Morgunblaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984
11
Þessar 36 ára gömlu bifreiðir verða báðar á meðal sýningargripa. Sú til
vinstri er Land-Rover árg. 1948 og sú til hægri er VW-bjalla frá sama ári. Sú
gerð er framleidd enn í dag og ótrúlega lítið breytt. MorRunblaftið/KöE
fyrirtækisins samþykkti við það
tækifæri að vinna endurgjalds-
laust um þessa helgi. Sagði Finn-
bogi þá ákvörðun e.t.v. segja meira
en flest annað um hug starfsfóiks-
ins til fyrirtækisins. Starfsmenn
Heklu eru alls 115 og sá elsti er 86
ára, Óli M. ísaksson. Meðalaldur
starfsfólks Heklu er 36 ár og með-
alstarfsaldur þess hjá fyrirtækinu
er 9,6 ár.
Á sýningunni um helgina getur
m.a. að líta 5—6 stórvirkar vinnu-
vélar frá Caterpillar, auk þess sem
flestallar gerðir bíla, sem Hekla
hf. flytur inn og selur, verða sýnd-
ar. Þá verður sérstök sýning á
dieselvélum og ekki má gleyma
farartækjum eldri kynslóðar.
Bæði VW-bjalla, árg. 1948, og
Land-Rover sömu árgerðar verða
sýndir um helgina. Sömuleiðis
gömul dráttarvél af gerðinni John
Deere, sem enn er í notkun, og
gamalt Scorpion-vélhjól af Akra-
nesi. Auk alls þessa verða
skemmtiatriði og matvælakynn-
ingar báða dagana.
I tilefni þessara hátíðahalda
Heklu, sem Finnbogi nefndi svo,
hefur fuiltrúum frá British Ley-
land, Mitsubishi, Caterpillar og
Volkswagen verið boðið hingað til
lands, svo og nokkrum öðrum, alls
11 manns.
„Hugmyndin með þessu öllu
saman er að treysta enn frekar
böndin við starfsfólk okkar og
viðskiptavini," sagði Finnbogi.
Bætti hann því við, að viðskipta-
vinir Heklu hefðu að vonum verið
geysimargir á þessum 50 árum.
Sennilega hefðu 80-90% allra
bænda á íslandi einhverju sinni
skipt við Heklu. Ef ekki með jepp-
akaupum þá með kaupum á búvél-
um eða rafmagns- og heimilis-
tækjum.
„Happaregn“ Slysavarnafélags íslands:
1112 vinn-
ingar í boði
EINS og undanfarin ár efnir Slysavarnafélag íslands nú til happdrættis til
styrktar starfsemi sinni og verdur dregið um aðalvinninga í því 17. júní nk.
Aðalvinningar eru 10 bifreiðir af gerðinni Fiat UNO-45 Super og 22 Nord-
mende 102 myndbandstæki.
Auk aðalvinninga og umfram
skylt vinningshlutfall eru í happ-
drætti SVFI nú 1000 aukavinn-
ingar, sem dregnir verða út dag-
ana 1. og 8. júní nk. 500 vinningar
í hvort skipti. Þessir vinningar
eru: 400 tölvuúr af Piratron-gerð
með innbyggðum rafeindareikni,
400 úrvarpsviðtæki af Realtone-
gerð með klukku og vekjara og 200
Poiariod Viva-ljósmyndavélar.
Heildarverðmæti aðal- og auka-
vinninga er rúmlega 4,5 milljónir
króna.
Miðar eru sendir út með gíró-
seðium og kostar hver miði kr.
125,-. Ágóði af happdrættinu
rennur eins og fyrr segir til hinn-
ar almennu starfsemi Slysavarna-
félags íslands. Eru verkefni fé-
lagsins margvísleg eins og kunn-
ugt er, en það vinnur bæði að
fyrirbyggjandi starfi og að björg-
unarstörfum. 94 björgunarsveitir
starfa á vegum félagsins víðs veg-
Þýsk flota-
deild í
heimsókn
ÚTLIT er fyrir að nokkur skip úr
þýskri flotadeild komi í kurteis-
isheimsókn til Reykjavíkur síðari
hluta júní, skv. upplýsingum utan-
ríkisráðuneytisins. Ekki hefur
verið tekin endanlega afstaða til
málaleitunar þýskra hernaðaryf-
irvalda þar um, en líklegt er, að
skipin verði á flotaæfingum
skammt undan landinu á þessum
tíma.
ar á landinu. Félagið rekur hjálp-
ar- og neyðarþjónustu í höfuð-
stöðvum sínum allan sólarhring-
inn. Þá á félagið og rekur 70
fjalla- og skipbrotsmannaskýli
víðs vegar um land. öll þessi
starfsemi og önnur, sem félagið
hefur með höndum, kostar mikið
fé en frá upphafi hefur starf þess
að verulegu leyti verið kostað með
frjálsum framlögum almennings.
(Fréttatilkynning.)
PnNKBSTRIK
"KHLLl! fe FflNN ÆTH rumuT'
SUMARTILB0Ð
AÐEINS í 3., 4. og 5. maí bjódum vid 25% staógreideluafslátt á öllum vörum. Ath. laugardaginn 5. maí, opiö frá kl. 10—3.
3 K.M. Húsgögn
DAGA LangltolUvegi 111, Reykjavík. S. 37010 — 37144.
Bílasýning
í dag frá kl. 1—5.
Nýir og notaðir bílar til
sýnis og sölu
Tökum vel með farna Lada upp í nýja
Mest seldi bíllinn
Veröli.ti yfir Lada-bifreiöar
fyrir handhafa örorkuleyfa.
Lada 1300 kr. 106.600
Lada 1200 station kr. 113.600
Lada 1500 stationkr. 124.300
Lada 1500 Safir kr. 118.100
Lada 1600 Canda kr. 128.000
Lada Lux kr. 135.400
LadaSport kr. 216.600
Sifelld þjónusta
Veró viö birtingu auglýsingar
kr. 183.000,-
Lán6— 10mán. 93.000,-
Þér greiöið
90.000,-
Bifreiðar &
Landbúnaöarvélar hf.
SUOURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600
Söludeild sími 31236