Morgunblaðið - 05.05.1984, Page 21

Morgunblaðið - 05.05.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAl 1984 21 Húseigendafélag Reykjavíkur: Borgarafundur um al- kalí- og steypuskemmdir Húseigendarélag Rcykjavíkur hef- ur bodað til almenns borgarafundar um alkalí-og steypuskemmdir í stcinhúsum og verdur hann haldinn að Hótel Borg þann 12. þessa mán- aöar. Á fundinum verða ræddar ýms- ar hliðar á þessum vanda sem fund- ist hefur víða í húsum byggöum á árunum 1961—79, og hugsanlegar bætur á þeim. Frummælendur á fundinum verða þeir Hákon ólafsson, yfir- verkfræðingur hjá Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins, sem fjallar um tæknileg sjónarmið, Hrafn Birgisson, borgardómari, sem ræðir um lögfræðilegu hliðina og Birgir ísleifur Gunnarsson, al- þingismaður, sem fjallar um póli- tíska hlið þessara mála. Að loknum framsöguerindum verða almennar umræður og fyrir- spurnir til framsögumanna, en að þeim loknum hefjast pallborðs- umræður. Þar ræða saman þeir Alexander Jónsson, félagsmála- ráðherra, Guðmundur Guð- mundsson, tæknilegur fram- kvæmdastjóri Sementsverksmiðju ríkisins, og dr. Pétur Blöndal, formaður Húseigendafélagsins, auk ofangreindra frummælenda. Að sögn dr. Péturs Blöndal hafa fjölmargir húseigendur leitað til Húseigendafélagsins að undan- förnu með mál er varða alkalí- skemmdir í húsum þeirra. Mörg slíkra mála tengjast kaupum og sölu fasteigna sem alkalískemmd- ir hafa fundist í og eru svokölluð „gallamál", en langur tími getur liðið frá því að hús er byggt þar til slíkra skemmda verður vart. Þar sem litið er á steypu sem lausafé sem fyrnist á einu ári, samkvæmt dómi hæstaréttar og því ekki bótaskylt, kvað Pétur því oft úr vöndu að ráða ef skemmdir finnd- ust í húsi sem gengið hefði kaup- um og sölu jafnvel margsinnis. Þá reyndist oft torvelt að finna þann aðila sem væri ábyrgur fyrir skemmdunum og mál er vörðuðu alkalískemmdir væru iðulega mjög flókin. „A borgarafundinn höfum við kallað til menn sem hafa sérþekk- ingu á hinum ýmsu hliðum þessa máls og vonumst því til að hann verði til að auðvelda og leiðbeina húseigendum sem eiga alkalí- skemmd hús eða hús byggð á þess- um tíma sem hætta er á að séu alkalískemmd," sagði dr. Pétur Blöndal. Þá má geta þess að Húseigenda- félag Reykjavíkur, sem reyndar er ætlað húseigendum á Stór- Reykjavíkursvæðinu öllu, hefur nú gefið út veglegt rit í 20.000 ein- tökum, sem dreift verður ókeypis í sem flestar íbúðir í Reykjavík. í ritinu er m.a. að finna greinar um kostnaðinn við eigið húsnæði, orkunotkun við húshitun, ábend- ingar varðandi fasteignakaup og um galla í fasteignakaupum, húsa- leigusamninga, skiptingu sameig- inlegs kostnaðar í fjölbýlishúsum og fleira. Þá eru í blaðinu tíunduð markmið félagsins, sem m.a. eru að sköttum og álögum á húsnæði verði stillt í hóf, að kostnaði við opinbera þjónustu, götulýsingu og VJterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiöill! fleira verði haldið niðri, að húseig- endafélagið verði, fyrir hönd hús- eigenda, aðili í kjarasamningum meistara og iðnaðarmanna og að hagsmuna húseigenda verði gætt gangvart aðilum sem eiga að sjá um viðhald húsa. Á vegum Húseigendafélagsins, sem telur um 2.700 félagsmenn, er rekin upplýsingamiðlun, leið- beiningarstarfsemi og ráðgjöf, þar með talin lögfræðileg ráðgjöf fyrir félagsmenn. Núverandi stjórn Húseigendafélags Reykjavíkur. Fremri röð frá vinstri: (Stjórn og framkvæmdastjórn) Kristín Halla Jónsdóttir, Alfreð Guðmundsson, Pétur Blöndal form., Sveinn Jónsson, Sigurður Helgi Guðjónsson. Aftari röð frá vinstri: (Varastjórn) Guðmundur R. Karlsson, Eyþór Þórðarson, Leifur Benediktsson. Hafsldphf. styðuraukíð átaktíl útflutníngs islensKiar iðnaðarvöru Vegna aukins átaks í sölu á íslenskum iðnaðarvörum erlendis og í tilefni 25 ára afmælis Hafskips bjóðum við útflytjendum eftirfarandi aðstoð: 1. 2. 3. 4. Aukin umsvif Hafskips erlendis skapa okkar mönnum þekkingu á erlendum stað- háttum, einkum á sviði flutninga, viðskipta og markaðsmála. Þessi þekking stendur til boða, m.a. með ráðgjöf og milligöngu. Fimm svæðisskrifstofur Hafskips erlendis; í Kaupmannahöfn, Hamborg, Rotterdam, Ipswich og New York og eigið flutningafyrirtæki, COSMOS Shipping Co. með skrif- stofur sínar í fimm borgum Bandaríkjanna, eru tilbúnar að veita enn frekari þjónustu. T.d. við ýmiskonar upplýsingaöflun, leit að viðskiptasamböndum, lækkun erlends milliliðakostnaðar, tilboðaleit í flutninga milli svæða erlendis, aðstoð við hráefnisöfl- un og útboð. Skipaður hefur verið sérstakur milligöngumaður á aðalskrifstofu Hafskips í Reykjavík, Þorsteinn Máni Árnason, til að sinna þessum verkefnum auk framangreindra aðila. Leitið til hans með frekari fyrirspurnir. Auk annarrar þjónustu sem að gagni gæti komið nefnum við síðast en ekki síst hvetjandi flutningsskilmála á iðnaðarhráefnum til landsins og fullunninni iðnaðar- vöru héðan.". Aukið átak í útflutningi er íslensku þjóðinni lífsnauðsyn. Hafskip hf. gengur heilshugar til leiks. Okkar menn,- þínir menn HAFSKIP HF.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.