Morgunblaðið - 05.05.1984, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 05.05.1984, Qupperneq 7
i C ^ *■ t * * n,TP> » n fj j t t rrr/'T ‘ T CTT fr j nct r,?f MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAl 1984 Mercedes Benz árg. 1973 Til sölu Bifreiðin er blásanseruð (mjög gott lakk), með aflheml- um, 6. cyl., 130 hestafla og 4ra gira beinsk. í gólfi. Verð 190 þús. Útb. 100—120 þús. afg. á 6 mán. Uppl. í símum 73737 og 20200. Lögfræði- skrifstofa Hef opnað lögfræðiskrifstofu að Suðurlandsbraut 6, Reykjavík. Viötalstími eftir hádegi. Skúli Bjarnason hdl. ELRIhf. arðaþjónusta Getum bætt við nokkr- um lóðarstandsetning- um í sumar. Björn Björnsson skrúö- garðyrkjumeistari. Jón Hákon Bjarnason skógræktartæknir. Uppl. í síma 15422. ísverksmiðjur kæli- og frystigámar 20 feta og 40 feta ísgámar. isframleiösla frá 2,7 upp í 10 tonn á sólarhring. Geymslurými frá 13 til 37 rúmmetrar af ís. Djúp- frystigámar 20 og 40 feta langir. Gerölr fyrir 30 stiga frost miöaö viö 30 stiga lofthita úti. Stuttur afgreiöslutími og góöir greiösluskilmálar. Vesturþýsk gæðavara Atlas hf Ármúla 7, sími 2675S, Reykjavík. Metsö/ublaó á hverjum degi! Nicaragua og 1. maí Myndin sem birt er hér að ofan á að sýna brottför Kúbuhermanna frá Angóla en þar hafa þeir barist í nafni heimskomm- únismans um árabil. I Staksteinum í dag er minnst á Kúbu í tilefni af Nicaraguaför ritstjóra Þjóðviljans, þá er einnig getið um Víetnama sem eins og Kúbumenn berjast víða um heim í nafni Kremlverja, Marx og Leníns. Loks er rætt lítillega um ályktunarorð 1. maí nefndar um utanrík- ismál. Nú er það Nicaragua Sé litið yfir þjóöviljann í sogulcgu Ijósi og þaö hvernig hann hefur skrifaö um þau lönd sem orðiö hafa heimskommúnisman- um aö bráö kemur í Ijós að í því efni hefur lítið breyst frá því að Stalín sat á há- um stalli bæöi í Moskvu og í blaðinu og beitti ofbeldi og hervaldi til aö sölsa undir sig hverja smáþjóð- ina á eftir annarri. þjóövilj- inn harmaði ekki ill örlög Rystrasaltsþjóðanna. Þvert á móti var innlimun þeirra í Sovétríkin blaöinu sér- stakt fagnaðarefni. I»jóö- viljinn harmaði ekki valda- töku kommúnista í hverju Austur-Evrópuríkinu á eftir öðru á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina. Ailt ann- að var upp á teningnum og riLstjórar Þjóðviljans fóru í langar boðsferðir til kommúnistaríkjanna og gátu varla fest lýsingar sín- ar á blað að þeim loknum vegna hrifningarskjálfta. Nú þykir þeim Þjóðvilja- mönnum að visu blaðinu fyrir bestu að hafa sem fæst orð um þetta allt sam- an og segja að auðvitað sjái þeir og hafi alltaf séð hverskyns kúgunaröfl ráði í Austur-Evrópu. I»egar ekki þóttf lengur henta að benda á komm- únistaríkin í Evrópu sem hinar björtu fyrirmyndir beindu Þjóðviljamenn sjónum sínum annað. I þann mund sem Fídel Castró var að innsigla yfir- stjóm Sovétmanna á Kúbu fór ritstjóri þjóðviljans þangað og skrifaði síðan lofgerðarrollu um þessa dýrlegu fyrirmynd allra sannra sósíalista og Al- þýðubandalagsins. Og þeg- ar kommúnistum í Norð- ur-Víetnam var brýnt að þeirri ftrru vteri haldið sem ha-st á loft að þeir væru að leggja grunninn aö eilifð- arríki friðar og sósíalisma fór ritstjóri Þjóðviljans þangað og söng þeim síðan Íof og dýrð. Með örlög allra þessara þjóða í huga og hin hörðu tök kommúnista á þeim hefði átt að fara hrollur um íbúa Nicaragua þá 17 daga fyrir skömmu sem Einar Karl Haraldsson, ritstjóri Þjóðviljans, ferðaöist um landið og safnaði efni í greinaflokk um ágæti sósí- alistanna og marxistanna sem nú fara með völd í Nicaragua með stuðningi Sovétmanna, Kúbumanna, Víctnama og austur- evrópskra kommúnista. Einar Karl vitnar í prest sem sagði: ,,Það er meira frelsi fyrir alla í Nicaragua en nokkurn tíma hefur ver- ið áður svo lengi sem menn blanda sér ekki með bein- um hætti í gagnbylting- una.