Morgunblaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984
1S
Kvikmyndaleikur magnaði
upp leiklistarbakteríuna
ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR er Vestmanneyingur í húð og hár, fædd þar 24.
ágúst 1964. Hún er ekki alveg ókunn fegurðarsamkeppni, þótt ekki hafi það
verið með hefðbundnu sniði: Hún lék nefnilega Ungfrú Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu í kvikmyndinni „Nýtt líf“, sem tekin var í Eyjum. Elva
starfar nú við framreiðslustörf á Gestgjafanum í Eyjum en hefur hug á að
afla sér frekari menntunar, einkum á leiklistarsviðinu. Leiklistarbakterían
magnaðist við kvikmyndatökuna en Elva hefur leikið með Leikfélagi Vest-
mannaeyja síðan 1978. „Áhugamálin eru mörg - til dæmis íþróttir. Eg keppti
áður fyrr í sundi og handbolta og var talsvert í frjálsum íþróttum þegar ég
var yngri. Svo finnst mér gaman að vera úti við, reyni að komast í lax og
silung á hverju sumri, mér finnst gaman að vinna með börnum og ýmislegt
fleira. Yfirleitt er ég til í hvað sem er,“ sagði hún. „Keppnin leggst bara vel í
mig þótt ég hafi hlegið þegar þetta var fyrst nefnt við mig.
Guðný
Benediktsdóttir:
Hestamennska er
a daláhugamálid
GUÐNÝ BENEDIKTSDÓTTIR er í miðjum stúdentsprófum í Mennta-
skólanum við Sund og tekur síðasta prófið 18. maí, að morgni þess dags
sem Fegurðardrottning íslands og Fegurðardrottning Reykjavíkur
verða krýndar í Broadway. „Það er óráðið hvað tekur við en ég held þó
örugglega áfram námi, annað þýðir ekki,“ sagði hún. Guðný er fædd 19.
september 1964 og verður því tvítug í haust. Hún sagði að keppnin
legðist ágætlega í sig og kvaðst ekki kvíða fyrir enda hefði hún um nóg
annað að hugsa þessa dagana. Helsta áhugamál hennar er hesta-
mennska, sem hún hefur stundað með fjölskyldunni allt frá barnsaldri.
„Svo er ég nýlega byrjuð að starfa með Módelsamtökunum og hef mjög
gaman af því,“ sagði Guðný Benediktsdóttir.
Sólveig
Þórisdóttir:
Sölumennskan býdur
upp á ferðalög______________
SÓLVEIG ÞÓRISDÓTTIR er fædd 28. september 1960 og verður þvi 24
ára í haust. „Ég hef verið sölumaður hjá Skrifstofuvélum síðan í sept-
ember, sel ritvélar, ljósritunarvélar og fleira þessháttar. Áður var ég
gjaldkeri í Landsbankanum. Mér þykir þetta skemmtilegt og lifandi
starf, m.a. vegna þess að það býður upp á ferðalög, sem eru ásamt
skíðaíþróttum eitt helsta áhugamál mitt,“ sagði hún. Sólveig er uppalin
í Hafnarfirði og Garðabæ en er nýlega flutt til Reykjavíkur. „Keppnin
leggst vel í mig, hún gæti boðið upp á möguleika, sem maður fengi ekki
að öðrum kosti. Aðalatriðið er að vera með og sýna lit. Ég hef verið í
Módelsamtökunum í rúm tvö ár, svo ég er sviðsvön og hef engar sérstak-
ar áhyggjur út af keppninni."