Morgunblaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 23
MORGUNfeLVt»ÍÐ/LAl/GAfebA6í)R'5rMÍ'Í9á4’'
23*
Merki Samstöðu haldið á loft
Fylgismenn Samstöðu, samtaka hinna frjálsu verkalýðsfélaga í Póllandi, gera V-merki meö fingrunum á fundi
samtakanna á fimmtudag. Eins og sjá má voru mörg þúsund manns viðstaddir þennan útifund.
Grænland:
Greiðsluþrot í
fiskvinnslunni
Kaupmannahöfn, 4. maí. Frá NieLs Jörgen Bruun, (ira*nlandsfré(tarilara Mbl.
STÆRSTA fiskvinnslufyrirtaeki í
Grænlandi, fiskvinnslan í Nuuk eða
Godtháb, er komið í greiðsluþrot. Er
ástaeðan mikið fiskileysi það sem af
er árinu. Tapið fyrstu þrjá mánuðina
er á tíundu milljón ísl. kr. en fyrir
skuldaði fyrirtækið 36 millj. ísl. kr.
Lánardrottinn fiskvinnslunnar í
Nuuk er Grænlandsverslunin
danska eða með öðrum orðum
Afganistan:
Rússar sakaðir um
að beita eiturgasi
Peshawar, Pakistan. 4. maí. AP.
TALSMAÐUR frelsissveitanna í
Afganistan ásakaði í dag Rússa
um að beita eiturgasi í sókn
þeirra nú í Pansjerdal, en þar
hefur verið eitt öflugasta vígi
frelsissveitanna til þessa. Sagði
Masood Khalili, talsmaður
Jamiat-I-lslami, einnar helztu
baráttu fylkingar frelsissveit-
anna í Pansjerdal, að beiting eit-
urvopna væri nýr þáttur í hern-
aðaraðgerðum Sovétmanna í
landinu.
Sex fyrri sóknaraðgerðir
Sovétmanna til þess að ná
dalnum á sitt vald frá frels-
issveitunum, hafa mistekizt
með öllu. Hernaðaraðgerðir
þeirra nú eru þær mestu frá
upphafi á hendur frelsissveit-
unum. Útvarp stjórnarinnar í
Kabúl, sem Rússar styðja,
sagði í dag, að 35 uppreisn-
armenn hefðu verið drepnir og
mikill fjöldi verið tekinn til
fanga í áköfum bardögum í
norðurhluta landsins.
Rússar taka undir
gagnrýni á UNESCO
Moskvu, 4. maí. AP.
SOVÉZKI sendiherrann, Yuri Khilchevsky, gagnrýndi í dag, harkalega þá
ákvörðun Bandaríkjamanna að hætta þátttöku í UNESCO, Xlenningar og
vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna. Hann sagði hins vegar, að sumt af
þeirri gagnrýni, sem fram hefði komið á stofnunina, ætti rétt á sér og ætti
skilið „vandlega athugun“.
„Gagnrýni hefur komið fram á
skipulag UNESCO, fjárhagsáætl-
un stofnunarinnar, framkvæmda-
stjórn hennar og mannaráðn-
ingar," sagði Khilchevsky. „Þetta
þarf allt að athuga vandlega.
Draga ber úr tilgangslausum út-
danska ríkið. Hefur fyrirtækið
farið fram á önnur og betri kjör á
skuldagreiðslum en Tom Hoyem,
Grænlandsmálaráðherra, hefur
hafnað þeirri ósk og segir fyrir-
tækið ekki geta sýnt fram á, að
það eigi sér nokkurn rekstrar-
grundvöll. Heimastjórnin græn-
lenska hefur einnig neitað fyrir-
tækinu um fjárhagsaðstoð. Fisk-
vinnslan verður rekin eitthvað
áfram eða meðan verið er að
kanna alla möguleika.