“ Og í tilefni af þess- um orðum segir Þjóðvilja- ritstjórinn fagnandi: „Önn- ur getur niðurstaðan ekki verið af feröalagi um land- ið og upprifjun á sögu þjóð- arinnar." Og hvað felst í þessu „frelsi“ i Nicaragua? Að menn eru „frjálsir" að gera það í stjórnmálum sem þeir vilja svo framar- lega sem það er ekki í and- stöðu við stjóm sósíalista og kommúnista. Nlíkt stjórnarfar hefur um ára- tugaskeið verið helsta fagnaðarefni Þjóöviljans og er enn, nú í Nicaragua. Verkalýöur og varnir í 1. maí ávarpi fulltrúa- ráðs verkalýðsfélaganna í Keykjavík, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og lönnemasambands Is- lands var vikið að utanrík- is- og öryggismáhim með þeim hætti að ástæða er til að íhuga nánar. Þar sagði meðal annars að „íslensk verkalýðshreyfing" væri í andstööu við „hverskonar hernaöarbrölt og hernað- arbandalög í austri sem vestri", styddi „kröfuna um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd, cngar her- stöðvar verði hér á landi og að fsland standi utan hem- aðarbandalaga." Hér er vikið að málum sem alls ekki hafa vcrið rædd með þeim hætti inn- an „íslenskrar verka- lýðshreyfingar" að menn í 1. maí nefnd hafi umboö til að komast að þessari niðurstöðu þegar þeir telja þaö hæfa miöað við tísku- fvrirbæri í umra-ðunum um stríð og frið. læssar kröfur í I. maí ávarpinu era til merkis um það að í nefnd- inni sem samdi það hafi þeir aðilar orðið ofan á sem líta á hátíöisdag verkalýðsins sem flokks- baráttudag sinn, þeir menn sem urðu undir í vcrka- lýðshreyfingunni við gerð síðustu kjarasamninga. Enn halda þeir sem sé fast við minnihlutasjónarmiðin og að þessu sinni í afstöðu sinni til öryggis og sjálf- stæðis þjóðarinnar. Síðar í ávarpinu er álykt- að um ástandið í El Salva- dor þar sem ríkja „skelfi- legar hörmungar og kúgun sem alþýða manna þarf þar að búa við vegna ógnar- stjórnar í landinu". Jafn- framt er „minnt" á þær „hörmungar sem dunið hafa yfir Afganistan og það ógnarástand sem ríkir í skjóli risaveldis". Þegar þetta orðaval er skoðað hljóta lesendur að álykta sem svo að það sé í raun verra ástand í El Salvador en Afganistan enda er þaö tilgangurinn að koma því á framfæri að Bandaríkin séu ívið verra risaveldi en Sovétríkin. Miskunnarlaus hernaður Sovétmanna á hendur Afgönum er kallað- ur „skjól risaveldis" og hörmungarnar sem leitt hafa af borgarastyrjöldinni í El Salvador eru sagðar stafa af „ógnarstjórn" þar. Af þessu oröalagi mætti helst draga þá ályktun að I. maí nefndin vildi heldur vera í Afganistan en El Salvador þar sem menn fá þó að velja sér forseta t kosningum nú um helgina á meðan Afganir mega sæta einhverjum mestu árásum sovéska hersins | síöan í árslok 1979. Sýnum þennan glæsilega sumarbústaö að Kársnesbraut 128 alla daga kl. 2—6. Bústaðurinn er fullfrágenginn, með hús- gögnum og öllum innréttingum. Þú getur einnig pantað sér skoðunartíma þegar þér hentar með einu símtali. Opið um helgina. KR SUMARMUS Kristinn Ragnarsson, húsasmíðameistari, Kársnesbraut 128, símar 41077 og 44777, Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.