Morgunblaðið - 04.05.1984, Qupperneq 31
, ^ORqUNBlAÐip, FÓSTUDAGUR 4. MAÍ 1984
Æ.
• Lárus er undir smásjánni hjá belgísku liði.
Belgískt lið býóur
betur en Uerdingen
— spilar Lárus Guðmundsson áfram í Belgíu?
„ÞAÐ SEM gerst hefur í mínum
málum varðandi félagaskiptin er
það að í gærkvðldi klukkan 20.00
setti belgískt 1. deildarliö sig í
samband við mig og lýsti miklum
áhuga á aö fá mig. Félagið, sem
ég get ekki nafngreint aö svo
stöddu, var þá búiö að ræöa viö
forseta og stjórn Waterschei og
bjóöa félaginu hærri upphæö en
Uerdingen.
Staöan er því núna sú að for-
ráöamenn Waterschei eru aö
hugsa sinn gang og ég líka. Þaö
kom mér mjög á óvart aö þetta
belgíska liö skildi gera Waterschei
tilboö. A því átti ég ekki von. Ég
mun ræöa þetta allt ítarlega viö
stjórn félagsins og hugsa mig vel
um áöur en ég ákveö hvaö ég geri.
Þaö er svo ótal margt sem spilar
inn í svona samninga. Peningamál,
bónusgreiöslur, húsnæöi og margt
fleira," sagöi Lárus Guðmundsson
viö Mbl. í gær er blaðið innti hann
eftir því hvort hann væri búinn að
gera upp viö sig til hvaöa félags
hann færi.
Lárus sagöi aö ekki væri ólíklegt
aö Uerdingen myndi núna bjóöa
hærri upphæö og ef Waterschei
tæki henni þá gæti vel fariö svo aö
hann myndi skrifa undir samning
við liöiö á mánudaginn. En ef belg-
íska liöiö myndi bjóöa betur þá
myndi sjálfsagt vera pressa á sig
frá Waterschei aö gera samning
við þaö lið og vera áfram í Belgíu.
Eins og fram kom þá vill Lárus
ekki greina frá því hvaöa liö í
Belgíu er á eftir honum. Máliö er á
viökvæmu stigi og ekkert má
spyrjast út. En Mbl. rennir í grun
aö þaö sé eitthvert af eftirtöldum
liðum: Beveren, Club Brúgge, And-
erlecht eöa Standard. En þaö á
eftir aö koma í Ijós um helgina.
— ÞR
TBR
MEISTARAMÓT TBR í tvíliöa- og
tvenndarleik í badminton verður
haldiö í TBR-húsinu viö Gnoöar-
vog sunnudaginn 6. maí nk. kl.
14.00.
Keppt veröur í Meistaraflokki,
A-flokki og B-flokki karla og
kvenna, ef næg þátttaka fæst.
Þátttökugjald er kr. 200 pr.
mann í hvora grein.
Þátttökutilkynningar skulu ber-
ast til TBR í síöasta lagi föstudag-
inn 4. maí nk.
Háskólinn
sigraði
Framhaldsksólamót Borötenn-
issambands fslands fór fram ný-
verió. Eftir spennandi keppni
léku loks til úrslita A-lið Háskól-
ans og A-lið lönskólans í Reykja-
vík, sem lauk meö sigri A-liös Hó-
skólans, 3—1. Fyrir hönd Háskól-
ans léku Gunnar Finnbjörnsson
og Guömundur Maríusson, en
fyrir hönd Iðnskólans léku Bjarni
Kristjánsson og Gunnar Birkis-
son.
Um þriöja sætiö léku síöan B-liö
Háskólans og A-liö Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti, sem lauk meö sigri
B-liðs Háskólans, 3—2. Fyrir hönd
Háskólans léku Gylfi Pálsson og
Albricht Ehemann, en fyrir hönd
Fjölbrautaskólans Kristinn M.
Emilsson og Óskar Ólafsson.
MÍ í 25
km hlaupi
íslandsmeistaramótið í 25 kíló-
metra götuhiaupi veröur haldið
næstkomandi sunnudag, 6. maí,
og hefst hlaupið á Laugardals-
velli klukkan 10 fyrir hádegi.
Hlaupinu lýkur þar einnig eftir að
hlaupnir hafa veriö þrír hringir í
borginni austanveróri. öllum er
heimil þátttaka í hlaupinu og fer
skráning og greiösla þótttöku-
gjalds fram á staönum aö morgni
keppnisdags.
SVARIÐ
Fjárfestingahandbókin svarar ótal
spurningum einstaklinga og fyrirtækja um
☆ Hagkvæmni og arðsemi fjárfestinga
☆ Ávöxtun sparifjár
☆ Möguleika í veröbréfaviöskiptum
☆ Skattameðhöndlun
Bók sem ALLIR geta haft gagn af.
FJÁRFESTINGAHANDBÓKIN ER
BÓK SEM ÞÚ NOTAR
Fjárfestingarfélag íslands h/f.
...á fjórum síðum í Lesbók Morgunblaðsins á morgun