Fiskvinnslan í Nuuk getur unn-
ið úr 50 tonnum af þorski á dag og
20 tonnum af rækju. Á fyrstu
þremur mánuðum ársins var hins
vegar allur fiskur, sem húsinu
barst, aðeins 200 tonn.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Berlín
Briissel
Buenos Aires
Chicago
Dublin
Feneyjar
Frankturt
Gent
Havana
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhannesarborg
Kairó
Kaupmannahöfn
Las Palmas
Limsabon
London
Los Angeles
Malaga
Mallorca
Mexikóborg
Miami
Montreal
Moskva
New York
Ostó
Parfs
Peking
Perth
Reykjavik
Rfó de Janeiró
San Franciaco
Seoul
Stokkhólmur
Sydney
Tókýó
Vancouver
Vinarborg
Varajá
Þórshöfn
3 skýjaó
15 skýjaó
2 heiðskírt
18 lóttskýjaó
20 skýjaó
18 skýjaó
25 skýjað
1 skýjaó
13 heióskírt
vantar
vantar
12 skýjaó
31 heióakirt
8 heióskirt
26 skýjað
22 skýjaó
22 heióskfrt
28 heiðskírt
17 skýjaó
22 skýjaó
19 heióskirt
15 skýjað
35 heióskírt
20 lóHskýjaó
19 skýjaó
30 heióskfrt
29 skýjeó
10 skýjaó
20 heióskfrt
14 skýjað
12 skýjaó
18 skýjaó
22 heióskirt
22 hetóskfrt
2 léttskýjaó
30 skýjaó
24 skýjaó
17 heióskirt
22 heióskirt
17 heióskirt
22 heióskirt
21 skýjaó
13 skýjaó
22 heióskírt
23 skýjaó
7 skýjað
gjöldum og styrkja þannig nauð-
synleg áform stofnunarinnar."
Sovézki sendiherrann efndi til
fundar með fréttamönnum til þess
að útskýra afstöðu sína, áður en
framkvæmdanefnd UNESCO
kemur saman í næstu viku. Það
verður fyrsti fundur fram-
kvæmdanefndarinnar, síðan
Bandarikjamenn lýstu yfir þeirri
ákvörðun sinni í desember sl. að
segja sig úr UNESCO.
Til þessa hafa Bandaríkjamenn
lagt fram 25 % af rekstrarfé UN-
ESCO en Sovétríkin 12 %.
ísraelar
hafna
beiðni
Arafats
Jenisak'm. 4. maí. AP.
ÍSRAELAR höfnuðu í dag ósk Yassers
Arafat leiðtoga PLO um beinar samn-
ingaviðræður Israela og PLO um fram-
tíð vesturbakkans.
Israelsur embættismaður kvað þá
skoðun stjórnar sinnar, að PLO
væru samtök hryðjuverkamanna,
óbreytta og því yrði ekki um neinar
viðræður við samtökin að ræða.
„Israelar eru reiðubúnir til samn-
ingaviðræðna við hvaða ríki Mið-
austurlanda sem er, en semja ekki
við hryðjuverkasamtök, þ.á m. Ara-
fat,“ sagði embættismaðurinn, er
hann kynnti viðbrögð israelskra
stjórnvalda við fyrstu opinberu
beiðni Arafats um beinar viðræður
við Israela um vesturbakkann.
ERLENT
Sænsk stjórnarskýrsla:
Kafbátar við Karlskrona
obbann af febrúarmánuði
Stokkhólmi, 4. maí. Frá Krik Liden fréttaritara
Oþekktir kafbátar heldu til á hernað-
arlega mikilvægum svæðum við
Kariskrona stóran hluta febrúarmán-
aðar, að því er fram kemur í skýrslu,
sem Lennart Ljung ofursti, yörmaður
sænska heraflans, samdi fyrir ríkis-
stjórnina um kafbátaferðirnar.
í skýrslunni er skuldinni ekki
skellt á neitt ríki og ekki er heldur
sagt hverrar tegundar eða gerðar
Mbl.
neðansjávarfarkostirnir voru.
Hins vegar er staðfest í skýrslunni
að kafarar hafi margoft sést á
eynni Almön fyrir utan Karls-
krona. Einnig að sést hafi til kaf-
ara við Álandseyjar í september sl.
Sagt er að ferðir froskmannanna
sanni betur en annað ferðir
ókunnra kafbáta í sænskri land-
helgi í febrúar sl.
Segir í skýrslu Ljungs að a.m.k.
tíu sinnum hafi fengist áreiðanleg-
ar vísbendingar um ferðir óboð-
inna á hinu hernaðarlega mikil-
væga svæði fyrir utan Karlskrona
í febrúar, og hafi þar verið á ferð-
inni venjulegir kafbátar, dverg-
kafbátar, kafarafarkostir og
froskmenn.
Jafnframt kemur fram að botn-
merki utan við Karlskrona séu
sömu tegundar og þau sem fundust
í Hársfirði 1982 er vart varð við
kafbátaferðir þar um slóðir. Óljóst
er þó hvort botnmerkin við
Karlskrona séu frá því 1 febrúar
eða fyrr.
í framhaldi af skýrslunni lagði
Hægriflokkurinn til að áfram yrði
unnið að rannsókn á kafbátaferð-
unum og sett á laggirnar ný þing-
nefnd í þvi skyni.
.á fjórum síðum í Lesbók Morgunblaðsins í dag!