Morgunblaðið - 15.05.1984, Síða 25

Morgunblaðið - 15.05.1984, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1984 29 Minning: Ferdinand H. Jóhannsson í dag fer fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík útför Ferdinands H. Jóhannssonar, er lést föstudag- inn 4. maí sl. Hann hafði kennt lasleika undanfarin misseri, þó það væri ekki áberandi, sökum þess hve vel hann bar sig. í október sl. veiktist hann snögglega og var fluttur í Land- spítalann, um jólaleytið komst hann heim og bjó við nokkra heilsu, eða þar til í mars að leiðin lá í Borgarsjúkrahúsið í Reykjavík þar sem hann dvaldi, að undan- skildum páskadögum, að hann fékk notið þess að vera heima, þá helsjúkur orðinn. Ferdinand var fæddur í Reykja- vík 2. september 1910, sonur hjón- anna Guðlaugar Árnadóttur og Jóhanns H. Jóhannssonar, er fyrstur veitti forstöðu Manntals- skrifstofunni í Reykjavík. Ferdin- and fór snemma að vinna, eins og flestir unglingar á þeim tíma. Um tvítugsaldur fór hann til sjós, þar til leið hans lá á Manntalsskrif- stofuna, þar sem hann vann undir strangri stjórn föður síns meðan hans naut við, og allt til ársins 1977, að hann hætti störfum fyrir aldurssakir. Fyrstu áratugina, sem Mann- talsskrifstofan starfaði, var manntal tekið árlega, með þeim hætti að skýrslublöð voru borin í hvert hús í Reykjavík og innheimt nokkrum dögum síðar. Verkefni Manntalsskrifstofunnar var margþætt, unnin var kjörskrá fyrir hverjar Alþingis- og bæjar- stjórnarkosningar o.m.fl. Þar störfuðu menn með afburðagóða rithönd, Ferdinand var einn þeirra, vandvirkni og snyrti- mennska voru honum eðlislæg. Á jólum 1935 kvæntist Ferdin- and ungri og glæsilegri stúlku, Báru, dóttur hjónanna Lýðs 111- ugasonar og Kristínar Hall- af „Uppeldi“ ÚT ER komið „Uppeldi", tímarit fé- lags uppeldisfræðinga við Háskóla íslands. Efni blaðsins er fjölþætt, þ.á m. greinar um tölvur í skóla- starfi, skólaráðgjöf og friðaruppeldi. Prentun annaðist Prentstofa G. Benediktssonar. Blaðið er fáanlegt í Bóksölu stúdenta. (Fréttatilkynning.) 7~~ | XJöfdar til n fólks í öllum starfsgreinum! varðsdóttur, sem þá bjuggu í Reykjavík, Snæfellingar að ætt- erni. Bára og Ferdinand eignuðust 4 börn, þau eru: Ægir, kvæntur Guðrúnu Auði Marinósdóttur; Hallvarður, kvæntur Sesselju Jónsdóttur; Kristín, gift Oddi Jónssyni og Hafþór, kvæntur Hrafnhildi Þorgeirsdóttur, barna- börnin eru 10, sem öll hafa fengið að njóta félagsskapar afa síns, um lengri eða skemmri tíma. Ferdinand var hjálpsamur og greiðvikinn, sem lýsti sér meðal annars í því, hve fljótur hann var að leysa úr vanda aldraðra og sjúkra, er þurftu á fyrirgreiðslu að halda. Ferdinand hafði hressilega framgöngu, enda skapmikill, og lét skoðanir sínar einarðlega í ljósi, honum fylgdi frískandi and- blær, sem gerði hann að aufúsu- gesti, eins var hann heim að sækja, hress í anda þar sem gest- risni og höfðingslund ríkti á heim- ili þeirra hjóna. Nú þegar leiðir skilur um stund, þakka ég og fjölskylda mín sam- fylgdina frá fyrstu tíð, og óska honum velfarnaðar á nýjum lífsbrautum, og eins og þrá hans til að komast heim um páskana varð að veruleika, eins megi ferðin sem nú er hafin að heiman einnig verða ferðin heim. Eiginkonu hans, Báru, sem af einstakri alúð annaðist hann í veikindunum og vakti yfir honum dag og nótt síðustu stundirnar, votta ég dýpstu samúð, og bið henni og fjölskyldunni blessunar um ókomin ár. Hjörtur F. Jónsson engaráhyggjur Kynntu þér kjörin sem bankinn býöur sparendum. Beröu þau saman viö þaö sem aörir bank- arbjóða núna. Viö bjóöum 21,6% ársávöxtun á BANKAREIKNINGI MEÐ BÓNUS. Þú getur valiö milli þess aö hafa slíka reikninga verötn/ggöa eöa óverðtryggða. Þú mátt einnig færa á milli þessara reikninga, án þess aö þaö skeröi bónus eöa lengi 6 mánaöa bindi- tíma. þessu fellst mikiö ön/ggi - ef verðbólgan vex. Mnaðaibankmn Fer eigin leiöir-fyrirsparendur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.