Morgunblaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 45
> . «<r I W MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAl 1984 45 >^L^AKANDI SVARAR Í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS ^£^22ÍLMJbLIÍIL Fótur og fit í „Mauraþúfunni Þessir hringdu . . . íí Frid-samur skrifar: „Uppi varð fótur og fit í „Mauraþúfu" Margrétar (í Vel- vakanda 29. apríl sl.) og á fleiri bæjum, er að gefnu tilefni var minnst á eftirfarandi orð Jesú (í Velvakanda 18. apríl sl.): „Þegar sterkur maður, alvopn- aður, varðveitir hús sitt, þá er allt í friði sem hann á.“ (Lúk. 11,21.) Greinilegt er að þessi orð eiga erindi og þau hitta í mark í um- ræðu þeirri sem nú á sér stað og sannleikur þeirra óróar auðvitað. Þau eru einkenni orða Biblíunnar. í ljósi þeirra verður villan augljós og þeir sem ratað hafa í villu, sjá sitt efni og ráð og fá tækifæri til að snúa frá villu síns vegar. En það kostar átak og sársauka. „Útlegging" Margrétar á orðum Jesú talar sínu máli og dæmir sig sjálf. En þegar samviskan slær, þá er enn líf og enn von um aftur- hvarf til hins rétta vegar. Margrét minnist á sverð. Það gerir Jesús líka í Matt. 10,34: „Ætlið ekki að ég sé kominn til að færa frið á jörð. Ég kom ekki til að færa frið, heldur sverð ..." Hann sem frelsar kallar okkur til baráttu fyrir hinu sanna frelsi. Sú barátta tekur ekki enda hér á jörð. Minnumst þess öll sem frels- is njótum ennþá. Vakið, verið stöðug, verið karlmannleg og styrk. Allt sé hjá yður í kærleik gjört. Með góðri kveðju til Margrétar og þökk fyrir að gefa tilefni til þessa viðauka." Nú er strætó ljótur Gunnar Gunnarsson blaðasali kom að máli við Velvakanda og hafði eftirfarandi að segja: — Mér finnst Reykjavíkur afskaplega ljótir núna, eftir að þeir voru að hluta málaðir í svörtum lit. Þeir voru ekki eins ljótir áður og það væri bara best að hafa þá eins og áður. Þá vil ég mótmæla 10 króna myntinni sem bráðlega verður sett í umferð. Ég vinn við að selja blöð og ég er viss um að það endar með því að ég verð bakveikur, ef ég þarf alltaf að hafa alla vasa fulla af 10 króna mynt. Myntpeningarn- ir eru nefnilega ótrúlega þungir þegar þeir safnast saman í vösun- um hjá manni. Hins vegar hef ég ekkert á móti 1000 króna seðlinum sem einnig er væntanlegur. Ég hlakka til að sjá hann. Fer fyrir ofan garð og neðan A. Henckell hringdi og hafði eftir- farandi að segja: — Ólafur Ormsson lýsir því yfir í grein sinni um útvarp og sjónvarp, hvað hann er ánægður með fréttaritara Ríkis- útvarpsins í ýmsum borgum og bæjum í Evrópu og Bandaríkjunum. Ég get ekki sagt það sama. Mér finnst mikill meirihluti fréttanna sem þeir senda gjörsamlega ónýtur okkur hér heima á fslandi. Hvaða máli skiptir það fyrir okkur, hvort þessi flokkurinn eða hinn, þetta flokkasambandið eða hitt í Portú- gal, Finnlandi eða Peking er til hægri eða vinstri, en annar flokkur eða samband, fær þetta og þetta mörg atkvæði, hvort forystumenn- irnir heita Koivino eða Koivisto, Talakagío, Hua Kuo Feng eða Fua Huo Keng eða hvað. Hver nennir að setja þetta á sig? Ekki ég. Enda skiptir það