Morgunblaðið - 15.05.1984, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
109. tbl. 71. árg.____________________________________ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1984_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þingkosningarnar á Filippseyjum:
Óvæntur árangur hjá
stjórnarandstæðingum
Manila, 14. maí, AP.
Blódsúthellingar, ásakanir um víð-
tæk kosningasvik og miklar mót-
mælagöngur gegn stjórnvöldum
landsins mótuðu kosningadaginn á
Filippseyjum í dag. Jafnframt hafði
árangur andstæðinga Marcosar for-
seta komið mjög á óvart, en fram-
bjóðendur þeirra höfðu náð forskoti
í mörgum kjördæmum, þar sem
þeim hafði verið spáð litlu gengi.
Ekki var gert ráð fyrir, að end-
anleg úrslit kosninganna yrðu
kunn fyrr en á morgun, þriðjudag.
Samkvæmt þeim tölum, sem lágu
fyrir í kvöld, höfðu stjórnarand-
stæðingar forystu í 62 kjördæm-
um en frambjóðendur flokks
Marcosar í aðeins 36 kjördæmum.
Á kjörskrá voru nær 25 millj.
manns og var kosningaþátttaka
víðast mjög mikil bæði í borgum
og úti á landsbyggðinni, en landið
samanstendur af 7.100 eyjum.
Kosið var um 183 þíngsæti á þjóð-
þingi landsins.
Mjög róstusamt hefur verið á
Filippseyjum undanfarna daga og
dró ekki úr því, er kjördagur nálg-
aðist. Að minnsta kosti 49 manns,
aðallega hermenn og lögreglu-
menn, biðu bana í kosningaóeirð-
um, sem urðu í gærkvöldi og í dag.
Aqapito Aquino, bróðir Benigno Aqu-
inos, hins myrta stjórnarandstöðu-
leiðtoga á Filippseyjum, gengur að
kjörborðinu í gær.
Ævintýraleg-
NATO fundur
um varnarmál
ur næturflótti
frá Póllandi
Stokkhólmi, 14. maí. Frá fréttaritara Morgunhlaósins, Erik Liden, og AP.
SJÖ Pólverjar báöu um hæli í
Svíþjóð í dag sem pólitískir
flóttamenn, eftir að hafa flogið
með lítilli sjúkraflugvél í lág-
flugi frá Póllandi yfir Eystra-
salt. Er þetta í annað sinn, sem
flóttamenn frá Póllandi nota
þessa flugvél til þess að flýja
heimaland sitt.
í hópi flóttamannanna eru
fimm fullorðnir á aldrinum
Loftárás á
olíuskip á
Persaflóa
Kuwait, 14. maí. AP.
OLÍUSKIP í eigu stjórnarinnar
í Kuwait varð fyrir loftárás á
Persaflóa í dag. Lentu tvær eld-
flaugar á skipinu, sem varð
fyrir miklum skemmdum. Eld-
ur kom upp í skipinu, en það
tókst þó að slökkva hann að
nokkrum tíma liðnum. Gat
skipið síðan haldið fór sinni
áfram af eigin rammleik til
Kuwait.
Aðeins tveir af áhöfn
skipsins særðust lítillega og
þykir mesta mildi, að ekki
skyldi hljótast meira mann-
tjón af. Herstjórnin í Irak
lýsti því yfir í kvöld, að það
hefði ekki verið flugvél það-
an, sem stóð að loftárásinni í
dag. Sama máli gegndi um
loftárás, sem gerð var á olíu-
skip á Persaflóa á laugardag.
Var því haldið fram afdrátt-
arlaust, að írakar bæru enga
ábyrgð á henni.
30—40 ára og tvö börn. Flug-
vél þeirra lenti á Sturup-
flugvelli við Málmey um kl.
hálf þrjú í nótt. Höfðu þeir
flogið vélinni í mjög lítilli
hæð til þess að hennar yrði
ekki vart á pólskum radar-
stöðvum.
Talið er víst, að flótta-
mönnunum verði veitt póli-
tískt hæli í ^víþjóð. Voru þeir
yfirheyrðir af lögreglunni í
Málmey í dag, en flótti þeirra
er talinn bera vott um mikla
dirfsku. Það er skoðun lög-
reglunnar, að hér sé á ferð-
inni sama flugvél og sú, sem
notuð var við flótta annars
hóps af Pólverjum til Sví-
þjóðar í júní 1982, en sá flótti
átti sér stað undir mjög
áhrifamiklum kringumstæð-
um, líkt og flóttinn nú.
Stuðningsmenn Khadafys hrópa vígorð og halda á loft spjöldum með mynd-
um af leiðtoga sínum. Mynd þessi er af útifundi á aðaltorgi Tripoli í gær, en
fundur þessi var haldinn til stuðnings Khadafy eftir uppreisnartilraun þá,
sem gerð var gegn honum í síðustu viku.
Kríissd, 14. maí. AP.
Varnarmálaráðherrar Atlants-
hafsbandalagsins koma saman í
Briissel á morgun, þriðjudag, til
þriggja daga fundar. Er talið, að
nú þegar lokið er að mestu upp-
setningu nýrra meðaldrægra
eldflauga í aðildarlöndum
NATO í Vestur-Evrópu, sé sú
skoðun ríkjandi innan banda-
lagsins, að efla þurfi varnarmátt
þess með svokölluðum hefð-
bundnum vopnum. Er því gert
ráð fyrir að viðræðurnar nú
muni einkum fjalla um þennan
þátt í vörnum bandalagsins.
Jafnframt er talið, að
aðildarlönd NATO í V-Evrópu
muni leggja áherzlu á framlög
landa sinna til NATO og svara
þannig þeirri gagnrýni, sem
fram hefur komið á Banda-
ríkjaþingi um, að þessi lönd
leggi ekki sitt af mörkum til
bandalagsins.
Fundur þessi fer fram sam-
tímis því, sem fregnir berast
af ákvörðun Sovétríkjanna um
að koma fyrir nýjum kjarn-
orkueldflaugum af SS-gerð í
Austur-Þýzkalandi. Er talið
víst, að á fundi NATO nú verði
rætt um, hvernig brugðizt
skuli við þessari ráðstöfun.
Spennan magnast mjög
milli Túnis og Líbýu
Túnisborg, 14. maí. AP.
STJÓRN Moammar Khadafys í Líbýu er byrjuð að vísa
Túnisbúum búsettum þar úr landi svo hundruðum skiptir.
Gerist þetta í kjölfar ásakana Lfbýustjórnar í síðustu viku
um, að í Túnis séu bækistöðvar afía, sem kyndi undir upp-
reisnum og innanlandsófriði í Líbýu.
Á sunnudag voru 50 Tún-
isbúar reknir burt frá Líbýu
og fréttir bárust af því í dag,
að miklum fjölda Túnis-
manna hefði verið safnað
saman við E1 Gharyan um 40
km fyrir sunnan Tripoli og
biði þeirra ekki annað en að
verða reknir úr landi. Engar
ástæður hafa enn verið til-
greindar af hálfu Líbýu-
stjórnar. Alls eru um 75.000
Túnisbúar búsettir í Líbýu og
hafa þeir eiiikum unnið þar
við verzlun og iðnað.
Sú mikla spenna, sem kom-
in er upp svo skyndilega milli
landanna hefur vakið mikinn
kvíða og ugg í Túnis. Er á það
bent, að Líbýuher ræður yfir
miklum fjölda nýrra her-
gagna frá Sovétríkjunum og
myndi hafa verulega yfir-
burði yfir her Túnis, ef koma
kynni til hernaðarátaka.