Morgunblaðið - 05.05.1984, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984
39
fclk í
fréttum
+ Sól og blíða hefur rerid í Englandi að undanfornu og hún Jannie reit heldur ekkert betra en láta
fara rel um sig í hengikojunni hæfilega mikíð klædd. Jannie hefur unnið sem Ijósmyndafyrirsæta en
er ekki riss um, að sú rinna endist til eilífðarnóns. Hún segir, að það geri þó ekkert til þrí að þá fái
hún betri tíma til að sinna stóru ástinni í IiTi sínu, enskum fjárhundi að nafni Bonnie.
Umhyggjusamur pabbi
+ Eftir að Mike Landon, pabbinn í
Húsinu á sléttunni, varð alvöru-
pabbi, fer hann ekki fetið án dótt-
urinnar Jennifer og Cindy, kon-
unnar sinnar, sem er aðeins 24 ára
gömul en Mike sjálfur 47.
„Ég dýrka dóttur mína,“ segir
Mike. „Cindy segir, að Jennifer sé
lík mér en mér finnst hún líkjast
mest Cindy, með stóru, bláu augun
hennar og ljósa hárið."
Jennifer er raunar ekki fyrsta
barnið hans Mikes. Hann á fjögur
önnur og hljóp frá þeim og móður
þeirra fyrir rúmu ári til að giftast
Cindy.
COSPER
— Þetta er hræðilegt, læknir. Maðurinn minn heldur
því fram að hann sé hestur.
Bróður Díönu
dreymir um vín
og villtar meyjar
+ Díana prinsessa á sér bróður
sem heitir Charles Althorp, sem
er 19 ára gamall og leggur stund
á nám við Oxford-háskóla. Al-
thorp vísigreifi er þó ekki þekkt-
ur fyrir góðan námsárangur
heldur er hann mikill gleðimaður
og hefur unnið sér það til frægð-
ar að vera kastað út af flestum
finustu veitingastöðunum í
London fyrir ölvun.
Althorp kom nú nýlega fram í
sjónvarpsþættinum „Aðeins fyrir
karlmenn“ og var spurður þar
spjörunum úr af blaðakonunni
Paula Yates, sem er gift rokk-
stjörnunni Bob Geldorff. M.a.
spurði hún hann um vinkonur
hans og framtíðardrauma.
„Mig langar til að opna veit-
ingahús þegar ég hef lokið við
Oxford og er að hugsa um að fara
á námskeið i matargerð til að
vera öllum hnútum kunnugur
bæði í eldhúsinu og annars stað-
ar,“ sagði Althorp, sem talaði
einnig um kvennamál sín.
„Ég er óður í kvenfólk og er
alltaf ástfanginn af einhverri.
Hins vegar leiðist mér að vera of
lengi með sömu stúikunni. Þegar
ég er einn dreymir mig um stúlk-
una en þegar hún er hjá mér
dreymir mig um heilan hóp af
villtum meyjum og nóg af víni.“
Charles Althorp komst nú ný-
lega á forsíður dagblaðanna i
Englandi en þá hafði hann verið
heila nótt á einhverjum alræmd-
asta kynvillingabar í London.
„Ég var þar með skólafélaga
mínum og við vildum bara for-
vitnast. Þó ekki um of,“ segir Al-
thorp Díönubróðir.
Öllum þeim sem sýndu mér vináttuvott á 75 ára afmæli
mínu, þakka ég afheilum hug.
Oddur Ólafsson
Hjartanlegar þakkir til fjölskyldu minnar, vanda-
manna og vina sem glöddu mig með heimsóknum, gjöf-
um og kveðjum á 75 ára afmæli mínu 13. apríl sl.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurbjörg Kristín Elíasdóttir,
Háaleitishraut 37.
Bladburóarfólk
óskast!
Austurbær
Skúlagata Hátún II
Miötún • Hátún III
Laugavegur frá 101 —171 Samtún
flllt á baðið
Islensk framleiðsla
Baöinnréttingar er okkar sérgrein. Látiö okkur hanna
baöherbergiö yöur aö kostnaðarlausu. Komum heim.
Bjóðum einnig uppá hreinlætistæki, flísar og marmara á
gólf.
Búgarður
Smiöjuvegi 32, sími 79800.
Opið laugardag og sunnudag kl. 14—17, virka daga kl.
13—16.