Morgunblaðið - 15.05.1984, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1984
33
75áræ
Tilboö sem veröur ekki endurtekið
Martin Jensen
símaverkstjóri
Gildir til 19. maí ’84.
30% staðgreiðsluafsláttur
af öllum vörum verzlunarinnar
Góðvinur minn, Martin Jensen
símaverkstjóri, Fannborg 1, Kópa-
vogi, er sjötíu og fimm ára í dag.
Innan við tvítugt hóf Martin
störf hjá Ottó B. Arnar við fyrstu
útvarpsstöðina í Reykjavik á Mel-
unum.
Þegar Ríkisútvarpið tók til
starfa varð hann einn af fyrstu
starfsmönnum þess. Hann vann
síðan við þá stofnun og síðar
Landsíma íslands þar til hann lét
af störfum vegna aldursmarka,
sjötugur. Siðan hefur hann unað
sér vei í hlutastarfi á öðrum vett-
vangi.
í fyrstu má segja að hann hafi
unnið að ýmsum frumherjastörf-
um, t.d. að setja niður svokallaðar
neistastöðvar í bátaflotann í Vest-
mannaeyjum og víðar.
Martin starfaði við uppbygg-
ingu útvarpsstöðvarinnar á
Vatnsenda frá byrjun og má segja
að hann hafi varið starfsævi sinni
við stöðvarnar á Vatnsenda og
Rjúpnahæð. Sérgrein hans var þó
að reisa hin mörgu og háu möstur
sem á þessum stöðvum eru og sið-
ar að halda þeim við.
Martin mun hafa starfað undir
yfirstjórn allra þeirra fimm póst-
og símamálastjóra sem verið hafa
hérlendis og kæmi mér ekki á
óvart að hann væri eini núlifandi
fslendingurinn sem það hefur
gert. Oft kom fyrir að hann var
sendur til ýmissa verkefna um
landið, t.d. reisa útvarpsmöstur í
Skjaldarvik, á Eiðum og víðar. f
frium sinum hjá Landsímanum
vann hann oft við hafnarfram-
kvæmdir sem kafari. Á striðsár-
unum vann hann einnig oft að köf-
unarstörfum i Hvalfirði fyrir her-
inn.
Martin kvæntist Önnu Egils-
dóttur árið 1933. Þau byggðu sér
hús í Rjúpnadal við Reykjavík og
bjuggu þar í áratugi. Eignuðust
þau tvo syni. Anna lést árið 1972.
Barnabörnin eru orðin fimm og
eru sérstakir kærleikar milli
þeirra og afa.
Á yngri árum var Martin með
snjöllustu fimleikamönnum lands-
ins og var í úrvalsflokki fimleika-
manna undir stjórn Jóns Þor-
steinssonar um árabil. Til gamans
má geta atviks á Þingvöllum er
hann um tvítugt kafaði til botns í
Flosagjá (Peningagjá) til að ná í
„Konungssverðið" sem reyndist
vera rörbútur þegar upp var kom-
ið. ólíklegt er að nokkur hafi leik-
ið þetta eftir, án nokkurs útbúnað-
ar og ósmurður feiti.
En lengi býr að fyrstu gerð og
ber Martin þess ljósan vott með
léttu og þróttmiklu fasi sinu. And-
lega heldur Martin sér ekki síður
og er minni hans mjög gott. Vil ég
þakka honum margar ánægju-
legar gönguferðir um höfuðborg-
ina, sérstaklega gamla bæinn, þar
sem hann er fæddur. Þær stundir
hafa verið mér besti skóli, því
Martin er hafsjór af fróðleik og
sögum um menn, málefni og hús,
sem ekki verður lært í skóla eða
lesið í bókum.
í vinnu hefur Martin ávallt get-
ið sér gott orð. Hann er sérlega
nákvæmur og skyldurækinn. Hóg-
værð er þó hans helsta aðals-
merki. Það kom mér því ekki á
óvart er hann tjáði mér að hann
hygðist halda til vinnu sinnar í
dag og vildi alls ekkert umstang í
tilefni dagsins.
Ég sendi honum bestu afmælis-
óskir.
Hörður M. Felixsnn
ATH:
Tilboðið veróur
ekki endurtekiö.
OPIÐ:
alla daga frá kl. 9—6 laugard. 12.5 og 19.5 opið frá kl. 10—3 e.h.
K.M. Húsgögn
Langholtsvegur 111 — Simar 3701 0— 37144 — Reykjavík.
Hugsanlega
heíurðu þrjá vinninga í hendi^
þegar upp styttir þann 17. júní!
Happaregn er happdrœtti
Slysavamafélags íslands.
í það er ráðist til viðhalcis og eílingar slysa
vama á íslandi og á öllum haísvœðum
umhveríis það.
JL / . juiu giiu ii uuiiu cuu, eins og
allir miðar greiddir þá eða íyrr. Þá verða aðalvinningarnir
dregnir út.
Þetta er sannkallað happaregn!
AÐALVINNINGAR: 10 FIAT UNO
bíll ársins '84 _
22 NORDMENDE
myndbandstœki /N*
AUKAVINNIN G AR: 1 JMBR^fl
400 REALTONE utvarpsviðtœki, með Jfl
klukku og vekjara
400 PIRATRON tölvuúr með vekjara
og raleindareikni
200 POLAROID VIVA ljósmyndavélar
VTÐ ÞÖRFNUMST ÞÍN
1000 vinningar alls, alvea aukalega