Morgunblaðið - 05.05.1984, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984
47
Tennis —
Tennis
Höfum opnað þrjá tennisvelli úti. Tíma-
pantanir í síma 82266.
Allir í tennis í góða veðrinu.
Tennis- og badmintonfélag
Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1.
Skipta þarf alveg um
innstu hlaupabrautina
— enn þarf að gera við tartan-brautina í Laugardal
Ól-eldurinn til New York
„ÞAÐ er alveg Ijóst og reynd-
ar búið að ákveða að taka al-
veg upp innsta hringinn á
tartan-hlaupabrautinni á
frjálsíþróttavellinum í Laug-
ardal. Brautin er illa farin og
mikið skemmd,“ sagði Baldur
Jónsson vallarstjóri í spjalli
við Mbl.
„Þaö verður töluvert verk aö
skipta um innstu brautina og jafn-
framt verður aö gera viö hana á
fleiri stööum. En þessu lýkur von-
andi áöur en stærstu frjálsíþrótta-
mót sumarsins verða,“ sagöi Bald-
ur.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
gera veröur viö tartan-hlaupa-
brautina. Svo til á hverju vori hafa
komið í Ijós á henni skemmdir og
hingað hafa komið sænskir sér-
fræöingar til að gera viö hana í
tvígang.
Aö sögn Baldurs þá mun
sænska fyrirtækið sem brautin var
keypt frá leggja til allt tartaniö sem
þarf í viögeröina borginni aö
kostnaöarlausu. Hinsvegar þarf
Reykjavíkurborg aö greiöa vinnu-
laun viö viögeröina sjálfa.
— ÞR.
• Baldur Jónsson, vallarstjóri {
Laugardal, athugar skemmdir á
tartan-hlaupabrautinni á frjáls-
íþróttavellinum.
fornu Olympiu þrátt fyrir ágreining i
Grikklandi þar aö lútandi. Grikkir höfóu
jafnvel i huga aö neita aö láta tendra
hann í Ólympíu vegna þess aö Banda-
rikjamenn söfnuóu áheitum vegna
hlaupsins með eldinn i landinu. Þeir
hafa safnað 10 milljónum dollara.
• íslandsmeistarar í minnibolta í körfuknattleik, lið Ungmennafélags
Njarðvíkur. Aftari röð frá vinstri: Haukur Ragnarsson, Friörik Rúnars-
son, Ævar Jónsson, Kristín Björnsdóttir, Magnús Þórðarson, Daníel
Sveinsson, Gísli Einarsson, Sveinbjörn Gíslason, Jóhann Halldórsson.
Fremri röð frá vinstri: Valdís Þorsteinsdóttir, Vilbert Gústafsson, Jón J.
Árnason, Guðbjörn Sigurjónsson, Stefán Örlygsson og Magnús Ragn-
arsson.
FORRÁDAMENN grísku Ólympíu-
nefndarinnar hafa hætt viö aö
reyna að senda ólympíueldinn til
Bandaríkjanna gegnum raf-
magnslínur eins og ráðgert var —
og veröur hann fluttur í flugvél.
Eldurinn veröur tendraöur i hinni
• íþróttabandalag Keflavíkur sigraði í fslandsmóti 2. flokks kvenna í
körfuknattleik. Hér eru sigurvegararnir, aftari röð frá vinstri: Hlín Hólm,
Margrét Sturlaugsdóttir, Björg Færseth, Guörún Einarsdóttir. Fremri
röð frá vinstri: Fjóla Þorkelsdóttir, Björg Hafsteinsdóttir, Kristín Sig-
uröardóttir, Guðlaug Sveinsdóttir og Gunnhildur Hilmarsdóttir. Þjálfari
stúlknanna er Jón Kr. Gíslason.
• Karlaliö KR varð sem kunnugt er fslandsmeistari í liðakeppni i
borðtennis níunda árið f röð í vetur og má telja alíkt frábæran árangur.
