Morgunblaðið - 05.05.1984, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. MAl 1984
7—8 ára
drengur
á hjóli
kringum
hann
— segir Snorri
Styrkársson
„ÉG VAR búinn að heyra allmarga
hvelli fyrir utan og taldi víst art þar
væru á ferðinni krakkar með „kín-
verja“. Svo sá ég hylki skoppa eftir
götunni — og þá þóttist ég alveg
viss um að þetta væru bara krakkar
að sprengja,“ sagði Snorri Styrkárs-
son, sem býr á Vesturgötu 53, þegar
blaðamaður Mbl. hitti hann að máli
þar nærri í gærkvöld um það leyti
sem byssumaðurinn var handtek-
inn. Bíll Snorra, sem stóð þar fyrir
utan, varð fyrir skoti og var illa
farinn við aftara hemlaljós.
„Skyndilega sá ég hvar maður
kom fyrir gluggann hjá mér, sem
veit út að Vesturgötunni. Hann
skimaði i kringum sig og skaut
upp í loftið, að minnsta kosti
tveimur skotum. Ég held að þeim
hafði báðum verið beint að lög-
reglubíl, sem var við hornið á
Bræðraborgarstíg og Vesturgötu.
Þegar lögreglubíllinn ók í burtu
skaut maðurinn einu skoti á hús-
horn en síðan gekk hann allgreitt
niður austur Vesturgötuna og
niður Bakkastíginn. Á leiðinni
skaut hann mörgum skotum upp f
loftið en fór beint um borð í bát-
inn. Þaðan skaut hann svo mörg-
um skotum upp eftir Bakkastígn-
um, áreiðanlega á annan tug, og
höglunum rigndi yfir hús og bíla,
sem voru þarna, ýmist kyrrstæðir
eða á ferð.“
Snorri sagðist ekki hafa verið
hræddur. „Eg held að menn hafi
frekar verið hissa en hræddir
meðan á þessu stóð,“ sagði hann.
„Á meðan hann var hérna fyrir
utan hjá mér sá ég til dæmis barn
á hjóli í kringum hann — 7—8
ára strák, sem var greinilega að
furða sig á því hvað væri á seyði.
Það var augljóst af því, þótti mér,
að maðurinn ætlaði engan að
drepa,“ sagði Snorri Styrkársson.
Mornunblaðiö/ Július
Þannig fór eitt haglaskotanna með bfl Snorra Styrkárssonar, þar sem hann var á stæði framan við Vesturgötu
53. Stúlkurnar halda á höglum sem voru á víð og dreif um allar götur í nágrenninu. Fáum mínútum áður en
skothríðin hófst voru þær að leik á götunni.
Trúði varla að hann
væri að skjóta á mig
— segir Ólafur Indridason, sjónarvottur
ÓLAFUR Indriðason var á leið
vestur Vesturgötuna í bfl sínum kl.
rúmlega 21 í gærkvöld þegar hann
sá mann koma að gatnamótum
Framnesvegar og Vesturgötu.
„Mér fannst eitthvað sérkennilegt
við manninn," sagði Ólafur í sam-
tali við blaðamann Mbl. í gær-
kvöld. „Ég sá að hann hélt á ein-
hverju og dró aðeins úr ferðinni á
beygjunni. Þá sá ég að þetta var
byssa og það skipti engum togum,
að hann lyfti byssunni, miðaði á
bflinn og hleypti af. Færið hefur
verið á að giska 30 metrar.“
Skotið kom aftarlega í bíl
Ólafs hægra megin og taldi hann
þar ellefu högl þegar skothríð-
inni linnti. „Ég held að hann hafi
ekki miðað á mig,“ sagði ólafur,
„en ég ætlaði ekkert að bíða eftir
að hann gerði það svo ég rykkti
af stað og kom mér í skjól. Það
vill svo vel til, að ég er með bíla-
síma og hringdi strax í lögregl-
una. Tiltölulega skömmu síðar
voru komnir lögreglubílar á
staðinn, þannig að einhverjir
aðrir hafa verið búnir að láta
vita.
Ég held að ég hafi ekki orðið
hræddur — miklu frekar að ég
hafi orðið vondur — hugsaði
með mér: Hann er þó ekki að
skjóta á mig? Ég trúði þessu
varla ...“ sagði Ólafur Indriða-
son.
Morgunblaðið/ Júlíus
*;inu skoti hleypti byssumaðurinn um kjallaradyrnar á horni Vesturgötu
>g Framnesvegar. Fyrir innan er stigi sem var einnig illa út leikinn.
