Morgunblaðið - 05.05.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984
5
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar og Pólýfónkórsins:
Fjórir ítalskir einsöngvarar
koma hingað vegna tónleikanna
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands heldur kórtónleika í Háskólabíói
rimmtudaginn 10. maí. Á tónleikunum, sem eru aukatónleikar, verða
flytjendur með hljómsveitinni Pólýfónkórinn, auk kórs sem sérstaklega
hefur verið kallaður til vegna tónleikanna og er skipaður gömlum kórfé-
lögum Pólýfónkórsins og ýmsu söngfólki öðru. I'á koma gagngert hingað
til lands vegna tónleikanna fjórir ítalskir einsöngvarar, Denia Mazzola,
sópran, sem söng titilhlutverkið í Lucia di Lammemoor hér í mars sl„
Claudia Clarich, alt, Paolo Barbacini, tenór, sem m.a. hefur sungið á þeim
fræga stað La Scala, og Carlo de Bortoli, bassi.
Stjórnandi á tónleikunum kór auk Pólýfónkórsins fyrir
verður stofnandi og stjórnandi
Pólýfónkórsins, Ingólfur Guð-
brandsson, og er þetta í fyrsta
sinn sem hann stjórnar Sinfón-
íuhljómsveitinni. Á efnisskránni
er „Ave verurn" eftir W.A. Moz-
art, „Te deum“ eftir G. Verdi og
„Stabat Mater“ eftir G. Rossini.
Verk Verdis, Te deum, hefur
ekki verið flutt hérlendis áður.
Að sögn Ingólfs Guðbrandssonar
þarf tvo kóra til að flytja það og
því var ákveðið að kalla saman
flutningin. Verkið er samið fyrir
stóra hljómsveit og má áætla að
um 220 manns verði á sviðinu í
Háskólabíói á meðan flutningur-
inn stendur yfir, 140 kórsöngvar-
ar og 70 manna hljómsveit, auk
einsöngvaranna og stjórnanda.
Hin verkin tvö hafa áður verið
flutt hér, Stabat Mater árið
1951, en Ave verum er nú flutt í
fyrsta sinn með hljómsveit. Ein-
söngvararnir fjórir koma allir
frá Milanó, utan Carlo de Bort-
oli, sem kemur frá Torino. „Þessi
músík er frá rómantíska tíma-
bilinu og flutningur hennar því
nýr fyrir meðlimi Pólýfónkórs-
ins, sem þekktastur er fyrir að
fást við flutning barrokktón-
listar,“ sagði Ingólfur Guð-
brandsson á blm.fundi sem hald-
inn var vegna tónleikanna. „í
raun og veru er þarna um að
ræða hreina óperutónlist, þrátt
fyrir guðleg viðfangsefni verk-
anna og þessi tónlist krefst sér-
staks söngstíls. Því er við hæfi
að kalla til ítalska einsöngvara."
Kristján Jóhannsson hafði milli-
göngu um komu ítölsku ein-
söngvaranna hingað til lands, en
í ráði var að Kristján myndi
syngja tenórinn á tónleikunum.
Það reyndist ekki mögulegt
vegna samnings hans í Bret-
landi.
Þrír af aðstandendum tónleikanna. F.v. Sigurður Björnsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar,
Ingólfur Guðbrandsson, stjórnandi Pólýfónkórsins, sem nú stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni í fyrsta sinn og
Friðrik Eiríksson, formaður Pólýfónkórsins. Ljósm. Mbi. Priðþjófur.
Gallerí Vesturgata 17:
Verk Jóhannesar
Jóhannessonar
í GALLERÍ Vesturgötu 17 opnar í
dag sýning á verkum listamannsins
Jóhannesar Jóhannessonar. Á sýn-
ingunni, sem stendur til 27. maí, eru
20 verk, sem eru öll til sölu, utan
tveggja í einkaeign.
Sýning Jóhannesar í Gallerí
Vesturgötu 17 er 14. sérsýning
hans, en Jóhannes sýndi verk sín í
fyrsta sinn árið 1946 í Lista-
mannaskálanum. Þá hafa verk
eftir hann verið sýnd á samsýn-
ingum í um 13 löndum og gripi úr
silfri og gulli hefur Jóhannes átt á
sýningum i Þýskalandi, Frakk-
landi og hér heima. Verk eftir Jó-
hannes eru í eigu listasafna innan
lands sem utan.
Jóhannes Jóhannesson var
fæddur í Reykjavík 1921 og lauk
hann sveinsprófi í gull-og silf-
ursmíði 1945. Framhaldsnám
stundaði hann síðan fram til árs-
ins 1961, í Bandaríkjunum, á ít-
alíu, í Frakklandi, Rúmeníu,
Danmörku og Kína.
Seldi í Cuxhaven
ARINBJÖRN RE seldi afla sinn, valda erfiðleikum við geymslu,
202 lestir, mest karfa, í Cuxhaven hafa lækkað markaðsverð að und-
í gær. Heildarverð var 2.973.900 anförnu. Fyrirhugað er að eitt
krónur, meðalverð 14,7*. Mikið skip selji afla sinn í Þýzkalandi i
framboð á fiski og hitar, sem næstu viku.
REGATA LOKSINS TH AFGREHDSLU
Á bílasýníngunni AUTO ’84 í síöasta mánuöi kynntum viö REGATA, nýjasta
gœöinginn í FIAT FJÖLSKYLDUNNI. REGATA vakti mikla athygli á sýningunni
og nú vorum viö aö fá fyrstu sendinguna til landsins.
REGATA er íramhjóladriíinn og búinn öllum
aksturseiginleikum FTAT gœðinganna, léttur í
stýri, rásíastur, liggur vel og er sérlega
viðbragðsíljótur.
REGATA er rúmgóður og íarangursrými er
ótrúlega mikið.
Sparneytnin er þó líklega stœrsti
kosturinn viö þennan glœsilega bíl,
hann eyðir allt niöur í 5.4 lítra á
hundraöiö, sem er hreint ótrúlegt íyrir
bíl í þessum stœröarílokki.
KYNNINGARVERÐ - OG KJOR
Á þessari íyrstu sendingu bjóöum viö sérstakt kynningarverð og reynum
aö haía hátíðaryíirbragö á kjömnum. Útbomn í REGATA getur veriö allt
oían í 100.000,- krónur og veröiö er hreint ótrúlegt íyrir rúmgóöan,
framhjóladriíinn glœsivagn.
Sex ára ryövarnarábyrgö
kr. 329.000.-
(gengi 2/5 '84)
WEGILL
r VILHJÁLMSSON HF.i
Smidjuvegi 4, Kópavogi. Simar 77200 - 77202.