Unglingalið félagsins náðu einnig frábærum árangri — þau uröu í
þremur efstu sætunum í flokkakeppni unglinga. Á myndinni eru þeir
einstaklingar sem skipuðu liöin: Kjartan Briem og Valdimar Hannes-
son í A-liðinu, og Eyþór Ragnarsson og Magnús Þorstéinsson úr B-lið-
inu, Ragnar Árnason og Stefán Garðarsson úr C-liöinu. Reynir
Georgsson úr C-liðinu er ekki á myndinni.
Rush og
Miller
bestir
Fré Bob Hennessy, fréttamanni Mbl.
í Englandi.
IAN Rush, markakóngur hjá .
Liverpool, var í vikunni kjör-
inn knattspyrnumaöur árs-
ins í Englandi af íþrótta-
fréttariturum. í vetur var
hann einnig kjörinn knatt-
spyrnumaður ársins af félagi
atvinnuknattspyrnumanna.
Willie Miller, fyrirliði Aber-
deen, var kjörinn leikmaður
ársins i Skotlandi i vikunni.
Keppt í
Bláfjöllum
Skíðaráö Reykjavíkur
heldur sína árlegu firma-
keppni í dag í Bláfjöllum.
Keppt verður í göngu og
svigi og keppir hvert fyrirtæki
annaðhvort í göngu eöa svigi.
Dregið veröur um þaö í hvorri
greininni hvert fyrirtæki kepp-
ir. Keppendur frá félögunum
úr Reykjavík keppa fyrir fyrir-
tækin og draga keppendur út
fyrirtækin sem þeir keppa
fyrir.
i svigi er útsláttarkeppni,
þ.e. tveggja brauta keppni, en
slík keppni er mjög skemmti-
leg á að horfa. Vegleg verð-
laun eru til þeirra fyrirtækja
sem hreppa fyrstu sætin.
Landsliðið:
Alfreð og
Bjarni koma
ekki á æfingar
íslenska landsliðið í hand-
knattleik æfir af miklum krafti
um þessar mundir. Æft er sex
sinnum í viku undir stjórn
Bogdans landsliðsþjálfara.
Líkur voru á því að þeir þrír
landsliðsmenn sem leika í
V-Þýskalandi kæmu heim í
æfingarnar en aöeins Sigurð-
ur Sveinsson mun koma. Þeir
Alfreð og Bjarni geta ekki
fengið sig lausa frá félögum
sínum. __þ.r.
Bordeaux
meistari
BORDEAUX tryggði sér í vik-
unni franska meistaratitilinn í
knattspyrnu er liöið sigraði
Rennes 2:0 á útivelli. Lokaum-
ferðin fór þá fram í frönsku 1.
deildinni og aö henni lokinni
hefur Bordeaux 54 stig — jafn
mörg og Monaco, en marka-
tala Bordeaux-liðsins er betri.
Liðið hefur skorað 72 mörk og
fengið á sig 22, Monaco hefur
skorað 58 og fengið á sig 29.
Karl Þórðarson lék sinn síö-
asta leik meö Laval — liöiö
tapaði á útivelli, 0:1, gegn St.
Etienne.
Leikur Pétur
hér á landi
í sumar?
„ÉG HEF ekki mikinn áhuga á að
vera áfram hér í Dusseldorf — og
ef ég fæ ekki tilboð frá einhverju
öðru liði kem ég heim og spila
þar í sumar,“ sagöi Pétur
Ormslev, knattspyrnumaður hjá
Fortuna DUsseldorf í samtali við
Mbl. í gær.
Pétur meiddist í leiknum við
Stuttgart á dögunum eins og Mbl.
sagði frá og hefur ekki leikið síöan.
„Ég verð ekki með á morgun (í
dag) en vonast til að verða orðinn
góður fyrir næstu helgi. Þá fengi
ég kannski tækifæri til að sýna mig
— og reyna að vekja áhuga ann-
arra liða.“
Pétur sagði að sín mál ættu aö
skýrast á næstu vikum. „Ég vonast
til aö þetta veröi komiö á hreint
áður en ég fer í frí i byrjun júní.“
Pétur hefur ekki fengið nýtt tilboö
frá Dusseldorf, en samningur hans
rennur út nú í vor, enda sagðist
hann ekki munu taka þeim samn-
ingi. Hann vildi komast burt.
— SH.