mig engu máii. Ég held líka að þetta fari fyrir ofan garð og neðan hja obbanum af almenningi. Samt má gera ráð fyrir, að það kosti sitt fyrir þessa fjárvana stofnun, sem Ríkisútvarpið er sagt vera, að fá slíka þjónustu. ■ . ” Bifreiðastjóri hjá Landleiðum: Kannast ekki við þetta Bifreiðastjóri hjá Landleiðum kom að máli við Velvakanda og hafði eftirfarandi að segja: — Ég vil koma á framfæri at- hugasemd vegna skrifa ÞBS í Velvakanda þann 1. maí sl. ÞBS segist hafa orðið vitni að því að vagnstjóri aki af stað þó einhver komi hlaupandi í átt að vagnin- um og vilji ná honum. Ef við ök- um áfram þegar einhver reynir að ná vagninum er það vegna þess að við sjáum hann ekki. Þá segir ÞBS að vagnstjórar virðist ánægðir ef einhver reynir að ná vagni en nái honum ekki. Þessu vil ég alfarið mótmæla. Okkur þykir leitt ef einhver missir af vagninum, en mér finnst. rétt að það komi fram að við stöðvum vagnana alltaf þegar við getum eftir að einhver hefur gefið okkur merki um að hann vilji komast inn í vagninn og þá á ég við á milli biðstöðva. ÞBS talar um að einn vagn- stjóri hafi ekki viljað skipta 300 króna ávísun. Það getur staðið þannig á að engin eða lítil skipti- mynt sé fyrir hendi í vögnunum og því getur það stundum hent að ekki sé hægt að gefa til baka, hvort sem um er að ræða 300 króna ávísun eða 500 króna seðil eða annað. Að lokum kannast ég ekki við annað en að vagnstjórar sýni farþegum kurteisi, en mig lang- ar að benda þeim farþegum, sem hafa kvartanir fram að færa, á að hafa samband við Landleiðir og koma þeim á framfæri þar í stað þess að hlaupa með þær í blöðin. Við ræðum um allar kvartanir sem berast og reynum að leysa úr þeim málum innan veggja Landleiða. Okurteis vagnstjóri hjá Landleiðum [Þ.BX hringdi o(? hafði eftirfar- ] mdi að segja: — Ég vil koma á iienin sKipt í sjoppu við hliðina á | biðstöðinni. Eg fór og skipti henni, en þegar ég var nýkominn inn í sjoppuna ók hann af stað og J ég missti af vagninum. Þessi vagnstjóri keyrir oftast | vagnana sem fara 20 mínútur | fyrir heila tíman frá endastöð- inni í Reykjavík. Við, sem ferðumst með Land- leiðavögnunum, viljum að vagn- stjórarnir sýni farþegum al- menna kurteisi. ALLTAF A SUNNUDÖGUM OG EFNISMEIRA BLAÐ! Stúlkurnar í úrslitum fegurðarkeppninnar kynntar Mánaðarkaupið dugði fyrir einum hring í póker 30 ár frá míluhlaupi Bannisters Aldrei grunaði mig slíkt ævintýri — Viötal viö Lilju Bjarna Jafnvægi náttúru og tækni Spjallaö viö japanskan grafík- meistara Liechtenstein Enemy Mine Morgunblaöiö heimsækir kvik- myndatökumenn í Eyjum Hjálparsveit skáta á æfingu Punktar frá Finnlandi Veröld — Reykjavík- urbréf — Matur og matgerð — Þingsjá — Velvakandi — Á drottinsdegi — Úr heimi kvikmyndanna — Sígildar skífur — Útvarp & sjónvarp — Á förnum vegi — Myndasögur — Dagbók Veröld — Reykjavíkurbréf — Matur og matgerö — Þingsjá — Velvakandi — Á drottinsdegi — Úr heimi kvikmyndanna — Sí- gildar skífur — Útvarp & sjón- varp — Á förnum vegi — Myndasögur — Dagbók Sunnudagurinn byrjar á síðum Moggans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.