Skotmaður-
inn færður
til blóðprufu
SKOTMAÐURINN sem
handtekinn var í gær-
kvöldi, var færður til
blóðprufu 1 slysadeild
Borgarspítalans þegar að
lokinni handtöku í gær-
kvöldi. Hann er liðlega
þrítugur skagamaður sem
hefur lítillega komið við
sögu lögreglunnar vegna
afbrota. Að blóðprufu lok-
inni var hann fluttur til
yfirheyrslna hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
Morgunblaðið/ Friðþjófur
Fjalakötturinn:
Áhugafólk vill standa að
yiðgerð og endurbyggingu
— segir Hulda Valtýsdóttir, sem greiddi atkvæði
gegn niðurrifi á borgarstjórnarfundi
HIILDA Valtýsdóttir, var eini borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem
grciddi atkvæði gegn staðfestingu á samþykkt byggingarnefndar um
niðurrif Fjalakattarins á fundi borgarstjómar Reykjavíkur í fyrrakvöldi. í
frétt Morgunblaðsins í gær var ranglega sagt, að borgarfulltrúinn hefði
greitt atkvæði með staðfestingunni og er beðist velvirðingar á þeim
mistökum.
Morgunblaðið spurði Huldu
Valtýsdóttur í gær, hvað hefði
valdið því, að hún hefði ein úr
hópi borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins greitt atkvæði gegn
niðurrifi Fjalakattarins. Hún
kvaðst hafa greitt atkvæði í
samræmi við samþykkt um-
hverfismálaráðs frá 2. nóvember
sl., þar sem segir, að umhverf-
ismálaráð geti ekki mælt með
því að rífa húsið Aðalstræti 8 og
bendir á þá fjölmörgu þætti
menningar- og byggingarsögu-
legs eðlis, sem húsinu tengjast
og vísar til skýrslu og gagna
borgarminjavarðar um sögu
hússins.
Þá taldi umhverfismálaráð
nauðsynlegt að friða húsið eins
og þjóðminjavörður hefur einnig
bent á, endurnýja og koma á fót
starfsemi í húsinu, sem hæfir
sögu þess. „Ég hef ekki breytt
um skoðun frá því að þessi sam-
þykkt var gerð,“ sagði Hulda
Valtýsdóttir.
„Það er ljóst nú, að borgin
mun ekki leysa til sín húsið eða
hafa frumkvæði um endurbygg-
ingu þess. Hins vegar hafa verið
sett á stofn samtök áhugamanna
um þetta hús, fólks, sem vill
vinna að verndun þess og endur-
byggingu. Ég trúi ekki öðru en
að eigandi hússins taki upp við-
ræður um þetta við þennan hóp
sem er reiðubúinn til að standa
að viðgerð og endurbyggingu,"
sagði Hulda Valtýsdóttir.
Albert Guðmundsson, fjármáiaráðherra:
Fridriki liggur
greinilega mikið á
„ÞESSI ORÐ varaformannsins hljóta aft þýfta þaft aft hann vilji búa til stóra
mús, en þjóðfélagift þolir þaft ekki,“ sagði Albert Guðmundsson, fjármála-
ráftherra, er blm. Mbl. spurði hann í gær hver hans skoftun væri á þeim
orftum Friftriks Sophussonar, varaformanns Sjálfstæftisriokksins, sem hann
lét falla á fundi Sjálfstæftisfélagsins á Seltjarnarnesi í fyrrakvöld, þegar
hann sagfti að efnahagsráftstafanir ríkisstjórnarinnar væru „lítil mús“, og aft
enn vantafti hátt í milljarð til þess að leysa vandann.
„Friðrik hlýtur að vera með Albert, ert þú þessi yfirlýs-
sjálfan sig þarna í huga, honum ingaglaði ráðherra, sem Friðrik
liggur greinilega mjög mikið á,“
svaraði Albert þegar hann var
spurður álits á orðum Friðriks
Sophussonar um að endurskoða
þyrfti hverjir sætu í ráðherrastól-
um fyrir flokkinn, annars myndi
flokkurinn leysast upp í óskiljan-
legar öreindir.
Fjármálaráðherra sagði um þau
orð Friðriks að gífurleg hætta
steðjaði að þjóðarbúinu sökum
aukinnar erlendrar lántöku, að
það væri eflaust rétt athugað hjá
varaformanninum, en á það yrði
einnig að líta, að það væru ekki
margar leiðir sem blöstu við í því
ástandi sem nú ríkti. „Þingflokk-
urinn hefur valið þessa leið, og við
verðum að standa saman um
hana,“ sagði fjármálaráðherra.
telur að Þjóðhagsstofnun sé að
hjálpa með því að reikna erlent
skuldahlutfall niður fyrir 60% af
þjóðarframleiðslu og beitir við það
að sögn Friðriks „óbúmannslegum
reikningum"?
„Ég tek þessi ummæli ekki til
mín,“ sagði Albert Guðmundsson,
fjármálaráðherra.
'O
INNLENT