup á
öllum vörum nema eldsneyti og
smurolíum á bensínstöðvum
ESSO um allt land til 31. apríl.
John Peterson
ÞAU MISTÖK urðu í Morgunblað-
inu í gær að með frétt um sam-
komur séra John Petersons frá
Kaliforníu birtist mynd af Krist-
jáni Elís Jónassyni, barítonsöngv-
ara, en hún átti að birtast með
frétt af tónleikum Kristjáns á
Akranesi og í Norræna húsinu.
Um leið og Mbl. biðst afsökunar á
þessum mistökum birtist hér með
mynd af John Peterson.
Minningar-
dagskrá í
Bæjarkirkju
Minningardagskrá verður í Bæj-
arkirkju næstkomandi sunnudag og
hefst hún klukkan 14. Minnst verð-
ur Björns Jakobssonar organista og
tónskálds frá Varmalæk. Dagskráin
er flutt vegna 90 ára afmælis Björns
heitins, sem var organisti í Bæjar-
kirkju í 65 ár og annaðist auk þess
organistastörf við fjölda kirkna í
héraðinu. Öll lögin, sem flutt verða,
eru eftir Björn.
Flytjendur verða blandaður kór
úr sveitum Borgarfjarðarhéraðs
ásamt söngstjórunum Bjarna
Guðráðssyni, Ólafi Guðmundssyni
og Pétri Jónssyni. Einsöngvari
verður Gísli Þorsteinsson og
pianóundirleik annast Sverrir
Guðmundsson. Að dagskrá lokinni
verður boðið til kaffiveitinga í fé-
lagsheimilinu Brún.
JK*Y9miÞIaMfe
Meisokibkid á hverjum degi!
Opið hús hjá Líffræði-
stofnun Háskólans
f TILEFNI af 10 ára afmæli Líffræði-
stofnunar háskólans efnir stofnunin til
kynningar á starfsemi sinni nk. sunnu-
dag, 6. maí. Húsakynni stofnunarinnar
að Grensásvegi 12 og 11 verða opin frá
kl. 14—19 og munu kennarar og nem-
endur veita gestum leiðsögn.
Fluttir verða fjórir stuttir fyrir-
lestrar um rannsóknir sem unnið er
að á stofnuninni. Fyrirlestrarnir
hefjast kl. 14.30. Dr. Guðni Alfreðs-
son dósent og dr. Jakob K. Krist-
jánsson fjalla um liftækni á fslandi,
dr. Einar Árnason dósent um hlut-
leysiskenningu í þróunarfræði, dr.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir um vist-
fræði Þjórsárvera og dr. Gísli Már
Gíslason um vistfræði Mývatns og
Laxár.
Kl. 17 verður svo sýnd ný kvik-
mynd um Mývatn sem Magnús
Magnússon hefur gert í samvinni'
við Líffræðistofnun.
Tónleikar í
Stykkishólmi
Stvkkisholmi, 3. maí.
KIRKJUKÓR Stykkishólms og
Lionskórinn hafa starfað vel í vetur.
Nú efna þeir til sameiginlegra tón-
leika í félagsheimilinu annað kvöld,
föstudagskvöld, kiukkan 21.
Stjórnendur eru Jóhanna Guð-
mundsdóttir og Daði Þór Einarsson.
— Árni
Nytt Lotus Discret
5 mm é þykktina, en hefur samt alla sömu eiginleika og þykkari bindi
1 ‘
"Vl
x * r
Gamla reglan var þessi:
Þykkara bindi = aukið öryggi
+ aukin óþægindi. En ekki lengur.
Það er samt ótrúlegt, að 5 mm
bindi geti veriö sambærilegt viö
venjulegt 15 mm bindi.
Engu að siöur er það staðreynd,
að Lotus discret gerir fullkomlega
sama gagn og bindi af gömlu gerö-
inni.
Svarió er að finna í sérstakri
efnasamsetningu bindisins, sem
hefur þann eiginleika, aó draga i
sig 20 falda þyngd sina af vökva,
— og þlasthúðuð bakhlið eykur
enn á öryggiö. Yfirborðið er úr
nýju, finofnu og mjúku trefjalagi,
sem heldur efsta lagi bindisins
ótrúlega þurru, og gerir það mun
þægilegra en ella.
2" (rntii
lotus II!
Jtnnr/
20'
extradúnne
’ BiXktéu
ultra sottili